Morgunblaðið - 04.06.1987, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 04.06.1987, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987 Morgunblaðið/Einar Falur Sveinn Gunnarsson afhendir Ingvari Gíslasyni skólastjóra Iðnskólans í Reykjavík málverk af Óla Vest- mann Einarsyni fyrrverandi yfirkennara og deildarstjóra prentdeildar. Málverkið gáfu 15 og 20 ára nemendur úr prentdeild. Iðnskólinn í Reykjavík; Brýn þörf er á viðbótarhúsnæði IÐNSKÓLANUM í Reykjavík var slitið miðvikudaginn 27. maí síðastliðinn. A þessu skólaári út- skrifast 326 nemendur. Ingvar Ásmundsson skólameist- ari hélt ræðu við slit skólans og í upphafí ræðu sinnar minntist hann Sigurðar Skúlasonar magisters, sem starfaði við skólann í rúma hálfa öld. Ingvar vakti athygli á því, að skólinn hefði tekið stöðugum breyt- ingum á undanförnum árum og áratugum og að hann mætti ekki staðna. Rifjaði hann upp helstu breytingar, sem orðið hefðu í skóla- starfínu, sem orðið hafa á undanf- ömum árum með tilkomu áfangakerfís og aukinna tengsla við aðra skóla og vakti athygli á því, að til þess að áfangakerfíð nyti sín til fulls, þyrfti að efla mjög náms- ráðgjöf, persónulega ráðgjöf við nemendur, umsjón með námi þeirra og styrkja í hvívetna tengsl nem- endanna og skólans. Hann taldi að þetta þyrfti að vera forgangsverk- efni skólans á næstu árum. Tæknibraut hefur verið sett á stofn, en hún samsvarar uppeldis- og raungreinadeild tækniskólanna. Um síðustu áramót fékk skólinn heimild til þess að útskrifa stúdenta af tæknibraut. Horfur eru á að fyrstu stúdentamir af tæknibraut útskrifíst á næsta ári. Tölvbraut hefur verið starfrækt í tvö ár. Þetta er þriggja ára nám og munu fyrstu nemendumir af brautinni útskrifast að ári. Öldungadeildir í rafeinda- virkjun og bókagerðargreinum tóku til starfa s.l. haust. Eftirmenntun iðnaðarmanna hefur verið efld í formi námskeiða við skólann og sóttu þau á annað hundrað iðnaðar- menn á liðnu skólaári. Næst ræddi skólastjóri um hús- næðismál skólans, sem hann sagði að stæðu þróun skólans fyrir þrif- um. „Húsnæðismálanefnd, sem menntamálaráðherra skipaði hefur nýlokið störfum. í áliti hennar kem- ur fram, að skólinn þurfi þegar í stað húsnæði, sem nemur 3.000 fermetmm, en þegar til nokkurra ára er litið um 7.000 fermetra til viðbótar.“ Nokkrar breytingar hafa orðið á kennaraliði skólans, en þar er helst að nefna, að vegna aldurs lét af störfum Bergljót Ólafsdóttir, kenn- ari í fataiðnaðardeild, af störfum um síðastliðin áramót og Guðmund- ur Jensson yfírkennari mun láta af störfum í sumar. Ingvar þakkaði þeim Bergljótu og Guðmundi fyrir góð störf í þágu skólans og Guð- mundi fyrir gott og náið samstarf. Verðlaun fyrir bestan námsár- angur voru veitt úr verðlaunasjóði Iðnnemafélagsins Þráins. Fýrstu verðlaun úr þeim sjóði hlaut Guð- björg Bjömsdóttir, nemi í kjötiðn, en önnur verðlaun hlaut Sigmar Reynisson, einnig nemandi í lqötiðn. Aðrir nemendur, sem hlutu verð- laun skólans fyrir góðan námsár- angur voru: Guðmundur Valsson, rafvirkjun, Jósep Gíslason, prent- setningu, Kjartan Kjartansson, húsasmíði, Magnús Arason tækni- teiknun, Pétur Valur Olafsson bifvélavirkjun og Ragnheiður Sverrisdóttir, tæknitejknun. Ársæll Þorvaldur Ámason, hús- asmíði, hlaut verðlaun Iðnaðar- mannafélagsins, Hjálmar Ólafsson, húsasmíði hlaut verðlaun Minning- arsjóðs Finns Ó. Thorlacius, Valgeir Sigurgeirsson, vélvirkjun, hlaut verðlaun úr Menningarsjóði Helga Hermanns Eiríkssonar, Þórhallur T. Tryggvason, rafeindavirkjun, hlaut verðlaun Skýrslutæknifélags íslands, Lilja Bergsteinsdóttir, prentsetningu, hlaut verðlaun Danska sendiráðsins og Þóra Guð- mundsdóttir, tækniteiknun, hlaut verðlaun frá Pennanum. 15 og 20 ára nemendur úr prent- deild heimsóttu skólann og gáfu honum málverk af Óla Vestmann Einarssyni fyrrverandi yfírkennara og deildarstjóra í prentdeild. Ólafur Ingi Jónsson hafði orð fyrir þeim, en Sveinn Gunnarsson afhenti gjöf- ina. Málverkið er gert af Gísla Sigurðssyni listmálara. Skólastjóri þakkaði þessa veglegu gjöf. Gestir við útskrift Iðnskólans í Reykjavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.