Morgunblaðið - 17.06.1987, Blaðsíða 35
"8er ínúi, .vi auoAauHiVŒiM .aiöA.iavjuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNI 1987
Skotfélag Reykjavíkur:
Nýr skotvöllur vígður
SKOTFÉLAG Reykjavíkur opn-
aði síðastliðinn laugardag nýjan
skotvöll og var völlurinn form-
iega opnaður af Davíð Oddsyni
borgastjóra. VöUur þessi er œtl-
aður fyrir haglbyssuskotfimi,
„Skeet“, en i þeirri grein er
keppt á Olympíuleikunum.
Á útiæfíngasvæði félagsins í
Leirdal er, auk haglabyssuvallar,
riffílbani, sem nú er í endumýjun,
ásamt aðstöðu fyrir shilouettuskot-
fími. „Skeet" hefur verið stundað á
vegum Skotfélags Reykjavíkur um
allmargra ára skeið, en með þessum
nýja skotvelli, hefur aðstaða félags-
manna til iðkunar þessarar íþrótta-
greinar stórbatnað. Völlurinn er
byggður samkvæmt alþjóðastaðli,
sem gildir um velli af þessu tagi.
Á hinum nýja skotvelli er öllum
heimill aðgangur, svo fremi að við-
komandi hafí byssuleyfí. Félags-
menn njóta þó betri kjara, en
utanfélagsmenn.
íþróttagreinin „skeet" felst í því
að skotmaður reynir að hæfa leirskí-
fur, sem kastað er úr tveimur
vélum, en hvor þeirra er inni í sér-
stöku húsi. Skífumar svífa með
miklum hraða yfír brautina og verð-
ur skyttan að hitta hana innan
ákveðinna marka vallarins.
í sumar er stefnt að því að endur-
byggja riffíl- og shilouettevellina
og er búist við því að framkvæmd-
um ljúki fyrir júlíbyijun.
Stjóm Skotfélags reyig'avíkur
skipa fímm aðalmenn og tveir vara-
menn. Stjómarmenn em þessir;
Ólafur Jóhannsson, formaður,
Morgunblaðið/Sverrir
Davið Oddsson borgarstjóri er nokkuð ánægður á svip eftir skot
sín, enda tókst honum að skjóta eina dúfu af fjórum. Að baki honum
er Ólafur Jóhannsson, formaður Skotfélags Reykjavíkur.
Magnús Sigurðsson, varaformaður, Bridde meðstjómandi. Varamenn
Baldur Bjamason, ritari, Bergur em Gissur Skarphéðinsson og Jó-
Arthúrsson, gjaldkeri og Kari H. hann Halldórsson.
Morgunblaðið/KGA
Frá stofnfundi Borgaraflokksfélagsins í Reykjavík sem haldinn var í Glæsibæ.
Borgaraflokkurinn:
Þórir Lárusson formaður
Reykj avíkurf élag’sins
ÞÓRIR Lárusson, rafvirkja-
meistari, var kosinn formaður
Félags Borgaraflokksins i
Reykjavík á stofnfundi þess
síðastliðinn mánudag. Á fundin-
um var einnig kjörinn 15 manna
stjóm félagfsins og 6 manna vara-
stjórn. Hátt á annað hundrað
manns sóttu þennann stofnfund.
Albert Guðmundsson, oddviti
Borgaraflokksins, ávarpaði fundinn
og gerði hann stjómarmyndunar-
viðræðumar að umræðuefni.
Borgaraflokkinn sagði hann hafa
horfið frá þeirri stefnu sinni að
vera stjómarandstöðuflokkur og
væri reiðubúinn til þess að taka
þátt i ríkisstjóm með Sjálfstæðis-
flokki og Framsóknarflokki undir
forystu Framsóknarflokksins.
Efnahagsástandið væri þess eðlis
að ekki yrði við það ráðið með nýj-
um flokkum í ríkisstjóm og ekki
myndi heldur þýða að ætla sér að
taka þátt í stjóm ef maður ætlaði
að vera með háleitar hugsjónir sem
gætu reynst dýrar í framkvæmd.
Borgaraflokkinn og Framsóknar-
flokkinn sagði hann vera einu
pólítísku flokkanna sem ekki hefðu
slitið tengsl sín við rótina og væm
því nauðsynlegir til þess að tryggja
stöðugleika í þjóðfélaginu. Aðalat-
riðið sagði Albert vera að koma á
stjóm sem fyrst, eins og stæði
væri landið stjómlaust. Það næði
að hans mati ekki nokkurri átt að
ríkisstjóm sem hefði fallið í kosn-
ingum væri enn við völd tveimur
mánuðum síðar. Sagðist hann þegar
hafa gengið á fund forseta og mót-
mælt þvf að hér væri enn starfs-
stjóm.
í stjóm Félags Borgaraflokksins
í Reykjavík vom kosin þau Auður
Jakobsen, Ásgeir Guðlaugsson,
Baldvin Hafsteinsson, Friðrik Jóns-
son, Hulda Jensdóttir, Ingibjörg
Helgadóttir, Jóhann Albertsson,
Magnús Benediktsson, Sveiney
Sveihsdóttir, Þorvaldur Sigurðsson,
Sigurður Þórðarson, Guðmundur
Finnbogason, Nína Hjaltadóttir og
Kristín Karlsdóttir.
A
tSTEYPUVIÐ-
GERÐAREFNI
* ÍÐLÖNDUNAR-
EFNI í STEYPU
*ÞÉTTIEFNI
NOTIÐ SIKA f ALLAR
STEYPUVIÐGERÐIR OG
GERIÐ VIÐ í EITT SKIPTI
FYRIR ÖLL.
VEUIÐ ENDINGU OG ÖRYGGI
- VELJIÐSIKA.
HUSASIVIIOJAIM
SUDARVOGI 3-5 0 687700
UOMANDIBILL
í HVELU
Bröste hreinsivörurnar
vinna kraftaverk á bilnum:
Splendo gerír rúdurnar skinandi hreinar á
augabragði.
Basta Vinyl Extra fjaríægir óhreinindi af
vinyl eöa plasti utan á bilnum t.d. stuðurum.
Polish Spray er bón sem setur sterkan gljáa
á lakkið og ver það raka og óhreinindum.
Rens-Lak djúphreinsar bíllakkið sem færþá
sinn upprunalega lit.
Bröste gædavörur fást á
bensinstöðvum Esso.
Olíufélagið hf
• Útihurðir,
bílskúrshurðir,
svalahurðir
• Innihurðir
• Eldhúsinnréttingar,
baðinnréttingar
• Fataskápar
• Loftaklæðningar
• Þiljur
• Arnar o.m.fl.
#BÓÐIN ÁRMÚLA 17a
BYGGINGAtUÓNClSTA SÍMAR 84585-84461