Morgunblaðið - 04.06.1987, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987
75
Sigfried Held, landsliðsþjálfari:
„Spiluðum
ekki sem lið“
„VIÐ spiluðum ekki sem lið, leik-
menn mínir léku mjög óagað;
þeir voru líkari áhugamönnum en
atvinnumönnum. Eg bjóst alls
ekki við þessu eftir það sem við
höfum sýnt í síðustu leikjum,11
sagði Sigi Held, landsliðsþjálfari.
Sigi sagði austur-þýska liðið
hafa leikið mjög vel í gær. „Liðið
var mjög gott; þetta er lið sem
tapar til dæmis ekki eins og við
gerðum nú. En við verðum að hafa
í huga að við leyfðum þeim að leika
eins og þeir gerðu."
Áttu einhverja skýringu á þess-
arri hræðilegu frammistöðu?
„Aðalástæðan er að ísland lék
ekki sem lið, hvorki í vörn né sókn.
Menn hreyfðu sig ekki þegar þeir
voru ekki með boltann - en það
er auðvitað nauðsynlegt að menn
geri. Menn verða að hjálpa hverjir
öðrum en það var alls ekki gert.
Þetta er versti leikur sem liðið
hefur leikið undir minni stjórn."
íslensku leikmennirnir virtust
hræddir strax þegar flautað var
til leiks - hvers vegna?
„Ég veit það ekki. En þeir náðu
aldrei saman, eins og ég sagði.
Léku ekki sem lið.“
Þeir reyndu varla að sækja -
virtust hræddir við það.
„Við náðum aldrei að ná al-
mennilegu valdi á boltanum, og
það er ekki hægt að sækja nema
að hafa boltann!"
Ágúst Már var allt annað en
sannfærandi í Ólympfulands-
leiknum gegn Hollandi á dögun-
um, Guðni var mun betri þá að
mínu mati. Hvarflaði aldrei að þór
að breyta byrjunarliðinu frá þvf f
leiknum gegn Frökkum í París -
til dæmis með því að setja Guðna
inn fyrir Ágúst Má?
„Nei, Ágúst hefur leikið þessa
stöðu í undanförnum leikjum.
Guðni lék ekki nákvæmlega þessa
stöðu gegn Hollandi og því vildi
ég ekki skipta."
Áttu von á þvf að gera breyt-
ingar á liðinu í næstu leikjum?
Ég get varla sagt um það strax,
við verðum að sjá til. Það er erfitt
að meta það svona strax eftir
þennan leik.“
Hvað um leikskipulagið? Getur
verið að notað hafi verið rangt
leikskipulag gegn þessum and-
stæðingum?
„Þetta er ekki spurning um leik-
skipulag, heldur um hugarfar.
Hugarfar íslensku leikmannanna
var ekki í lagi að þessu sinni."
Gátum skorað
ennþá meira
-sagði austui „VIÐ ætluðum að sækja mikið, ég var með sex leikmenn í byrjun- arliði sem eru mjög sókndjarfir. Frá fyrstu mínútu hugsuðum við fyrst og fremst um að sækja. Við skoruðum sex mörk og mér fannst við allt eins eiga að geta r þýski landsl skorað enn fleiri - til þess fengum við færi,“ sagði Bernard Stange, þjálfari austur-þýska liðsins. Stange sagði að leikurinn í gær- kvöldi væri án efa sá besti sem hans lið hefði leikið í keppninni til þessa. En hvað sagði hann um liðsþjálfarinn íslenska liðið? „Ég trúi varla að þetta sé sama lið og gerði jafn- tefli við Frakka og Sovétmenn hér á heimavelli. Það er mjög skrýtið hvernig íslensku leikmennirnir léku. Ég skil það ekki ennþá," sagði hann.
Auðv en við - sagði Jurgen R „VIÐ vissum fyrir leikinn að við yrðum að sigra til að eiga mögu- leika á fyrsta sætinu í riðlinum. Okkur gekk hins vegar allt í hag- inn á meðan ekkert gekk upp hjá íslenska liðinu og sigurinn var mun auðveldari en við áttum von á,“ sagði Jurgen Raab, miðvallar- leikmaðurinn snjalli hjá Austur- Þjóðverjum, eftir leikinn. eldari i áttum aab, einn besti m „íslenska liðið hefur verið erfitt heim að sækja og því hefðum við sætt okkur við 1:0 sigur. En við fundum fljótlega að vörn þeirra átti í erfiðleikum og við gengum á lagið. Hins vegar fengu þeir góð marktækifæri, en í stað þess að skora, þegar staöan var 2:0, bætt- um við við þriðja markinu og þar með voru úrslitin ráðin. sigur i voná iaður A-Þjóðverja íslendingar þurfa samt ekki að örvænta, því leikmennirnir eru góðir, en þetta var ekki þeirra dag- ur. Þeir þurfa bara að fá tækifæri til að vera meira saman, fá meiri samæfingu. En þessum leik er lok- ið, hann verður ekki endurtekinn, en því miður sigruðu Sovétmenn Norðmenn, þannig að enn munar þremur stigum," sagði Raab.
