Morgunblaðið - 28.04.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
23
menn Framsóknarflokksins frá
slíkum hugrenningum. Aðild Sjálf-
stæðisflokksins að minnihlutastjóm
er fraeðilegur möguleikur, eins og
stundum er sagt, en naumast raun-
hæfur nema menn séu að hugsa
um að kjósa á ný í haust eða vetur
til að skýra línumar í stjómmálun-
um.
Albert o g Steingrímur?
Ríkisstjóm án Sjálfstæðisflokks-
ins yrði að styðjast við a.m.k. fjóra
flokka. Ef Borgaraflokkurinn er
ekki inni í myndinni yrði þar um
að ræða stjóm Alþýðuflokksins,
Framsóknarflokksins, Alþýðu-
bandalagsins og Kvennalistans sem
nyti stuðnings 38 þingmanna (og
jafnvel 39 ef Stefán Valgeirsson
væri með). Þennan möguleika ættu
menn ekki að útiloka með öllu, en
á þessari stundu er hann fjarlægur.
í fyrsta lagi yrði líklega erfítt fyrir
slíka stjóm að starfa vegna sífelldra
málamiðlana. Þó em dæmi þess
erlendis frá (Danmörk) að farsælt
samstarf sé innan fjórflokkastjóm-
ar. í öðru lagi er samstarf fram-
sóknarmanna og alþýðuflokks-
manna heldur ólíkiegt svo sem fyrr
var nefnt og það vegur þyngra en
hitt atriðið.
Borgaraflokkurinn hefur naum-
ast verið nefndur í þessum vanga-
velfum. Ekki er þó óskynsamlegt
að ætla að Albert Guðmundsson
hafí áhuga á þátttöku í nýrri ríkis-
stjóm og þá án Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann gaf þetta raunar í skyn
sjálfur í sjónvarpinu kosninganótt-
ina. Albert væri í nokkuð sterkri
stöðu ef hann myndaði „blokk“ með
Steingrími Hermannssyni en sam-
anlagt hafa þeir 20 þingmenn að
baki sér. Þeir gætu reynt að mynda
sfjóm í sameiningu á þeim gmnd-
velli og kynnu að freista Alþýðu-
bandalagsins og Kvennalistans.
Líkur á slíku samstarfí em þó ekki
sterkar um þessar mundir.
Af þessari samantekt er ljóst að
þótt ýmsir kostir séu fyrir hendi
varðandi stjómarmyndun er enginn
þeirra auðveldur. Fyrir kosningar
bentu skoðanakannanir til þess að
meirihluti kjósenda vildi ýmist
óbreytt stjómarsamstarf eða sam-
starf Alþýðuflokksins og Sjálfstæð-
isflokksins. Þeir möguleikar em nú
útilokaður eftir kosningaúrslitin,
þar sem álíka sterkir smáflokkar
einkenna skipan Alþingis. Það virð-
ist því ástæða til að ætla að stjóm-
armyndun geti tekið þó nokkum
tíma og ýmsar sviptingar kunni að
vera framundan í stjómmálaheim-
inum.
Enginn vafí er á því að framboðs
nýs hægri flokks, Borgaraflokks-
ins, er meginskýringin á vemlega
minna fylgi Sjálfstæðisflokksins nú
en áður.
Leikur að tölum
Samtök um kvennalista, sem nú
bjóða fram í annað skipti, fengu
10,1% kjörfylgi. Samtökin vinna
góðan sigur, miðað við kosningar
1983 (5,5%).
Fylgi Kvennalistans kemur úr
ýmsum áttum. Ef við leikum okkar
hinsvegar að tölum er skondið að
veita því athygli, að sameiginlegt
fylgi Alþýðubandalags (13,3%) og
Kvennalista (10,1%) nú,23,3%, er
svo til það sama og Alþýðubanda-
lagsins eins þegar það var mest,
1978, tæp 23%(22,9%).
Borgaraflokkurinn, nýtt hægra
framboð, fær 10,9% kjörfylgi nú.
Lýðveldisflokkurinn, skammlífur
hægri flokkur, sem bauð fram
1953, fékk 3,3% kjörfylgi.
Ef við leikum okkur enn að tölum
er sameiginlegt fylgi Borgara-
flokks og Sjálfstæðisflokks í
nýafstöðnum alþingiskosningum,
(27,8% plús 10,1%) 37,9%. í þrett-
án þingkosningum 1946-1983
hefur Sjálfstæðisflokkurinn átta
sinnum haft meira kjörfylgi einn
en þessir tveir framboðsflokkar fá
sameiginlega nú.
-----sf.
LANDSSAMBAND
HJÁLPARSVilTASKÁTA
SPARISJÓDUR VÉLSTJÓRA
hefurafstárhug styrkt happárættíð
- HARÐSNUNAR SVEITIR TIL HJALPAR ÞER OG ÞINUM.
r<:WWÆ WMÉLi Vr1 Á
SUuJU-A Jj£jW Ji
Með einstakri samvinnu björgunarsveita og
þjóðarinnar hefur miklum fjölda mannslífa verið
bjargað.
Fyrir stuðning þinn og þinna líka eru harðsnúnar og
vel búnar hjálparsveitir í viðbragðsstöðu um land
allt, hvenær sem hjálparbeiðni berst.
Að kaupa miða í stórhappdrætti okkar er ein leið til
framlags. Það munar um miðann þinn - og þig
munar vissulega um hvem og einn af þeim 265
stórvinningum sem í pottinum eru - mundu enginn
veit heppni sína.
Við látum vinningshafa vita um vinninginn.
t82
jOwl0Opt)
HELGARRElSUfí
fyrfrZtilHamborgar
með Arnarf/ugi
FIATUN045S
afruglarar
Jð?uttektfrá
He,m"istækjum hf.
frá