Tíminn - 07.10.1965, Page 3
FIMMTUDAGUR 7. október 1965
TIMINN
3
Ný íslandsbók á þýzku
Líklega hafa Þjóðverjar ver-
ið einna iðnastir við það er-
lendra manna að setja saman
bækur um ísland. Þær eru orðn
ar æðimargar talsins íslands-
bækurnar, sem gefnar hafa ver-
ið út í Þýzkalandi á þessari
öld, og hafa höfundar allmarg-
ir skoðað landið fyrst og
fremst í ljósi fræðigreinar sinn-
ar, og ber þar nokkuð á jarð-
fnæOingum, forafræðingum, land
fræðingum og norrænufræðing
nm, auk venjulegra ferðalanga,
sem hingað hafa lagt leið sína
og látið sínar ferðasögur á
þrykk ganga eins og fara ger-
ir. Nú er nýútkomin fslands-
bók efttr einn úr hópi fræði-
mannanna fyrmefndu, fom-
fræðingurinn dr. Haye W. Han-
sen, sem og gerir mikið af því
að teikna og mála, svo sem
bótín ber vitni, en hún nefn-
ist „Island von der Wikinger-
zeit bis zur Gegenwart" all-
væn bók að vöxtum með fjölda
tetkninga eftir höfundinn og
nokkrar litljósmyndasíður í
bókarlok.
í npphafskafla fjallar höfund
ur um jarðfræði landsins, þá er
landfræðikafli, síðan stiklað á
stóm í sögu landsins frá fyrstu
rituðum heimildum Beda
prests og allar götur að lýð-
veldisstofnuninni. Þá koma
kaflar um rúnir, bókmenntir,
tungu, jurta- og dýralíf, at-
vinnuvegi, íslenzka þjóðhætti,
höfuðborgina, og loks löng
skýrsla um heimildarrit, sem
skipta hundruðum.
Ekki fer milli mála, að bezt
og rækilegust skil gerir höfund-
ur efninu í köflunum um forn-
fræði og þjóðhætti, þær greinir,
eru og skyldar sérmenntun
hans, enda hefur hann á mörg-
um ferðum sínum víðsvegar
um landið kynnt sér þessi efni
betur en margir erlendir
menn, sem samið hafa bækur
um ísland. Nokkuð ber á því,
að höfundur hefur ekki borið
handrit sitt nægilega undir ís-
lenzka menn eða þá sem betur
vita til að leiðrétta misskiln-
ing eða villur, sem ekki eru
þó svo stórvægilegar, en kemur
þó spánskt fyrir, þegar hann
t. d. fullyrðir, í kaflanum um
kaupstaði, að ísafjörður standi
við samnefnda fjörð, því
fjörðurinn ísafjörður er á öðr-
um stað við ísafjarðardjúp, en
ísafjarðarkaupstaður stendur
við Skutulfjörð, svo dæmi sé
nefnt, og einhverrar óná-
kvæmni gætir um rithátt ís-
lenzkra nafna. Annars er mik-
ill fróðleikur saman kominn í
bókinni, sem getur komið einn
ig íslenzkum lesendum að góðu
gagni sem uppsláttarrits, þótt
margs sé þar að sakna. Og ekki
leynir sér hlýhugur höfundar
til lands og þjóðar, sem dokt-
orinn hefur gert sér margar
ferðir hingað til að kynnast
og einnig á liðnum árum kynnt
ísland í heimalandi sínu með
fyrirlestrum og sýningum
mynda sinna frá íslandi.
Útgefandi bókarinnar, Ed-
ward T. Cate í Frankfurt am
Main, hefur gert hana snyrti-
lega úr garði. Hún er nú kom-
in í bókabúðir í Reykjavík og
er ónvejuódýr, miðað við stærð
og myndakost, verð tæpar 160
krónur í góðu bandi. G.B.
Höfundur bókarinnar, dr. Haye W. Hansen
Edward T. Cate í Frankfurt am Main.
h.) oq útgefandinn,
Aiyktanir á 16. landsþingi
’venféLsambands íslands
Eins og frá hefur verið skýrt
í blöðum og útvarpi var 16. lands-
þing Kvenfélagasambands ís-
lands haldið í Reykjavík dagana
25.—28. ág. sl. og fara hér á eftir
ályktanir þingsins, en stjórn K.í.
skipa nú þessar konur:
Frú Helga Magnúsdóttir, Blika-
stöðum formaður, frú Ólöf Bene-
diktsdóttir, Sporðagrunni 12, R-
vík, frú Sigríður Thorlacius, Ból-
staðarhlíð 16, R.vík.
1. Áfengismál og tóbaksneyzla:
A. 16. landsþing Kvenfélagasam
bands fslands haldið dagana 25.—
28. ág. 1965, þakkar opinberum
aðilum, félagasamtökum og öðr-
um, sem unnið hafa að því að
bæta skemmtanalífið svo að ungt
fólk venjist á að skemmta sér á
heilbrigðan hátt án áfengis. Telur
þingið, að reynsla sú, sem fengizt
hefur á fjölmennustu samkomum
þessa sumars sanni, að þegar hafi
orðið góður árangur af því starfi
og hvetur kvenfélög landsins til að
stuðla að því eftir mætti framveg-
is sem hingað til að áfengisnautn
hverfi úr opinberu skemmtana-
lífi.
