Morgunblaðið - 28.04.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
25
PÉTUR
VALDIMARSSON:
Sýnir að fólk
vill breytingar
„ÉG ER mjög
ánægður með
úrslit kosn-
inganna. Þau
sýna að fólk
vill breyting-
ar í stjórn-
málum
landsins. Við í
Þjóðarflokkn-
um erum
einnig mjög
ánægð með okkar hlut,“ sagði
Pétur Valdimarsson, formaður
Þjóðarflokksins og efsti maður á
lista hans í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Flokkurinn fékk
1,3% atkvæða á landinu öllu, en
í þeim kjördæmum sem hann
bauð fram í fékk hann að meðal-
tali 4 '/2% atkvæða.
Pétur sagði að Þjóðarflokkurinn
hefði reiknað með að koma inn ein-
um manni, og það hefði verið rétt
mat, því litlu hefði munað að það
tækist í Vestfjarðakjördæmi. Flokk-
urinn hefði unnið mikinn sigur,
þegar litað væri til þess hvað fram-
boð hefði verið ákveðið seint. Þá
hefði framboð hans orðið til þess
að fá fram umræður um byggða-
mál í kosningabaráttunni, í staðinn
fyrir umræður um efnahagsmál og
störf ríkisstjómarinnar, eins og hin-
ir flokkamir hefðu stefnt að.
„Ég vil þakka öllum þeim sem
unnu með okkur í Þjóðarflokknum.
Það er auðséð á niðurstöðum kosn-
inganna að fólk er óánægt með
störf gömlu flokkanna, enda hafa
þeir ekki starfað á þeim lýðræðis-
grundvelli sem fólk vill," sagði
Pétur.
MATTHÍASÁ.
MATHIESEN:
Þrengingar
flokksins
komu niður
á fylginu
„ÚRSLITIN
urðu mér
vissulega
mikil vo_n-
brigði. Ég
hafði vonast
til þess að
okkur tækist
að tryggja
fjórða manni
listans sæti á
Alþingi. Því
miður varð raunin önnur og við
verðum að sætta okkur við þenn-
an ósigur. Engu að síður verður
Sjálfstæðisflokkurinn sterkasta
stjórnmálaaflið í Reykjaneskjör-
dæmi, hér eftir sem hingað til,“
sagði Matthías Á. Mathiesen, ut-
anríkisráðherra og efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi.
„Skýringamir á óförunum em í
fyrsta lagi framboð Borgaraflokks-
ins sem tókst að höfða til ákveðins
hóps kjósenda sem jafnan hefur
fylgt Sjálfstæðisflokknum að mál-
um,“ sagði Matthías. „Samanlagt
hafa þessir tveir flokkar svipað fylgi
og Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft
í kjördæminu og við vonuðumst til
í upphafi kosningabaráttunnar að
fá nú. Þá má segja að Framsóknar-
flokknum hafi tekist að fá til sín
hóp kjósenda í kjördæminu sem
vildi tryggja forsætisráðherra ör-
ugga kosningu.
Það er alveg ljóst að þrengingar
Sjálfstæðisflokksins hafa komið
niður á fylgi hans í kosningunum,
erfiðleikar sem náðu hámarki með
klofningsframboði Borgaraflokks-
ins. Allt það mál leysti úr læðingi
geysilegan tilfinningahita og það
dró ekki eins hratt úr þessum til-
finningum og menn áttu von á og
þær fleyttu því Borgaraflokknum
svona langt í kosningunum.
Verkefni sjálfstæðismanna á
næstunni er fyrst og fremst að
treysta innviði flokksins. Við verð-
um að skoða allan okkar málatil-
búnað, öll okkar vinnubrögð í því
skyni að Sjálfstæðisflokkurinn geti
á ný orðið það afl sem hann var
fyrir þessar kosningar.
Ég vil að endingu nota tækifærið
og þakka stuðningsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi ötult starf og fyrir traust
þeirra og trúnað," sagði Matthías.
