Morgunblaðið - 06.05.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.05.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987 Hvatt til aðgerða gegn baptistum Reuter Donna Rice í augiýsingu fyrir vínkrá á Miami fremur léttklædd eins og- sjá má. Bandaríkin: Moskvu, Reuter. DAGBLAÐ í Sovétríkjunum hef- ur hvatt til harðra aðgerðra gegu baptistum, sem það segir spilla menntun og uppeldi barna sinna. I æskulýðsblaðinu Molodyozh, sem gefíð er út í Eistlandi, sagði, að baptistar víða að úr Sovétríkjunum hefðu sest að við borgina Valga þar í landi og kenndu þeir börnunum sínum að óttast guð og virða en ekki sovéska ríkið. „Það liggur að sjálfsögðu í aug- um uppi, að of seint er að reyna að endurhæfa fullorðna fólkið í söfnuðinum og þess vegna verðum við að hvetja fólk til að sýna þess- ari lögleysu umburðarleysi, þessu fólki, sem dregur börnin sín út í forarvilpu trúarinnar," sagði í blað- inu. í blaðinu var tekið fram, að bapt- istar sendu að vísu börnin sín í ríkisskólana en hins vegar væru þau ófáanleg til að ganga í æskulýðs- samtök kommúnistaflokksins. Á það var líka minnst, að það væri hægara sagt en gert að vekja upp andúð á baptistum því að mótmæ- lendatrúin á enn mikil ítök með Eistlendingum. Auk þess hafa verk- smiðjustjórarnir enga í jafn háum metum og baptista því að þeir eru einstaklega vinnusamir og algerir bindindismenn, alveg eins og Gorbachev vill hafa það. Sri Lanka: Bylting’ Marx- ista yfirvofandi? Colombo, Sri Lanka. Reuter. FORSETI Sri Lanka, Junius Jay- ewardene, er í fjögur ár hefur barist gegn aðskilnaðarsinnum Tamíla, sagði í gær að stjórn Fegurðardrottningm sem varð fræg á einni nóttu Miami, Reuter. DONNA Rice, fyrrverandi feg- urðardrottning og smástimi f kvikmyndaheiminum, hefur nú fengið að reyna hvemig það er að verða fræg á einni nóttu. Það getur hún þakkað því, að hún er sögð hafa gist eina nótt á heim- ili Garys Hart, sem berst fyrir því að verða forsetaefni demó- krata í næstu kosningum. Rice er 29 ára gömul, ljóshærð þokkadís og hefur brugðið fyrir í sjónvarpsþáttunum „Miami Vice“ og „Dallas" en nú fer hún með annað aðalhlutverkið í vaxandi deil- um um persónu Harts og hugsan- legt framhjáhald. Rice segist hafa hitt Hart í fyrsta sinn í Colorado í janúar sl., farið með honum í siglingu til Bahama- eyja í mars og síðan hitt hann aftur í Washington um síðustu helgi. Segir hún, að samband þeirra hafí verið „ákaflega saklaust" og að hvorugu hafí orðið á að renna hýru auga til hins. Vinir hennar og sam- starfsmenn bera henni vel söguna, segja hana vel gefna og hæfíleika- ríka en lýsa henni einnig sem metnaðarfullri konu, sem láti einsk- is ófreistað til að koma sér á framfæri. Fyrir nokkrum árum bar Rice sigur úr býtum í fegurðarsam- keppni í Suður-Karólínu og settist síðan að á Miami til að stunda þar fyrirsætustörf og leiklist. Sat hún meðal annars fyrir í auglýsingu fýrir vínkrá þar í borg og er fremur fáklædd á myndinni, í gallabuxum en berbijósta með Suðurríkjafán- ann um öxl. Það var dagblaðið Miami Herald, sem flutti þá frétt, að Donna Rice hefði verið nætursakir á heimili Garys Hart, komið þangað síðla á föstudagskvöld og ekki farið fyrr en á laugardagsmorgni. Gary Hart sagði í gær á fundi í Félagi banda- rískra blaðaútgefenda, að hann hefði