Morgunblaðið - 04.06.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
25
ATYINNUTÆKIFÆRI!
" 1 —■< i
— •• w
- : • ^
„ íffjf.‘íá—~~ , —:—; r—
VERTU MEÐ IAÐ SKAPA
GLÆSILEGASTA VINNUSTAÐ Á LANDIIW
í Hagkaup Kringlunni ætlum við að bæta við 150—200 manns til starfa.
Starf fyrir þig á glæsUegum
vinnustað
í ágúst opnum við nýjar og glæsilegar verslanir í Kringlunni. Við
höfum þörf fyrir konur og karla til starfa - Þú ert áreiðanlega
ein(n) af þeim. - Þig langar eflaust til að vinna á nýtískulegum
spennandi og skemmtilegum stað, með bráðhressu fólki þar sem vinnu-
aðstaðan er góð. Hér er tækifærið - gríptu það! Við þörfnumst
þín.
Hálfan eða allan daginn
Við óskum eftir fólki á aldrinum 18 ára og eldri í hluta og heils-
dagsstörf. Starfsreynsla er æskileg en ekki skilyrði. - Pú sem heima
situr og þið sem þarfnist vinnu eða viljið skipta um starf - hér
kemur tækifærið! Hér koma örfá dæmi um skemmtileg störf:
Afgreiðsla, • upplýsingar, • vinna á kassa, • panianir í hinum
ýmsu deildum fatnaðar, • skódeild, • búsáhaldadeild, •
bóka- og sportvörudeild. - Við afgreiðslu og vinnslu í sælkeraborði,
kjöt- og fiskborði. Afgreiðsla í skemmtilegri sælgætisbúð, eða afgreiðslu og
uppfýllingu á ávaxtatorginu eða ostaborðinu. Svo er það lagerinn
og margt fleira.
HAGKAUP
í hringiðu viðskipta og athafna
Við bjóðum ykkur að starfa á mest spennandi vinnustað á landinu í
dag. í Kringiunni hitta allir alla og þar mun alltaf gerast eitt-
hvað nýtt. Þú munt njóta þín í skemmtilegu umhverfi viðskipta,
þjónustu og athafna.
Þegar tími og tækifæri gefast til, getur þú sinnt
þínum erindum. Skroppið í bankann, farið með
fötin í hreinsun, pantað farseðilinn í sumarfríið og
margt fleira. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af veðri.
Þú finnur ekki notalegri vinnustað.
Vlð hlökkum til að heyra I þér
Komdu og spjallaðu við okkur milli kl. 13 og 18 allavirka
daga. Ef sá tími hentar ekki - þá hringdu og við ákveðum
sameiginlega annan tíma. Við erum í síma 68-65-66 í Skeifúnni 15.
Kristján Sturluson
starfsmannastjóri
Valdimar Hermannsson
verslunarstjóri
Karl West
verslunarstjóri
g!‘"l UU'-'-"