PÁLMIJÓNSSON:
Klofnings-
framboð
veigamesta
ástæðan
„ÞAÐ blasir
við að Sjálf-
stæðisflokk-
urinn varð
fyrir miklum
áföllum í
kosningunum,
bæði í Norð-
urlandskjör-
dæmi vestra
og öðrum
kjördæmum
landsins. Veigamesta ástæðan er
vitaskuld klofningsframboð
Borgaraflokksins, sem væntan-
lega hefur dregið til sín mest
fylgi frá Sjálfstæðisflokknum,"
sagði Pálmi Jónsson, efsti maður
Sjálfstæðisflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra.
Pálmi sagði einnig: „Þessi úrslit
eru vitaskuld alvarleg, ekki síst
fyrir það hvað þau veikja möguleik-
ann á traustu stjómarfari í landinu
á því kjörtímabili sem nú er að
hefjast. Það dugar hins vegar ekki
að horfa í gaupnir sér. Við sjálf-
stæðismenn munum þegar hefja
okkar starf, bæði innan flokksins
og í málefnabaráttunni og treysta
þannig stöðu okkar í komandi tíð.
Þótt úrslitin í Norðurlandi vestra
séu með þeim hætti sem raun ber
vitni, starfaði sjálfstæðisfólk í kjör-
dæminu af miklum áhuga og
ósérplægni í kosningabaráttunni.
Ifyrir allt þetta starf vil ég þakka
innilega, um leið og ég þakka öllum
þeim sem studdu okkur á kjör-
degi,“ sagði Pálmi.
FRIÐJÓN
ÞÓRÐARSON:
Mikið áfall
fyrir
flokkinn og
Vesturland
„ÚRSLIT al-
þingiskosn-
inganna eru
mikið áfall
fyrir flokkinn
og Vestur-
land,“ sagði
Friðjón Þórð-
arson, efsti
maður á lista
Sjálfstæðis-
flokksins í
Vesturlandskjördæmi.
„í kosningunum vorið 1983 náði
Sjáifstæðisflokkurinn besta árangri
sem náðst hafði á Vesturlandi í ald-
arfjórðung," sagði Friðjón. „Kosn-
ingahorfur á þessu vori þóttu mjög
vænlegar en þar urðu snögg um-
skipti þegar þau tíðindi gerðust við
upphaf kosningabaráttunnar sem
leiddu til stofnunar Borgaraflokks-
ins. Það var ljóst að framboð af
hálfu slíks flokks, með þeirri skipan
á framboðslista sem raun varð á,
myndi meðal annars höggva inn í
raðir okkar traustustu kjósenda.
Það er mjög slæmt að missa svo
góðan og traustan fulltrúa, eins og
Valdimar Indriðason er, út af þingi.
Hann gjörþekkir atvinnumál til
lands og sjávar og önnur veiga-
mestu mál í héraði. Þetta er mér
efst í huga. Að öðru leyti byggjast
niðurstöður kosninganna sjálfsagt
á ýmsum forsendum. Ég bendi á
að samkvæmt eldri löggjöf um út-
hlutun þingsæta, værum við Valdi-
mar báðir á þingi enn. Má furðulegt
heita ef núgildandi kosningalög
verða lengi látin standa óbreytt, til
þess að rugla um fyrir fólki og of-
bjóða réttlætisvitund þess.
Ég þakka öllum sem unnu mikið
og gott starf fyrir okkur á Vestur-
landi og vona að þeim gangi allt í
haginn," sagði Friðjón.
SVERRIR
HERMANNSSON:
Að halda
tveimur
mönnum er
stórsigur í
tapinu
„ÞESSAR
sérstöku að-
stæður, sem
urðu þess m.a.
valdandi að
Sjálfstæðis-
flokkurinn
klofnaði, dró
mjög mátt úr
allri kosn-
ingabarát-
tunni,“ sagði
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Austur-
landskjördæmi.
„Þrátt fyrir rúmlega 8% fylgistap
okkar á Austurlandi, sem reyndar
er í minna lagi yfir landið, tókst
okkur að halda tveimur mönnum.
