Morgunblaðið - 28.04.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
HVAÐ SEGJA ÞEIR UM ÚRSUT KOSNINGANNA ?
21 nýr þingmaður
Miklar breytingar urðu á skipan þingmanna við kosningamar
á laugardaginn. Alls kemur 21 nýr þingmaður inn. Nýju
þingmennimir skiptast misjafnlega milli fiokka, en flestir em á
hinum nýja lista Borgaraflokksins eða 6 talsins. Fjórir nýir þing-
menn em á listum Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Kvenna-
lista, tveir af D-lista og einn af G-lista. Af þessum þingmönnum
hafa fjórir áður verið kjömir á þing; þeir Ámi Gunnarsson og
Sighvatur Björgvinsson, Alþýðuflokki, Guðmundur H. Garðars
son, Sjálfstæðisflokki og Guðmundur G. Þórarinssson, Framsókn-
arflokki. Fimm hafa komið inn á þing í skemmri tíma sem
varamenn. Það em Geir H. Haarde, Sjálfstæðisflokki, Óli Þ.
Guðbjartssoh, Borgaraflokki, sem sat sem varamaður á síðasta
kjörtímabili fýrir Sjálfstæðisflokkinn, Málmfríður Sigurðardóttir
af Kvennalista, Guðni Ágústsson, Framsóknarflokki og Margrét
S. Frímannsdóttir, Alþýðubandalagi. Morgunblaðið ræddi við
þetta fólk í gær og fara viðtölin hér á eftir:
JÓN SÆMUNDUR
SIGURJÓNSSON:
Úrbæturí
hafnarmál-
um brýnar
„ÉG hlakka til
að takast á við
þingroennsk-
una og vil
koma á fram-
færi innilegu
þakklæti til
stuðnings-
manna og
nánustu sam-
starfsmanna
minna,“ sagði
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
þingmaður Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra.
Jón Sæmundur kvaðst afar án-
ægður með að jafnaðarmenn í
kjördæminu hefðu sameinast á ný
undir merki Alþýðuflokksins. „Ég
hlýt að leggja mesta áherslu á það
í störfum mínum á þingi að úrbæt-
ur verði gerðar í hafnarmálum
kjördæmisins og öðrum þeim mál-
um sem lúta að samgöngum. Að
öðru Ieyti legg ég að sjálfsögðu
höfuðáherslu á þau baráttumál sem
Alþýðuflokkurinn hefur sett á odd-
inn."
Jón Sæmundur Siguijónsson er
45 ára hagfræðingur og hefur starf-
að hjá heilbrigðis- og tryggingar-
málaráðuneytinu. Hann er kvæntur
Birgit Henriksen og eiga þau hjón
19 ára dóttur, Ragnheiði.
INGIBJÖRN
ALBERTSSON:
Líst vel á
nýjastarfið
„MÉR líst
ljómandi vel á
nýja starfið
og er ákaf-
lega þakklát-
ur þeim sem
sýndu mér
þetta traust
og störfuðu
fyrir mig og
Borgara-
flokkinn fyrir
kosningamar,“ sagði Ingi Bjöm
Albertsson, þingmaður Borgara-
flokksins í Vesturlandskjör-
dæmi.
Ingi Bjöm sagði að miðað við
skoðanakannanir fyrir kosningam-
ar hefði fylgi Borgaraflokksins ekki
komið sér á óvart. „Mér líst ljóm-
andi vel á að starfa við hlið fíiður
míns á Alþingi, enda er hann mjög
hæfur maður til setu þar. Ég ætla
að nota tímann fram að þingsetn-
ingu til að kynna mér betur mál
Vesturlandskjördæmis, enda mun
ég setja hagsmuni kjördæmisins á
oddinn í störfum mínum á þingi.
Þá þarf ég einnig að velta því fyrir
mér hvort ég held áfram störfum
mínum hjá heildverslun Alberts
Guðmundssonar," sagði Ingi Bjöm.
Ingi Bjöm Albertsson er 34 ára
gamall, kvæntur Magdalenu Krist-
insdóttur og eiga þau sex börn á
aldrinum eins mánaðar til ellefu
ára.
JÚLÍUS SÓLNES:
Fólk vill
nýtt flokka-
skipulag
„ÉG er lítið
farinn að
hugsa um
þessa niður-
stöðu og nýtt
hlutverk mitt.
