Morgunblaðið - 28.04.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
Við reyndum að leggja orð á móti.
Oft hafði Böðvar síðasta orðið, en
hefði ég það t.d. og tæki hraustlega
upp í mig, skemmti hann sér kon-
unglega.
Hvað við söknum Böðvars. En
hvað með þá, sem stóðu honum
næst, litla drenginn, Amar Frey,
eiginkonuna, írisi, foreldra og
systkini. Þeirra þjáning er stærri
en orð fá lýst. Þjáningin er fæðing-
arhríð skilningins. Eins og kjami
verður að sprengja utan af sér skel-
ina, til þess að blóm hans vaxi upp
f ljósið, kynnast mennimir þjáning-
unni. Sú kynning er þó misjöfn og
það er erfitt og sárt að skilja það,
að Böðvar sé dáinn. Minningin um
góðan dreng mun þó lifa og við
emm þakklát fyrir að hafa átt hann
að vini. Astvinum öllum sendum við
samúðarkveðjur.
„Sástu ekki vinur að guðs3Ólin grét
geislum sem þerruðu tárin af vanga."
(JóhannesúrKötlum)
Sigþrúður og Smári
Ungur maður, í blóma lífsins, er
nær fyrirvaralaust kallaður yfír
móðuna miklu. Slíkt veldur ólýsan-
legum tilfinningum, skilning brest-
ur, en á trúna reynir.
Leiðir okkar Böðvars Hauksson-
ar, sem í dag er kvaddur hinstu
kveðju, lágu fyrst saman á vett-
vangi Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna, fyrir um 25
ámm. Frá þeim tíma er Böðvar
mörgum minnisstæður fyrir ein-
staka eljusemi og áhuga á málefn-
um félagsins.
Vorið 1973 réðst Böðvar til Iðn-
aðarbankans og gegndi starfí
skrifstofustjóra Iðnlánasjóðs til
hausts 1977. Á þeim tíma áttum
við nær daglegt samstarf.
Síðustu. árin áttum við á ný
margvíslegt samstarf en þá annað-
ist Böðvar, auk annarra starfa hjá
Landsbankanum, framkvæmda-
stjóm Útflutningslánasjóðs.
Öllum störfum sínum sinnti
Böðvar af samviskusemi og áhuga.
Böðvar stundaði nám í Verslun-
arskólanum og lauk stúdentsprófí
þaðan árið 1967. Úr Háskóla ís-
lands útskrifaðist hann sem við_-
skiptafræðingur árið 1972. Á
námsárum sínum starfaði hann 5
sumur í Iðnaðarbankanum,
1965—1969. Hann var og hluthafí
í bankanum og alla tíð var hann
áhugasamur um málefni bankans
og framgang.
Við leiðarlok kveðjum við með
söknuði vin, sem sinnti lífsstarfí
sínu af hógværð. Eftir lifír björt
minningin.
Eiginkonu, Ásu, foreldrum, Láru
og Hauki, syni, systkinum og
tengdafólki sendum við hjónin
hjartanlegar samúðarkveðjur og
biðrjum góðan Guð að gefa þeim
styrk.
Valur Valsson
Á páskadag lést vinur minn,
Böðvar Hauksson. Hann var fæddur
árið 1946, sonur þeirra sæmdar-
hjóna Láru Böðvarsdóttur frá
Laugarvatni og Hauks Eggertsson-
ar frá Haukagili í Vatnsdal.
Kynni okkar Böðvars hófust er
hann byrjaði í Iðnaðarbankanum
árið 1965 sem sumarmaður. Starf-
aði hann nokkur sumar í bankanum
á námsárum sínum. Böðvar var
samviskusamur starfsmaður og vin-
sæll meðai samstarfsmanna. Síðar,
eftir að hann hafði lokið viðskipta-
fræðinámi, var hann ráðinn aftur
til bankans og veitti hann Iðnlána-
sjóði forstöðu árin 1973—77.
Á þessum fyrstu árum okkar
Böðvars í Iðnaðarbankanum tókst
með okkur náin vinátta sem hélst
óslitið síðan. Böðvar var mikill og
góður persónuleiki, traustur og heil-
steyptur í alla staði, hafði gott
hjartalag og var vinur vina sinna.
Vil ég hér nefna eitt dæmi um hjálp-
semi Böðvars. Hann hvatti mig
eindregið til frekara náms meðan
hann var sjálfur í háskólanum.
Hann lét ekki sitja við orðin tóm,
heldur tók hann að sér að kenna
mér latínu til stúdentsprófs. Sátum
við í heilan vetur, nokkrar klukku-
stundir í viku hverri, og glímdum
við latínuna. Góður árangur á loka-
prófínu var fyrst og fremst þraut-
seigju Böðvars að þakka.
A þessum árum kom ég mikið á
heimili foreldra Böðvars í Barma-
hlíðinni. Þangað var notalegt að
koma, heimilið fallegt og hlýlegt.
Oftast hellti Lára upp á könnuna
og svo var setið í eldhúskróknum
og spjallað um heima og geima.
Voru þær samræður oft hinar fjör-
ugustu því mæðginin höfðu ríka
kímnigáfu.