Það er auðvitað stórsigur í tapinu,“
sagði Sverrir. „Við stóðum höllum
fæti í kosningabaráttunni, meðal
annars vegna ákveðinnar umræðu
um byggðastefnu." Hann sagði að
þar væru viss vandamál á ferðinni
og flokkurinn þyrfti að taka sig á
í byggðapólitíkinni.
Sverrir sagði að kosningabarátt-
an hefði verfið erfið og sú leiðinleg-
asta sem hann hefði tekið þátt í:
„Enda lá illa á mér lengst af.“
Hann sagði að ríkisstjómin þyrfti
ekki svo mjög að kvarta yfir úrslit-
unum á Austurlandi, ríkisstjómar-
flokkamir hefðu haldið sínu
nokkurn veginn.
HALLDÓR BLÖNDAL:
Tek nærri
mér að Björn
skyldi ekki
ná kjöri
„ÉG vil fyrst
segja það að
ég tek mjög
nærri mér að
Björn Dag-
bjartsson
skyldi ekki ná
endurkjöri.
Við höfum átt
gott samstarf
og þekking
hans á mál-
efnum sjávarútvegsins var mjög
gagnleg fyrir þingflokkinn, svo
að maður gat vænst þess að það
yrði gott vegamesti í kosningun-
um. Þá vil ég nota þetta tækifæri
til að þakka þeim sem unnu vel
að kosningu Sjálfstæðisflokks-
ins,“ sagði Halldór Blöndal, efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Halldór sagði einnig: „Ég
rek tap Sjálfstæðisflokksins til þess
að síendurteknar uppákomur með
Albert Guðmundsson hafa valdið
þreytu. Og þegar hann svo kaus
að stofna nýjan stjórnmálaflokk,
skömmu fyrir kosningar, var ekki
við góðu að búast. í mínu kjördæmi
kom þetta þannig fram að þeir sem
ella hefðu kosið Sjálfstæðisflokkinn
kusu margir hveijir að fara á sveif
með Stefáni Valgeirssyni, sem skýr-
ir góðan kosningasigur hans. Þetta
fólk var ekki með þessu að taka
undir með Albert Guðmundssyni,
heldur að veita okkur áminningu
um að standa fastar saman og bet-
ur um okkar mál en því fannst við
hafa gert núna.“
MATTHÍAS
BJARNASON:
Eftir atvik-
um ánægður
með mitt
kjördæmi
„EFTIR at-
vikum er ég
ánægður með
úrslitin í mínu
kjördæmi, þó
ég hefði kosið
að þau væru
betri,“ sagði
Matthías
Bjarnason,
samgöngu- og
viðskiptaráð-
herra og efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi.
„Hins vegar er ég mjög óánægð-
ur með úrslitin fyrir Sjálfstæðis-
flokknum á landinu í heild," sagði
Matthías. „Það er eins og fólk ætl-
ist til þess að við þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins vinnum og vinnum
og varpi ábyrgðinni á okkur en
ekki aðra þingmenn. Þegar vanda-
mál koma upp eða leysa þarf önnur
mál er eins og menn snúi sér frek-
ar til okkar. Ef ekki tekst leysa
málin þá er okkur kennt um, en ef
það tekst þá þarf að þakka öllum.
Ég er að verða dálítið þreyttur á
þessu. Það er sjálfsagt að vinna
eftir bestu getu, og njóta síðan eða
gjalda sjálfur verka sinna.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka þeim fjölmörgu sem unnu
fyrir okkur í kosningunum. Þessi
árangur hefði aldrei náðst, nema
vegna þessarar miklu vinnu. Þá
má geta þess að mjög góð sam-
vinna var á milli okkar frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu," sagði Matthías.