Þetta eru
miklar breyt-
ingar á
högum
mínum, en ég
hef verulegan
áhuga á þjóðmálum og hlakka
til að takast á við verkefnin, sem
bíða mín,“ sagði Júlíus Sólnes,
þingmaður Borgaraflokksins.
„Eg er ánægður með árangur
Borgaraflokksins. Við vissum í raun
ekki hveiju við áttum von á, þrátt
fyrir vísbendingar skoðanakann-
ana, þar sem okkur vantaði
grunnfylgi eins og aðra flokka til
að byggja á. Það er stórkostlegt
að ná yfír 10% fylgi og fá 7 þing-
menn. Við erum þvi mjög ánægðir
með árangurinn. Við erum orðin
það stór flokkur, að ekki verður
lengur hægt að kalla okkur flokks-
brot. Arangur okkar er talandi
dæmi um breytta tíma, fólkið í
landinu vill nýtt flokkaskipulag,"
sagði Júlíus Sólnes.
JÓN SIGURÐSSON:
Hefði kosið
á ná fjórum
mönnum inn
„ALÞÝÐU-
FLOKKUR-
INN fékk
allgóða kosn-
ingu í
Reykjavík.
Hann jók
fylgi sitt úr
11% í um 16%
milli alþingis-
kosninga og
við síðustu
borgarstjómarkosningar var
fylgi hans um 10%. Fylgisaukn-
ingin er því veruleg, þó skoðana-
kannanir hafi um tíma bent til
þess, að hún gæti orðið meiri,“
sagði Jón Sigurðsson, hagfræð-
ingur og þingmaður Alþýðu-
flokksinsins.
„Það dró til mikilla tíðinda í
marz, sem breyttu nokkru um fylgi
flokksins, en ég tel að Alþýðuflokk-
urinn hafi komizt betur frá þessu
róti, en hinir „gömlu“ flokkarnir.
Hvað sjálfan mig varðar, er ég
ánægður með árangurinn, en hefði
þó kosið að ná fjórum mönnum inn
í Reykjavík.
Árangurinn helgast fyrst og
fremst sterkri málefnastöðu og því,
að flokknum hefur lánazt að breyt-
ast með breyttum tímum, betur en
hinum „gömlu" flokkunum. Það er
ekki lengur hið daglega þras um
efnahagsmál og tekjuskiptinguna,
sem sem höfðar til fólksins," sagði
Jón Sigurðsson.
GUÐMUNDURG.
ÞÓRARINSSON:
Glæsileg
útkoma
„MÉR lízt vel
á að koma inn
á þing að nýju
og er mjög
ánægður með
úrslitin fyrir
Framsóknar-
flokkinn.
Útkoman á
suðvestur
horni landsins
er glæsileg og
sigur Steingríms Hermannsson-
ar i Reykjaneskjördæmi er nær
einsdæmi. Hann fer úr öruggu
sæti í kjördæmi, sem ekki átti
mann og skilar tveimur mönnum
inn. Það er feiknarlegur per-
sónulegur sigur,“ sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson,
þingmaður Framsóknarflokks-
ins.
„Hins vegar er ljóst eftir þessar
kosningar að nauðsynlegt er að
endurskoða reiknireglur kosninga-
laganna. Nú lítur dæmið þannig út,
að ég, sem eini þingmaður Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík, hef á
bak við mig um 6.000 atkvæði eða
miklu meira en nokkur annar þing-
maður. D-listinn er með um þrisvar
sinnum fleiri atakvæði en við í
Reykjavík, en með 6 sinnum fleiri
þingmenn. Egill Jónsson fór inn
fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Austur-
landi á 600 atkvæðum eða 10
sinnum færri atkvæðum en eru að
baki mér.
Þrátt fyrir fremur óhagstæðar
reiknireglur, er ég nokkuð ánægður
með árangur flokksins í heild og
úrslitin eru í raun sigur fyrir stefnu
ríkisstjómarinnar á liðnu kjörtíma-
bili. Séu atkvæði Stefáns Valgeirs-
sonar í Norðurlandi eystra talin
með, hefur Framsóknarflokkurinn
nú yfir 20% fylgi. Kratar hafa í
raun ekkert unnið á, þvi nú hafa
þeir aðeins náð því fylgi, sem þeir
höfðu áður en Bandalag jafnaðar-
manna klofnaði út út flokknum.
