Morgunblaðið - 17.06.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1987
%s<t
aÞ.
Nú geta allir
borðað hvítlauk
KYOLIC
alveg lyktar- og bragðlausi
hvítlaukurinn
Algjörlega jafngildi hráhvitlauks
Helstu útsölustaðir eru:
heilsuvöruverslanir,
lyfjaverslanir og fl.
Taiwan:
Kaupa tíu
flugvélar
TAIWAN mun verja 1,7 milljörð-
um dollara í flugvélakaup í
Bandaríkjunum. Þetta er gert til
að jafna halla í viðskiptum
rikjanna.
Keyptar verða sex Boeing 747-
flugvélar og fjórar aðrar banda-
rískar vélar. I sömu verslunarferð
verða keyptar iðnaðar- og land-
búnaðarvörur fyrir 615 milljónir
dollara. Þessi munur á viðskiptum
ríkjanna sem Bandaríkjamenn vilja
láta jafna nam um 6.3 milljörðum
dollara á fyrstu fímm mánuðum
þessa árs.
Margret Höke
Reuter
Bæjarins glæsilegasta
tertuhlaðborð
ítilefni dagsins.
Lifandi tónlist með kaffinu.
Haldið uppá daginn hjá okkur.
Hótel Borg.
Réttarhöld hafin í
máli Margretar Höke
Stuttg-art, frá Ragnari Gunnarssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
FYRIR hæstarétti í DUsseldorf er
núna verið að fjalla um mál Marga-
ret Höke, fyrrverandi einkaritara
forseta Vestur-Þýzkalands. Hún
er sökuð um að hafa á 15 ára tima-
bili útvegað njósnara sovézku
leyniþjónustunnar, KGB, trúnað-
arskjöl um varnarmál, er hún
hafði aðgang að á skrifstofu sinni.
Margret sagði að hún hafí verið
yfír sig ástfangin og þess vegna ekki
almennilega gert sér grein fyrir hvað
hún hafí verið að gera. Menn, sem
málum eru kunnugir, segja að hún
hafí í tímans rás útvegað KGB meiri
og verðmætari upplýsingar en njósn-
arinn Gunter Guillaume, sem starfaði
á skrifstofu kanzlara Vestur-Þýzka-
lands. Olli hann gífurlegu tjóni með
njósnum sínum.
Ríkissaksóknari segir að yfírvöld í
Moskvu hafí með upplýsingunum frá
Margret alltaf vitað hvað Vestur-
Þjóðveijar og Bandaríkjamenn hafí
ætlast fyrir í öryggismálum og þess
vegna getað truflað samstarfíð innan
NATO. Með þessu hafí þeim tekist
að veikja stöðu Vestur-Þjóðveija inn-
an NATO og torveldað samskipti
þeirra við lönd Austur-Evrópu, t.d.
við Austur-Þýzkaland.
Margret Höke sagði í fyrradag
fyrir rétti að hún skildi ekki ennþá
hvemig henni gátu orðið á þessi mis-
tök. Hún var mikils metin af yfír-
mönnum sínum. Þeir sögðu hana
hafa verið áreiðanlega og ábyrgðar-
sama og þess vegna hafí hún haft
nær ótakmarkaðan aðgang að mikil-
vægum leyniskjölum.
Það var 2. júlí 1968 að Margret
hitti Franz Becker fyrir framan síma-
klefa í Bonn. Hann bauð henni góðan
dag og sagðist vera kominn frá Aust-
ur-Þýzkalandi til þess að hefja nám
við vestur-þýzkan háskóla. Margret
varð fljótlega ástfangin af Franz, sem
tókst þarmeð að vinna traust hennar.
Hann sigldi undir fölsku flaggi því
hann var sovézkur njósnari.
Við yfirheyrzlur kom fram að
Margret hafði ekki átt velgengni að
fagna í ástarmálum. Franz Becker
notfærði sér þetta miskunnarlaust.
Hún gerði sér enga grein fyrir því
að hann ætlaði að notfæra sér stöðu
hennar. Þau höfðu og verið lengi
saman þegar Franz bað hana að ljós-
mynda fyrir sig nokkur skjöl á
forsetaskrifstofunni.
Margret hafði aðgang að skjölum
yfír leynilegar NATO-æfingar og yfír
neyðaráætlanir vestur-þýzkra al-
mannavama. Einnig hafði hún
aðgang að skýrslum vestur-þýzku
leyniþjónustunnar, M.A.D., og vest-
ur-þýzka landvamaráðuneytisins.
Hluta þessara gagna ljósmyndaði
Margret með lítilli ljósmyndavél sem
var falin í varalit.
Margret sagði fyrir rettinum að
hún styddi stjómarskrá Vestur-
Þýzkalands og væri fylgjandi ríkjandi
þjóðfélagskerfí. Hún sagði að eina
hugsanlega ástæðan fyrir gerðum
sínum væri samband þeirra Franz
Becker.
Bof ors-hneykslið:
Indlandsstjóm vill rann-
saka bankareikninga
Bern, Nýju-Delhi, Reuter.
SENDINEFND indversku ríkis-
stjórnarinnar hefur byrjað
viðræður við svissnesk yfirvöld
um möguleikann á að fá aflétt
LibbyV óskar stjórn og starfsfólki
Nathan&Olsenhf
til hamingju með 75 ára afmœlið.
Bestu óskir um
heillaríka framtíð.
LibbyV
LibbuV
LibbyV
bankaleynd varðandi einkareikn-
inga indverskra borgara í sviss-
neskum bönkum. Er ætlunin að
rannsaka hvort staðhæfingar um
mútur til indverskra embættis-
manna í tengslum við sölu á
sænskum fallbyssum til Indlands
eigi við rök að styðjast.
Sendimennimir komu til Bem í
fyrradag. Talsmaður svissneska
dómsmálaráðuneytisins sagði þá
ekki hafa nefnt Bofors-málið sérs-
taklega en en viljað kynna sér
lögfræðileg atriði varðandi banka-
leypd.
í skýrslu, sem sænska stjómin
lét gera nýlega, kemur fram að
indverskir aðilar fengu greiddar um
flörutíu milljónir Bandaríkjadala í
tengslum við vopnasöluna en stjóm
Bofors-verksmiðjanna segir þær
greiðslur hafa verið fullkomlega
löglegar. Hluta skýslunnar hefur
verið haldið leyndum en talsmaður
indversku stjómarinnar sagði í gær
að Rajiv Gandhi mjmdi biðja bæði
sænsku stjómina og stjóm Bofors
um nöfn og önnur atriði varðandi
greiðslumar margfrægu.
Útbreiddasta dagblað Indlands,
The Indian Express, hefur ráðist
harkalega á Gandhi út af málinu
og ásakað hann um að gera ekki
gangskör að því að upplýsa málið.
Einnig segir blaðið talsmenn ríkis-
stjómarinnar rangtúlka ummæli
sænsku skýrslunnar til að reyna að
þagga málið niður.
I dag eru þingkosningar í norð-
ur-indverska ríkinu Haryana þar
sem stjómarflokkur Gandhis, Kon-
gressflokkur I hefur ávallt haft
mikið fylgi. Skoðanakannanir hafa
sýnt minnkandi fylgi stjómar-
flokksins og er Bofors-hneykslið
talið eiga sinn þátt í því en það
hefur verið eitt af helstu kosninga-
málunum.