ekki aðhafst neitt ósiðlegt en viðurkenndi, að hann hefði komið sér í stöðu, sem auðvelt væri að leggja út á verri veg. Vísaði hann fréttinni í Miami Herald á bug og sagði, að hún væri „villandi og röng“, hugarfóstur óábyrgra frétta- manna. Kvaðst hann mundu beijast áfram fyrir því að verða forsetaefni Demókrataflokksins. Sjá „Hart í prófkjör“ á bls. 39. eyjarinnar stafaði einnig hætta af hugsanlegri uppreisn vinstri sinnaðra Sinhalesa. Sagði hann að samtök Marxista sem bönnuð væru, reyndu að ná áhrifum meðal námsmanna og æt- luðu þau sér að taka af lífi þing- menn og aðra ráðamenn og ná síðan völdum með byltingu eins og þau hefðu reynt árið 1971, erum 10.000 manns létu lífíð. Hélt hann því fram að marxistamir hefðu myndað bandalag við Tamíla og nú yrðu menn að standa vörð um stjómar- fyrirkomulagið á Sri Lanka. Frú Bandaranaike, sem er í for- svari fyrir stjómarandstöðuflokk, sakaði forsetann um að reyna að færa sér í nyt deilur milli þjóðflokka á eyjunni og krafðist þess að efnt yrði til kosninga hið fyrsta. Jayew- ardene sagði fyrir skömmu, að vegna óeirðanna í landinu gæti ver- ið að hann frestaði þingkosningum í annað sinn síðan hann kom til valda, en að öllu óbreyttu ætti að kjósa árið 1989. Bretland: Lífið er ekki kabarett St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SONGLEIKURINN Cabaret hefur gengið í Strand Theatre í London frá því á síðast- liðnu sumri. Sýningum lauk í vikunni sem leið, þegar hljóðfæraleikararnir, sem hafði verið sagt upp störfum, kröfðust vinnu sinnar aftur. Þegar þeir fengu hana ekki, kom stéttarfélag þeirra í veg fyrir, að hægt yrði að ráða í stöður þeirra. Eftir að haldn- ar höfðu verið tvær sýningar án hljóð- færaleiks, var sýningum hætt. Þessi sýning þótti ekki sérlega góð, þegar hún fór af stað, og talið er, að hún hafí ekki staðið undir kostnaði. Bæði leikumm og hljóð- færaleikurum hefur verið greitt með innstæðu- lausum ávísunum, en helsti söngvari sýningar- innar og stjómandi kvörtuðu hvað eftir annað yfír lélegum hljóðfæraleik, hann kæmi ekki inn á réttum stöðum, væri falskur og á vitlausum hraða. Hljóðfæraleikaramir segjast hvað eftir annað hafa bjargað bæði söngvumm og stóm- anda hljómsveitarinnar frá vandræðum, og einu sinni hafi stjómandinn gleymt sér við að ráða krossgátu í miðri sýningu. Á páskadag var öllum hljóðfæraleikumnum sagt upp störfum, en nokkrir þeirra endurráðn- ir. Þetta neitaði stéttarfélag þeirra að sætta sig við. Eftir að samningaumleitanir höfðu far- ið út um þúfur, fóm hljóðfæraleikaramir í verkfall. Þá var tvisvar gripið til þess ráðs að sýna án hljóðfæraleiks, en síðan var ákveðið að hætta. Nú er leikarafélagið komið í hörku- deilu við félag hljóðfæraleikara, vegna þess að leikaramir misstu vinnuna. Þessi tvö stéttarfé- lög em alveg ófeimin við að beita valdi sínu. Það hefur heyrst frá leikarafélaginu, að leikar- ar ætli að leggja niður vinnu í öllum sýningum í West End til að sýna hljóðfæraleikurum í tvo heimana. Ljúffengt gæðakex! Það ber öllum saman um að GRANOLA heilhveitikexið frá LU er eitt það besta sem þú get- ur valið, hvort heldur þú velur það með dökkri eða ljósri súkku- laðihúð. E4 EGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 6-85-300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.