Morgunblaðið - 28.04.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987
Danmörk:
Mikil and-
staða gegn
fjölgun
flótta-
manna
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKILLAR andstöðu gætir með-
al Dana við stefnuna í málefnum
flóttamanna. Jafnvel þótt veru-
lega hafi dregið úr flóttamanna-
straumnum til landsins, frá þvi
að lagaskorður voru settar við
hontun í haust, eru 46% þjóðar-
innar þeirrar skoðunar, að of
mörgum flóttamönnum sé hleypt
í gegn. Aðeins 41% telur, að
fjöldi þeirra sé hæfilegur og 12%
telja, að Danmörk geti tekið við
fleiri flóttamönnum.
Nú er tekið við u.þ.b. 150 flótta-
mönnum á mánuði, en áður en
reglumar voru hertar, voru þeir
2-300 á dag.
Andstaðan er mest meðal kjós-
enda Jafnaðarmannaflokksins og
ríkisstjómarflokkanna. Um 50%
jafnaðarmanna telja, að of mörgum
flóttamönnum sé hleypt inn I landið.
Anker Jöigensen, formaður Jafnað-
armannaflokksins, segir f viðtali við
Politiken, að hann sé vonsvikinn
með þessa afstöðu flokksmann-
anna. Þetta sé þó skiljanlegt f ljósi
þess, að margir þeirra séu illa sett-
ir og óttist, að flóttamannastraum-
urinn verði til þess að kjör
heimamanna versni enn meir en
orðið er.
Reuter
Svissneska lögreglan skýítur táragasi að fólki, sem kom saman í Bern til að mótmæla notkun kjarn-
orku. Um sjö þúsund menn komu saman í höfuðborg Sviss af tilefni þess að ár var liðið frá kjarnorku-
slysinu í Chemobyl.
Sviss:
Taragasi beitt í höfuðborginm
Bem, frá önnu Bjamadóttur, fréttaritara 1
LÖGREGLAN i Bem beitti
táragasi og skaut gúmmíkúlum
á þátttakendur i mótmælafundi
gegn kjarnorku i miðbæ höfuð-
borgar Sviss á laugardag þegar
hluti fundarmanna ætlaði að fara
aðra leið í kröfugöngu en yfir-
völd höfðu veitt heimild fyrir.
Átján manns slösuðust og fjöldi
fólks, sem var i bænum að spóka
sig, varð fyrir óþægindum vegna
átakanna. Nokkrar skemmdir
urðu á húseignum.
Mótmælafundurinn var haldinn í
tilefni af að eitt ár er liðið frá
Chemobyl-slysinu. Um 10.000
manns sóttu hann. Hluti fundar-
manna reyndi að fara í kröfugöngu
eftir aðalverslunargötu borgarinnar
en lögreglan kom í veg fyrir það
og beitti táragasi án viðvöranar.
Heimild til að ganga þessa leið var
ekki veitt vegna ótta við umferðar-
örtröð í miðbænum. Fundarmenn
vora hraktir aftur inn á torgið fyrir
framan svissneska þinghúsið þar
sem fundurinn var haldinn. Þar
grýttu nokkrir flöskum og öðra til-
tækilegu í lögregluvarðsveit og
fundinum var lokið í skyndi eftir
að lögreglan greip aftur til tára-
gass.
Lögreglan og kjamorkuandstæð-
ingar saka nú hver annan um
upptökin. Lögreglan er sökuð um
að hafa bragðist helst til illa við
og aðstandendur fundarins hafa
farið fram á að lögreglustjórinn í
Bem segi af sér.
Tékkóslóvakía:
Fimmgræn-
friðungar
handteknir
Vínarboiy, Reuter.
YFIRVÖLD í Tékkóslóvakíu
hafa sleppt fimm grænfriðung-
um sem voru handteknir í
miðborg Prag á sunnudag er
þeir mótmæltu nýtingu kjara-
orku.