STEFÁN
VALGEIRSSON:
Átti alltaf
von á að ná
kjori
„FYLGI J-list-
ans hér i
kjördæminu
kom mér ekki
á óvart og
kosningaúr-
slitin hvað
okkur varðar
voru því í
samræmi við
það sem ég
hafði reiknað
með“, sagði Stefán Valgeirsson,
efsti maður á lista Samtaka um
jafnrétti og félagshyggju í Norð-
urlandskjördæmi eystra. Listinn
hlaut 1.892 atkvæði og einn mann
kjörinn.
Stefán sagði að um 1.100 manns
hefðu skorað á sig að fara í sérfram-
boð á sínum tíma og hann hefði
því talið sig nokkuð öruggan um
að ná kjöri, þrátt fyrir fjölda
smærri framboða. „Ég hafði mjög
gott fólk með mér og sterkan kjama
víðast hvar í kjördæminu. Við fund-
um að við höfðum hljómgrunn hjá
fólki og ég átti því alltaf von á að
ná kjöri."
Aðspurður um þann möguleika
að ganga aftur til liðs við Fram-
sóknarflokkinn sagði Stefán m.a.:
„Ég var ekki einn í þessu framboði
og auðvitað mun ég hafa samráð
við mitt fólk og við munum meta
hvert mál fyrir sig. Á þingi verð
ég ekki bundinn af neinu öðru en
sannfæringu minni og hef reyndar
aldrei verið bundinn af öðru fram
til þessa. Á því verður enginn breyt-
ing.“
Um kosningaúrslitin almennt
sagði Stefán m.a.: „Útreið Sjáf-
stæðisflokksins er athyglisverð og
ég tel að formaður flokksins hafi
þar fengið áfellisdóm varðandi upp-
gjör þeirra Alberts. Það er einnig
athyglisvert að Alþýðubandalagið,
sem að var í stjómarandstöðu, skuli
hafa goldið afhroð í þessum kosn-
ingum. Ég sé ekki annað en að
báðir þessir flokkar verði að fara
að skoða sín innri mál í ljósi þess-.
ara kosningaúrslita."
PÉTUR
GUÐ JÓNSSQN:
*
Islenska
flokka-
kerfið hefur
riðlast
„ÍSLENSKA
flokkakerfið
hefur riðlast,
það er mér
efst í huga,“
sagði Pétur
Guðjónsson,
formaður
Flokks
mannsins og
efsti maður á
lista hans í
Reykjavík. Flokkur mannsins
fékk 2.431 atkvæði í kosningun-
um, eða 1,6% atkvæða, en engan
mann kjörinn á þing.
Pétur sagði einnig: „í kosningun-
um töpuðu kantamir í íslenskum
stjórnmálum, Sjálfstæðisflokkur og
AÍþýðubandalag. Þar af leiðandi
hafa margir kosið Framsóknar-
flokkinn vegna hræðslu við miklar
breytingar. Úrslitin em líka stað-
festing á uppreisn fólks gegn
ríkjandi kerfi. Þeir sem eru reiðir
hafa kosið Borgaraflokkinn og þeir
sem vilja láta óánægju sína í ljós,
en vilja ekki gera of miklar breyt-
ingar, hafa kosið Kvennalistann,
talið að þær geri ekki mikið af sér.
Það er athyglisvert að Flokkur
mannsins fær 2.431 atkvæði á
landinu og er ekki minnsti flokkur-
inn, þrjú framboð fengu færri
atkvæði. Að okkar mati var gíflur-
lega jákvæður andi í okkar garð,
sérstaklega síðustu dagana fyrir
kosningar, og eigum við miklu meiri
stuðning en úrslitin gefa til kynna.
Þessu fólki er hægt að skipta í
tvennt. Fólk sagði að ómögulegt
væri að kasta atkvæði sínu á glæ
með þvi að kjósa okkur, því ég
kæmist ekki inn. En aðrir sögðu
að Flokkur mannsins fengi svo
mörg atkvæði að ómgulegt væri að
hinir flokkarnir fengju ekki neitt.
Það voru því margir svekktir þegar
úrslitin lágu fyrir, höfðu talið víst
að ég væri inni,“ sagði Pétur Guð-
jónsson.