Böðvar hóf búskap með konu
sinni, Ásu Guðmundsdóttur, fyrir
áratug. Eignuðust þau son, Arnar
Frey, fyrir sex árum. Einnig ólu
þau upp dóttur Ásu, írisi Laufeyju.
Böðvar var umhyggjusamur eigin-
maður og faðir og bjó fjölskyldu
sinni fallegt heimili.
Það er ótrúlegt að fyrir rúmum
mánuði vottaði ekki fyrir þeim sjúk-
dómi sem heltók Böðvar. Sunnu-
daginn 22. mars sl. fórum við í
gönguferð, eins og við gerðum oft
um helgar. Böðvar var hress, ekk-
ert virtist angra hann, og framtíðin
björt. En ský dró fyrir sólu. Böðvar
veiktist nokkrum dögum síðar, var
lagður inn í sjúkrahús þar sem hann
lést 19. apríl sl.
Guð gefí fjölskyldu hans styrk í
hennár miklu sorg, en minningin
um einstakan dreng mun ávallt lifa
í hjörtum okkar.
Örn Hjaltalín
Böðvar L. Hauksson, vinur okkar
og starfsfélagi, er látinn. Hann lést
á páskadag, 19. apríl sl., eftir
skamma sjúkdómslegu, aðeins fer-
tugur að aldri. Útför hans verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag, 28.
apríl kl. 13.30.
Hvers vegna þurfti hann Böðvar
að deyja? Hann, sem var í blóma
lifsins, var hvers manns hugljúfí,
góður heimilisfaðir og frábær
starfsmaður. Manni fínnst það í
rauninni argasta óréttlæti að nokk-
ur falli frá á besta aldri, sem svo
mörgum mannkostum er búinn.
Okkur er svara vant. En samt.
Þeir sem guðimir elska deyja ungir.
Böðvar var fæddur 11. október
1946. Eftirlifandi eiginkona hans
er Ása Guðmundsdóttir. Þau áttu
einn son, Amar Frey, sem nýlega
varð sex ára. Foreldrar hans, sem
bæði lifa son sinn, eru Haukur
Eggertsson forstjóri og kona hans,
Lára Böðvarsdóttir.
Böðvar lauk stúdentsprófí frá
Verzlunarskóla íslands 1967 og
kandidatsprófí í viðskiptafræðum
frá Háskóla íslands 1972. Að loknu
háskólaprófi starfaði hann um ára-
bil við fyrirtæki föður síns og um
fímm ára skeið var hann skrifstofu-
stjóri Iðnlánasjóðs.
Okkar kynni hófust þegar hann
réðist til sérfræðistarfa í Hagdeild
Landsbankans í janúar 1981. Okkur
er það minnisstætt hve Böðvar var
óvenju fljótur að tileinka sér starf-
ið. Það gerði hann bæði fljótt og
vel. Hann var frá upphafí einn af
hæfustu sérfræðingum bankans.
Hann var skipaður forstöðumaður
í Hagdeild bankans í október 1986,
en jafnframt hagdeildarstörfum var
_____________________________19
hann framkvæmdastjóri Útflutn-
ingslánasjóðs síðustu árin.
Böðvar var einstaklega dagfars-
prúður og þægilegur í allri um-
gengni. Við sáum hann aldrei skipta
skapi. Það var sama hvað á bját-
aði. Alltaf gekk Böðvar hreint til
verks og leysti verkefnin svo fljótt
og vel af hendi að unun var á að
horfa. Störf sín vann hann af slíkri
hógværð og smekkvísi, að enda
þótt starfíð væri krefjandi þá hafði
maður ekki á tilfínningunni að hann
væri nokkum tíma önnum kafínn.
í önnum dagsins gaf hann sér allt-
af tíma til þess að slá á létta strengi. ‘
Hans létta lundarfar og mannkostir
gerðu það að verkum að öllum leið
vel í návist hans. Hann átti afar
auðvelt með að sjá bæði broslegar
og bjartar hliðar á hveiju máli, og
miðlaði þeim kostum sínum óspart
til starfsféiaganna.
Við kveðjum nú góðan dreng og
emm þákklát fyrir að hafa átt Böð-
var að félaga og vini. Ásu og Amari
litla flytjum við hjartans bestu
kveðjur.
Nánasta samstarfsfólk
í Landsbankanum.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm biaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar. .
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
f
^^"///////////. ''"/inn, ■
•■'////////!'■ —iilll/h ""
^^-«///////. ■■/./„/'//'% /.'^k
-«/////// -/,//,/.' l.lll. . 1
^►,'///////// -////, ',,///,
^to/lllllllllll -,////' ""
sgas’ -////// "' -"/"//.*
BBfc ,////'//'" .'/"•->
Kosningahappdrættið
stendur straum af
kosningabaráttunni
Sjálfstæðismenn, greiðum heimsenda gíróseðla.
Skrifstofa happdrættisins í Valhöll er opin alla daga
kl. 09.00-22.00. Sími 82900
Dregið annað kvöld
vinningar að verðmæti kr. 3.998.160
3 fólksbifreiðir
34 glæsilegir ferðavinningar
únaðarvinningar
NDUM SAMAN UM D-L