B. Þingið telur að auka þurfi
veruléga bindindisfræðslu, bæði í
skólum og í ríkisútvarpinu. Leggja
ber áherzlu á að fræða þjóðina
um skaðsemi áfengis, tóbaks og
annarra nautnalyfja, og fá lækna
eða aðra sérfróða menn til þess
að flytja slíka fræðsluþætti.
C. Þingið þakkar fjármálaráð-
herra sérstaklega fyrir að loka
áfengisverzluninni fyrirvaralaust
fyrir 17. júní, og heitir fullum
stuðningi við allar þær ráðstafan-
ir, sem miða að því að draga úr
áfengisbölinu.
D. 16. landsþing K.í. skorar á
hæstvirta ríkisstjórn að láta til-
lögu þá, sem vísað var til ríkis-
stjórnarinnar um að banna tóbaks
auglýsingar koma til framkvæmda
Einnig skorar landsþingið á Al-
þingi að samþykkja lög að for-
dæmi Bandaríkjamanna um aðvör-
un til neytenda vindlinga um
skaðsemi reykinga.
2. Barnavernd:
A. 16. landsþing K. í. skorar hér
með á hið háa Alþingi að sam-
þykkja engin þau lög né reglu-
gerðir, er banni sumarvinnu ungl-
inga, eða leggi þar á óþarfa höml-
ur, án þess, að áður fari fram
gaumgæfileg athugun á því, hvort
hæfileg vinna unglinga sé ekki
fremur holl og þroskandi heldur
en hið gagnstæða. Telur Kvenfé-
lagasamband íslands nauðsynlegt,
að skipuð verði nefnd lækna, upp-
eldisfræðinga og skólahjúkrunar-
kvenna, svo að leitað sé beztu
fáanlegra upplýs. og málið rann-
sakað til hlítar. í þessu sambandi
má benda á, að dæmi eru til þess,
að íslenzkir læknar, verkfræðingar
og fleiri, sem búsettir eru erlend-
is, þar sem slík unglingavinna er
bönnuð, senda börn sín til íslands
á sumrin, þar sem vinnan er þeim
leyfileg, því að þeir telja hana
unglingunum miklu heppilegri en
iðjuleysi.
B. 16. landsþing K. I. beinir
þeirri áskorun til Alþingis að bæta
við 12. gr. 111 kafla lagafrum-
varpsins um barnaverndarráð
ákvæði um, að ein kona að minnsta
kosti sé skipuð í ráðið.
C. 16. landsþing K. í. haldið í
Reykjavík 2S.—28. ág 1965 bein-
ir þeirri áskorun til heilbrigðis-
yfirvalda landsins að taka upp
skipulagt eftirlit með heilbrigði
og þroska ungbarna í sveitum
E. 16. landsþing K- í. haldið í
Reykjavík 25.—28. ág. 1965 skor-
ar á heilbrigðisyfirvöld landsins
að skipuleggja umferðatannlækn-
ingar vegna barna og unglinga í
héruðum sem ekki hafa búsetta
starfandi tannlækna
3. Aðstoð við aldrað fólk.
16. landsþing K.. skorar á rík-
isstjórn, sveita- og bæjarstjórnir.
að veita nauðsynlegt fé til bess:
1. að reisa og búa sem uezt
dvalarheimi'.; fyrir aldrað
fólk, þar sem þeirra er þórf.
2. að byggja og leigja vægu
verði íbúðir, sem henta öldr-
uðu fólki.
3 að skipuleggja heimilisaðsfoð
og hjúkrun aldraðs fólks, sem
dveljast vill í heimahúsum.
4. Iljúkrunarskóli slands:
16. landsþing K.. fagnar því,
að hafizt hefur verið handa um að
fullgera byggingu Hjúkrunarskóla
íslands. Vegna knýjandi nauðsynj
ar beinir landsþingið þeirri ásKcr-
un til yfirvalda ríkis og bæja að
styðja alla viðleitni, sem stuðlar
að því, að nægilega margir fáist til
hjúkrunarstarfa, svo að áfram-
haldandi framfarir í heilbrigðis-
málum verði mögulegar.
5. Fræðslu- og menntamál:
A. 16. landsþing K. í. beinir
þeirri áskorun til heimila, skóla
og kirkju að taka upp sem allia
nánasta samvinnu við uppeldi
barna og unglinga.