Fólkið var handtekið er það
strengdi borða með áletruninni
„Kjamorkuvopnaiausa framtíð:
Aldrei aftur Chemobyl" utan á
Þjóðminjasafnið við Wenceslas-
torg í miðborg Prag. Talsmaður
samtaka grænfriðunga sagði að
tékkensk yfirvöld hefðu tekið fólk-
inu með kostum og kynjum og
hefði því verið veitt móttaka í inn-
anríkisráðuneytinu. „Þeim var
tekið eins og erlendum sendi-
mönnum," sagði talsmaðurinn.
Tékknesku embættismennimir
lögðu áherslu á að grænfriðun-
gamar væru ævinlega velkomnir
aftur til landsins. Seint á sunnu-
dagskvöldið var fólkið síðan flutt
til austurrfsku landamæranna.
Fyrir fímm árum efndu græn-
friðungar til mótmæla í Tékkósló-
vakíu og skutu verðir þá
aðvörunarskotum að mönnum
sem freistuðu þess að klífa skor-
stein orkuvers í borginni Karlovy
Vary í vesturhluta landsins.
[23ŒUBIX150Z
Húner
En stækkar... . ...... og minnkar
. nákvæmlega að þinni vild
Með nýju 150 Íínunni stígur Konica U-Bix enn eitt skrefið
inn i framtíðina og sýnir hver þróunin verður í Ijósritun á
næstu árum - vélarnar verða æ fyrirferðarminni um leið og
rtotkunarmöguleikarnirstóraukast.
Áreiðanleiki, styrkur og frábær myndgæði vélanna ásamt
traustri þjónustu Skrifstofuvéla hf. hafagert Konica U-Bix
að mest seldu Ijósritunarvélum á íslandi í dag - slíkt er
venjulega ekki að ástæðulausu!
KConica
U BIX 150Z
Konica U-Bix150Z:
kr. 196.000.-
Konica U-Bix 150 N: Kr. 147.000.-
(einfaldari gerð)
Tekur jafnt A3 sem A4 arkir
Stillir lýsinguna sjálf
Getur búið til spássíu
Gefur þér kost á að skerma hluta fyrirmyndar af
Tekur inn arkir í framhjáhlaupi
Útprentun í lit
Stækkun og minnkun í öllum DIN arkastærðum
Valfrjáls stærð útprentunar frá 65% til 155% í 1%
stigum.
%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
%
Hveriisgötu 33, sfmi: 20560
Akureyri: Tölvulæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4. sími: 26100
Filippseyjar:
Yar enn ein
valdaráns-
tílraun
í bígerð?
Manilla, Reuter.
SÍÐDEGIS mánudag virtist sem
nokkuð hefði á ný dregið úr
þeirri spennu sem hefur verið á
Filippseyjum síðustu daga. Sam-
kvæmt fréttaskeytum er (jóst, að
menn hafa talið að enn ein vald-
aránstilraunin gegn Corazon ’
Aquino væri i bígerð. Fidel Ram-
os, yfirmaður herafla landsins,
skipaði mönnum í viðbragðs-
stöðu á laugardag.
Þá bárast fréttir um að framin
hefðu verið tvö morð, áugljóslega
af pólitískum ástæðum og ólga
væri meðal ótiltekinna afla innan
hersins og hefðu þessir aðilar
komizt yfír stóreflis sprengjubirgð-
ir. Greinilega' var reiknað með að
til tíðinda dragi. Fidel Ramos stað-
fésti, að mörg hundruð bæir og
þorp á Filippseyjum hefðu verið
sett updir sérstakt eftirlit vegna
gruns um að menn innan hers og
utan, enn hliðhollir Marcosi, myndu
láta til skarar skríða og löngu eftir
að upp hafði kpmizt um nefnd
áform var yfírstjóm hersins ekki
rótt.
Eins og margsinnis hefur komið
fram í fréttum, er nú verið að und-
irbúa þingkosningar í maímánuði.
Alls hafa 32 látið lífið síðustu vik-
umar mar vegna óeirða sem hafa
brotizt út á framboðsfundum eða í
fjöldagöngum. Þetta er í fjórða
skiptið frá þvf Aquino forseti tók
við fyrir rúmu ári, að upp kemst
um fyrirætlun til valdaráns. Að vísu
vildi Ramos sem minnst úr því gera
nú og sagði, að þama hefðu aðeins
átt hlut að örfáir menn.