Morgunblaðið - 04.06.1987, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
Sýningarsalurinn er opinn mánudaga — föstudaga kl. 9-6 og laugardaga kl. 1-5.
Burðarþolsmálið:
Hver er ábyrgiir?
„ Auðvitað er það svo
langstærstur hluti
byggingarverktaka
(meistara) og hönnuða,
verkf ræðinga og tækni-
fræðinga sem vinnur
verk sín af stakri prýði
og unir því væntanlega
illa að sitja undir grun-
semdum um vinnu-
brögð eins og þeim sem
lýst er við nokkur
þeirra húsa sem fjallað
er um í skýrslunni.“
sofið á verðinum hvað varðar eftir-
lit með byggingariðnaðinum, en
menn skulu ekki gleyma því að allt
byggingareftirlit í landinu starfar
eftir gildandi byggingarlögum (lög
nr. 54, 16. maí 1978) og almennri
byggingarreglugerð frá 1979 sem
félagsmálaráðuneytið setti, þannig
að ef úthluta á pólitískri ábyrgð,
fá ýmsir fleiri bita en borgarstjóm
Reykjavíkur.
Það hefur alltof lítið farið fyrir
því í umræðunni að aðalábyrgðin á
þeim ósköpum sem lýst er í skýrsl-
unni liggur hjá þeim aðilum sem
hafa staðið þannig að verki að fjöldi
stórhýsa í Reykjavík, og sjálfsagt
víðar á landinu, virðast verða stór-
lega gölluð. Hér hljóta að sjálfsögðu
hönnuðir og viðkomandi byggingar-
aðilar að bera fulla ábyrgð á
mistökum sínum, eða vísvitandi
svikum. Það verður vafalítið verk
dómstóla að úrskurða um sekt eða
sakleysi, en búast má við því að í
kjölfar skýrslunnar verði höfðuð
skaðabótamál og hugsanlega ein-
hver opinber mál vegna brota á
byggingarlögum en í þeim eru
ákvæði um viðurlög, m.a. réttinda-
missi og sektir.
Auðvitað er það svo langstærstur
hluti byggingarverktaka (meistara)
og hönnuða, verkfræðinga og
tæknifræðinga sem vinnur verk sín
af stakri prýði og unir því væntan-
lega illa að sitja undir grunsemdum
um vinnubrögð eins og þeim sem
lýst er við nokkur þeirra húsa sem
fjallað er um í skýrslunni. Það er
því vel að borgarstjóri hefur nú
tekið af skarið og birt opinberlega
hvaða hús það eru sem fjallað er
um í skýrslunni.
Nú er freistandi að íhuga hvers
vegna mál hafa þróast á þann veg
sem raun ber vitni. Undanfarin ár
hefur fjölgað í stéttum verkfræð-
inga og tæknifræðinga og það er
ekki erfitt að ímynda sér að slegið
hafi verið _ af kröfum um náms-
árangur. Á sama tíma hefur sú
breyting orðið að atvinnuhúsnæði,
sem byggt er í dag, er oft súluhús
sem fáum veggjum til stífingar .
SHk hús krreíjast oft fiókinna burð-
arþolsútreikninga, sem einungis eru
á færi sérfræðinga, þ.e.a.s. manna
sem vinna að staðaldri við hönnun
burðarvirkja. Þessir menn eru ein-
göngu til á verkfræðistofum.
Þar eð ákvæðum byggingar-
reglugerðar um rétt manna til að
gera séruppdrætti (m.a. burðar-
þolsuppdrætti) hefur ekki verið
breytt til að mæta þessum breyttu
tímum hafa alltof margir tækni-
menn f dag heimild til að gera
burðarþolsuppdrætti af hvers kyns
mannvirkjum. Hið mikla framboð
þessarar þjónustu hefur síðan orðið
til þess að byggingaraðilar hafa
valið sér ráðgjafa með því að horfa
einungis á verð þjónustunnar án
þess að athuga hvaða þjónusta er
látin í té. Einnig eru til dæmi um
að menn líti á heildarkostnað við
verkfræðiþjónustuna og áætlað
magn bendistáls og steypu og Táði
síðan til sín þann ráðgjafa sem „lof-
eftirRúnarG.
Sigmarsson
Frá því að skýrsla Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins
(Rb) um burðarþol tíu bygginga í
Reykjavík var birt, hafa fjölmiðlar
keppst við að fjalla um málið í frétt-
um og viðtölum. Því miður virðist
sem umfjöllun um þetta alvarlega
og viðkvæma mál hafi oft verið
meira af kappi en forsjá.
Sá sem þessar línur ritar hefur
starfað sem ráðgjafarverkfræðing-
ur frá því hann lauk námi fyrir
hartnær tuttugu árum og þykist
þess vegna geta Ij'allað af nokkurri
þekkingu og reynslu um þessi mál.
Það hefur mjög einkennt alla
umflöllun um málið að mönnum
sýnist það aðallega snúast um
ábyrgð embættis byggingarfulltrú-
ans í Reykjavík og byggingarfull-
trúa sjálfs. Hafa sum skrif og
jafnvel umræður í borgarstjóm
Reykjavíkur einkennst af harðri
gagnrýni á byggingarfulltrúa sem
hann á engan veginn skilið. Sú
gagnrýni í skýrslunni sem beinist
að embætti byggingarfulltrúa er
aðallega vegna skorts á gögnum.
Það er því hægt að fullyrða að fyr-
ir höfundum skýrslunnar hafi ekki
vakað að gera byggingarfulltrúa
að blóraböggli í málinu.
Síðan hafa eins og við mátti bú-
ast einhveijir reynt að gera sér
pólitískan mat úr skýrslunni og
draga þetta alvarlega mál niður á
það plan að gera borgarverkfræð-
ing tortryggilegan með því að
ljóstra upp því voðalega leyndar-
máli að einn starfsmaður bygging-
arfulltrúa var einu sinni skólabróðir
borgarverkfræðings. Það má
kannski bæta því við hér að einn
höfundur skýrslunnar margum-
töluðu var líka einu sinni skólabróð-
ir borgarverkfræðings.
Það er að vísu ekkert vafamál
að stjómendur borgarinnar hafa
■ ■
-- V,
,' *. < ■ .
' 'v í -
—JSpMifti Sffcl
Gaeði og öryggi í akstri eru forsenda góðra bílakaupa.
Þess vegna kaupir þú BMW
Sýningarbílar í sýningarsal
"Miðað við júní gengi DEM 21,3996.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633.
Er með beina innspýtingu.
Er 105 hestöfl.
Er 5 gíra „Overdrive".
Er með vökvastýri.
Er vestur*þýskur.
Tölvu-sunmrbúðir
fyrir unglinga á aldrinum 9-14 ára
Staðun Varmaland í Borgarfirði.
Boðið er uppá eftirfarandi:
Tölvukennslu, íþróttakennslu og kvöldvökur
Foreldrar, fylgist með tímanum — tryggið framtíðbama
ykkar á tölvuöld.
AÐ GEFNU TILEFNI SKAL TEKIÐ FRAM:
BARNAVERNDARRÁÐ HEFUR GEFIÐ LEYFI
FYRIR ÞESSUM SUMARBÚÐUM.
Innrítun og nánarí upplýsingar
í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28, Reykjavík.