B. Þingið lítur svo á, að vegna
stórfelldra breytinga á atvinn a- og
lífsháttum þjóðarinnar sé ítarleg
! endurskoðun á allri skólaiöggjöf
jlandsins óhjákvæmileg á næstu ár-
um. Vill þingið í því sambandi
; leggja áherzlu á það, að skóiakerf-
ið sé byggt á því, að ekki sé
minni áherzla lögð á uppeldi nem-
endanna og heilbrigt siðgæði en
fræðslu og þekkingu í hinum ymsu
námsgreinum. Enda þótt það verði
alltaf heimilið, sem leggur hinn
fyrsta og sennilega þýðingarmesta
grundvöll að lífshamingju bains-
ins með uppeldi fyrstu áranna, þá
verða áhrif skólanna og uppeldi
þeirra sífellt meiri og meirí þátt-
ur í Iífi barnsins og ungiiigsins
eftir þvi sem skólavistin icngist.
Alhliða áhrif skólanna á sálar íf
barns og unglings verða því ohja-
kvæmileg og þeir verða að fá að-
stöðu til þess að leysa sf hendi
starf sitt á þessum grutidveiJi.
Ennfremur óskar þingið aftii. -ið
sumarleyfi skólanna verði ektí
stytt um margar vikur, fyrr en
það hefur verið vandlega athug-
að af færustu mönnum. hvirt
hinn gamli íslenzki siður. að ung-
mennin taki þátt í itvnnu'ífi
Framhald á bls. 11
Á VÍÐAVANGI
Tilboð?
Þessi merldlega klausa stóð
í ri'tstjórnargrein í Morgunblað-
inu s. I. þriðjudag þar sem enn
einu sinni er verið að fárast yf-
ir því, að nokkur samstaða skuli
vera milli Framsóknarflokksins
og samvinnuhreyfingarinnar í
landinu um sameiginleg hug
sjónamál:
„En auðvitaS getur samvinnu
hreyfingin á íslandi ekki sinnt
ámátlegu væli Framsóknar-
flokksins, sem ekki er lengur
í neinni aðstöðu til þess að
gæta hagsmuna hennar. Hann
var í þeirri aðstöðu í þrjá ára-
tugi en er það ekki lengur og
þess vegna gera forstöðumenn
Sambandsins sér Ijóst, að það
er ekki lengur samrýmanlegt
hagsmunum samvinnuhreyfing
arinnar að tengjast Framsóknar
flokknum.“
Þama blasir við rétt mynd
af pólitísku siðgæði íhaldsins,
enda heitir klausan ,-hags-
munagæzla.“ Þeir sem þetta
skrifa, era sínum hnútum kunn
ugir. Þeir telja sig vita, hvernig
pólitískt fylgi er fengið. ÞaS
ræður aðeins ,,hagsmunagæzla“.
Aðrar ástæður til stuðnings við
stjórnmálaflokk eru þcssum
mönnum óskiljanlegar. Þess
vegna er þeim það alveg óskilj
anlegt að margir samvinnu-
menn skuli styðja Framsóknar
flokkinn, þegar hann er ekki
lengur í stjórn til þess að gæta
,,hagsmuna“ þeirra og kaúpfé-
laganna. Þá er auðvitað eðli-
legast að þeir snúist til íhalds
ins ,sem er í stjórn og getur
gætt hagsmuna þeirra. Þetta
er hugsjónasiðfræði íhaldsins
berstrípuð og samvinnumenn
eiga vist að taka þetta sem til
boð Sjálfstæðismanna um að
taka við ,,hagsmunagæzlunni“.
Gjafir eru yður gefnar, sam-
vinnumenn.
Aumlegt yflrklór.
Sjaldan hefur sézt aumlegra
yfirklór en það, þegar Morgun
blaðið er að reyna að rétt-
læta þá ósvinnu í forystugrein
í gær. að formaður Almenna
bókafélagsins, sjálfur forsætis
ráðherra landsins, skuli hafa
neytt aðstöðu sinnar til þess að
láta þetta bókmenntafélag gefa
út pólitískar þingræður eftir
sig í einu mesfa deilumáli síðari
ára. f ræðum, sem eru m. a.
eldhúsdagsræður á þingi og
ræður á Varðarfundum, er ó-
spart vegið að pólitískum and-
stæðingum, oft með ókræsileg
um dylgjum og jafnvel get-
sökum. Þetta er svo einstakt
pólitískt siðleysi. að jafnvel
kommúnistar hafa ekki komizt
með tæmar þar, sem Bjarai hef
ur hælana því að aldrei hefur
Mál og menning þó gefið út
þingræður Einars eða Brynjólfs
né ræður Þeirra í Sósíalistafé-
laginu í félagsbók handa félög
um í Máli og menningu, þrátt
fyrir margt brot í þessum efn
um.
Sneypa Morgunbiaðsins er og
augljós og kemur greinilega
fram í því, hve fátækleg yfir-
bótin verður. Hún er svona:
„Útgáfustarfsemin mótast af
ýmsum sjónarmiðum en auð-
vitað Ieggja forráðamenn fyrir
tækisins áherzlu á að gefa út
þær bækur sem erindi eiga á
markað. án tillits til þess, hvort
stjórnmálamenn eiga í hlut eða
ekki“.