Borgaraflokkurinn og Kvennalist-
inn komu talsvert sterkir út, en á
öðrum forsendum," sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson.
AÐALHEIÐUR BJARN-
FREÐSDÓTTIR:
Mun ganga
að þessu
eins og
hverri ann-
arri vinnu
„ENN sem
komið er hef
ég litla
reynslu af
hinu nýja
starfi minu.
Ég hef ekkert
breytzt og
mun reyna
eftir föngum
að vinna
áfram fyrir
það fólk, sem ég hef til þessa
unnið fyrir,“ sagði Aðalheiður
Bjamfreðsdóttir, þingmaður
Borgaraflokksins.
„Við vissum fyrir kosningar að
við höfðum góðan byr, en úrslitin
eru engu að síður mjög ánægjuleg.
Ég mun ganga að þingstörfum eins
og hverri annarri vinnu. Það tekur
tíma að koma sér inn í málin, en
ég hef sumarið til þess,“ sagði Aðal-
heiður Bjamfreðsdóttir.
GUÐMUNDUR H.
GARÐARSSON:
Flokkurinn
nær sér vel á
strik á ný
„ÉG er vissu-
Íega ánægður
með það að
hafa verið
kjörinn á þing
á ný fyrir
Reykjavík.
Úrslitin em
hins vegar
slæm fyrir
Sjálfstæðis-
flokkinn, en
það hefur komið fyrir áður. Ég
er viss um að flokkurinn mun
ná sér á strik á ný,“ sagði Guð-
mundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur og þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
„Sjálfstæðisflokkurinn á gífur-
lega sterk ítök í íslenzku þjóðfélagi
og ég higg að mörgum fleiri en
þeim, sem kusu flokkinn, sé brugð-
ið eftir þessi úrslit og horfí með
kvíða til framtíðarinnar.
Sem þingmaður fyrir Reykjavík
mun ég leggja áherzlu á málefni
borgarinnar og landsins í heild. Ég
mun leggja áherzlu á að varðveita
og styrkja atvinnustarfsemi í
landinu og það, sem getur orðið til
heilla á því sviði. Jafnframt mun
ég vinna að því að breyta og endur-
skoða lífeyristryggingakerfíð, bæði
almennar tryggingar og lífeyris-
sjóðina, þannig að allir hafi að því
loknu sama rétt til lífeyris,“ sagði
Guðmundur H. Garðarsson.
GEIRH. HAARDE:
Aðförin að
flokknum
hefur að
mestu
heppnazt
„ÉG er án-
ægður með að
hafa náð kjöri
sem þingmað-
ur, en það er
í sjálfu sér
aukaatrtiði.
Útkoma Sjálf-
stæðisflokks-
ins var miklu
verri en við
vonuðumst til.
Aðstaðan var erfið og aðförin
að flokknum hefur að mildu leyti
heppnazt," sagði Geir H. Haarde,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
„þetta er hins vegar ekki varan-
legt ástand, flokkurinn er miklu
stærri en niðurstöður kosninganna
gefa til kynna og hann á eftir að
ná sér upp aftur, á því er enginn
vafi. Á Alþingi verð ég hluti af liðs-
heildinni og mun leggja mitt að
mörkum, en of snemmt er að tala
um einhver einstök mál,“ sagði
Geir H. Haarde.
MÁLMFRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR:
Mál kvenna
og barna
efst í huga
„ÉG vonaðist
auðvitað eftir
að ná kjöri, en
róðurinn var
sérstaklega
þungur í
Norðurlands-
kjördæmi
eystra þar
sem níu listar
voru i fram-
boði,“ sagði
Málmfríður Sigurðardóttir, þing-
maður kvennalistans i kjördæm-
inu.
„Málefni kvenna og bama eru
mér að sjálfsögðu hugleiknust og
þar get ég ekki nefnt eitt mál öðru
fremur. Það verður að líta á þessi
mál í víðara samhengi, því ef bæta
skal hag kvenna og bama kostar
það fé og því verður að vinna vel
að efnahagsmálum. Varðandi
stjómarmyndun get ég ekkert full-
yrt sem stendur, við ræðum við alla
þá sem óska eftir að ræða við okk-
ur og metum síðan stöðuna."
Málmfriður Sigurðardóttir er 60
ára og hefur starfað sem matráðs-
kona við Kristnesspítalann á
Akureyri. Hún er ekkja og sjö bama
móðir.