Óafsakanlegt
-sagði Atli Eðvaldsson, landsliðsfyrirliði
„ÞETTA er óafsakanlegt. Við
vorum staðráðnir í að gera
allt sem við gætum til að
sigra, en ekki stóð steinn yfir
steini, ekkert gekk upp,“
sagði Atli Eðvaldsson, fyrirliði
íslenska landsliðsins, von-
svikinn að leik loknum. En
hvers vegna gekk ekkert upp?
„Ég veit það ekki. Við höfum
aldrei fengið eins mörg mark-
tækifæri í landsleik og þessi
mannskapur hefur aldrei tapað
svona stórt. Við gerðum mistök
strax í byrjun, fyrstu tíu sendin-
garnar voru út í bláinn og eftir
það var eins og menn þyrðu
ekki að koma nálægt boltanum."
- Hvers vegna?
„Ef til vill ætluðum við okkur
alltof mikið. Okkur hefur gengið
vel, þegar við höfum spilað ró-
lega og einbeitt okkur að því að
trufla andstæðingana áður en
við höfum farið að gera hlutina
sjálfir. Við gerðum það ekki
núna. Við sköpuðum okkur færi,
en skoruðum ekki og þeir svör-
uðu aftur og aftur með marki.
Þetta er ótrúlegt."
- Hvernig er hægt að forðast
svona skell?
„Við eigum að geta náð stöð-
ugleika í leik okkar með því að
spila fleiri leiki og æfa meira
saman. Mikilvægt atriði í því
samþandi er að leggja áherslu
á í samningum atvinnumann-
anna, að þeir séu lausir, þegar
á þarf að halda. Við erum dreifð-
ir úti um allt og komum alltof
sjaldan saman á sama tíma og
andstæðingarnir hverju sinni
hafa mun meiri samæfingu.
Þetta er samt ekki afsökun fyrir
tapinu, en hlýtur að hafa sitt að
segja."
'*$L
I
Bjarni Sigurðsson
stóð sig þokkalega og mörkin skrifast
varla á hans reikning þar sem vörnin
var slök.
Gunnar Gíslason
hefur vafalítið aldrei leikið lakar í lands-
leik. Gunnar virkaði óöruggur strax frá
byrjun; komst aldrei í takt við leikinn.
JO
Sævar Jónsson
var skárstur af varnarmönnunum þrem-
ur. Dalaði þó er líða tók á leikinn.
Agúst Már Jónsson
var mjög ósannfærandi. Virkaði seinn
og þungur og dekkning hans var léleg,
eins og reyndar allrar varnarinnar.
Sigurður Jónsson
skilaði varnarhlutverki sínu mjög vel,
en lítiö kom út úr honum sóknarlega
séð. í síðari hálfleiknum átti hann það
til að halda boltanum allt of lengi og
skapaðist stundum hætta eftir það.
Atli Eðvaldsson
skilaði varnarhlutverki sínu illa; skapaði
hins vegar hættu í fáein skipti er hann
brá sér í sóknina. Ljót óþarfa brot settu
leiðinlegan blett á leik Atla.
Ragnar Margeirsson
var slakur; hefur líklega aldrei leikið lé-
legri landsleik. Hann var varla með í
leiknum langtímum saman.
Asgeir Sigurvinsson
var langt frá sínu besta. Hinar frægu
löngu sendingar hans voru sjaldséðar.
Ásgeir gekk varla heill til skógar og virt-
ist hlífa sér á stundum.
ÓmarTorfason
var á sama báti og Ragnar. Lék ekki
vel og hreinlega týndist inni á vellinum
langtímum saman.
Pétur Pétursson
barðist vel að vanda, en mátti sín lítils.
Vítaspyrna hans var ekki vel fram-
kvæmd, kæruleysi virtist einkenna
skotið.
Arnór Guðjohnsen
skapaði ekki þá hættu sem við var
búist. Arnór barðist nokkuð vel en virk-
aði þreyttur.
Lárus Guðmundsson
kom inn á en fékk ekki mikinn tíma til
að spreyta sig. Staðan var orðin 4:0
er hann kom inn á og var því vonlítið
að hann breytti einhverju.
Pétur Arnþórsson
kom inn á er örfár mínútur voru eftir
og setti ekki mark á leikinn.