Morgunblaðið - 04.06.1987, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ1987
Morgunblaðið/Einar Falur
„Stærsta herðatré í heimi“, eitt listaverka Stefáns Geirs Karlssonar er borið í land í Viðey.
Listsýning í Viðey:
Stærsta herðatré heims
og meterslangir blýantar
Morgunblaðið/Einar Falur
Stefán og Magnea Reynaldsdóttir eiginkona hans koma verkunum
fyrir í Viðeyjamausti.
LISTSÝNING verður opnuð i
veitingahúsinu Viðeyjarnausti í
Viðey á laugardag. Það er Stefán
Geir Karlsson skipatæknifræð-
ingur sem sýnir verk sin. Er
þetta fyrsta einkasýning hans.
Stefán skilgreinir sjálfan sig sem
„poplistamann". Hann hefur ein-
beitt sér að þvi að gera skúlptúra
og málverk í margfalldri stærð
eftir fyrirmyndum úr daglegu
umhverfi, svo sem eldspýtum eða
biýantsstokkum. Meðal þess sem
gefur að Iita á sýningunni er
fimm metra breitt herðartré, það
stærsta i veröldinni að mati sér-
Vísindafélag íslendinga:
Fjórtán erindi
um móðurmálið
VÍSINDAFÉLAG íslendinga
hefur sent frá sér rit sem nefn-
ist Móðurmálið. Það hefur að
geyma fjórtán erindi um „vanda
íslenskrar tungu á vorum dög-
um“, en þau voru upphaflega
flutt á ráðstefnu í Norræna
húsinu 12. april á síðasta ári.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni voru
valdir úr röðum fólks sem ætla
má að sem nánust kynni hafí af
stöðu íslensks máls og þróun: í
fyrsta lagi málvísindamenn sem
hafa fengist við rannsóknir á tal-
máli, haft afskipti af eða beinlínis
unnið að stefnumótun í málvemd,
fylgst með nafngiftum, bæði
mannanöfnum og nöfnum fyrir-
tækja, unnið að nýyrðasmíð og
kynningu nýyrða o.s.frv. I öðru
lagi var leitað til móðurmálskenn-
ara; fóstra ræddi um hvemig
bömin læra málið á dagvistar-
stofnunum, kennarar ræddu um
móðurmálskennslu í grunnskólum
og framhaldsskólum og hverjar
kröfur verði að gera til móður-
málskennara. í þriðja lagi ræddu
fréttamaður og auglýsingahönn-
uður um viðhorf þessara starfs-
stétta til móðurmálsins, menntun
þeirra og möguleika til að beita
íslensku máli. í fjórða lagi ræddu
rithöfundur og skáld um móður-
málið sem tæki til listsköpunar og
um vanda þeirra sem fát við þýð-
ingar.
Bókin sem geymir þessa fyrir-
lestra er 113 blaðsíður að stærð,
prentuð í Prentsmiðjunni Odda.
Ólafur Halldórsson sá um útgáf-
una. Sölu annast Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar í Austur-
stræti.
fræðinga heimsmetabókarinnar
hér á landi.
„Það er ekki fyrr en núna sem
ég legg i það að kalla sjálfan mig
listamann," sagði Stefán þegar
Morgunblaðsmenn urðu honum
samferða út í Viðey á dögunum.
„Ég hef unnið að þessu í frístundum
mínum undanfarin ár. Upphaflega
var ég aðeins með það í huga að
skreyta heimili mitt, en ég hef allt-
af átt mér þann draum að geta
helgað mig listinni. Hvort mér tekst
það núna er aftur annað mál.“
Um borð i Viðeyjarferjunni gaf
að lita upphandleggsgildar eldspýt-
ur, mannhæðarháa blýanta og
stóreflis skiptimiða sem með herkj-
um komst fyrir í skalatösku lista-
mannsins.
„Ég er skilgetið afkvæmi „pop-
menningarinnar", ólst upp í Kefla-
vik við dósakók og pylsu með öllu.
Það eru mínir áhrifavaldar. Fyrsta
verkið af þessu tagi sem ég gerði
var risasastór sleikipinni sem ég
gaf Guðmundi Auðunssyni lista-
manni í afmælisgjöf. Hann setti
sleikipinnanum á sýningu Félags
íslenskra myndlistarmanna, hringdi
sfðan í mig og sagði að ég væri
orðinn listamaður. Eg varð auðvitað
felmtri sleginn," sagði Stefán. „Það
getur orkað tvímælis fyrir mann-
orðið að bera þennan titil. Enda
hefur tekið mig sjö ár að safna
kjarki til þess að halda svona sýn-
ingu“.
Stefán sýnir þrátíu verk úr
smiðju sinni. Hann hefur átt sam-
starf við eiginkonu sina Magneu
Reynaldsdóttur við gerð hluta
þeirra, þar á meðal plasthanska eins
mikils að vöxtum sem listamaðurinn
tileinkar listgagniýnendum í hópi
sýningargesta. „Ég kynntist slíkum
hönskum fyrst á sjúkrahúsi og þar
sem ég ber jafn óttablandna virð-
ingu fyrir læknum og gagnrýnend-
um tileinka ég verkið þeim
síðarnefndu,“ sagði Stefán.
Viðeyjamaust er bjartur gler-
skáli í vesturhluta Eyjarinnar undir
svonefndum Virkishöfða. Hafsteinn
Sveinsson, ferjumaður með meiru
reisti skálann síðastliðið sumar. Um
veitingasöluna sjá þau hjónin Jón
Hlíðar og Eygló Jónsdóttir. Naustið
er opið alla daga frá kl. 14.00-17.00
og kl. 13.00-19.00 um helgar, en
þegar vel viðrar er opið lengur fram
eftir kvöldi. I veitingabúðinni er
boðið upp á kaffi og meðlæti en
stefnt er að þvi að þar verði full-
búið eldhús seinna í sumar.
INNLENT
Stjóm Hringsins afhendir stjóm kvennadeildar lamaðra og fatlaðra peningagjöfina að upphæð ein milljón króna.
Morgunblaðið/Einar Falur