Morgunblaðið - 20.06.1987, Side 59

Morgunblaðið - 20.06.1987, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987 59 Skaðsemi óbeinna reykinga Til Velvakanda í upphafí skal endinn skoða seg- ir gamall málsháttur og er hann enn í fullu gildi og á við það mál sem ég ætla að ræða hér. Skað- semi reykinga er alltaf að koma betur og betur í ljós nú á síðari árum, og er talið að 300 íslending- ar deyi árlega af völdum reykinga, ýmist með beinum hætti eða óbein- um. Hvemig í ósköpunum stendur á því að á langflestum stöðum þar sem fólk kemur saman eru reykingar leyfðar bæði innan og utandyra — hvar er réttur hinna sem ekki reykja á þessum stöðum? Samkvæmt bandarískum rann- sóknum lækna og vísindamanna hefur það komið í ljós að lungna- krabbamein er þrisvar til fjórum sinnum algengara hjá fólki sem vinnur á stöðum þar sem reykingar eru lejrfðar en á öðrum stöðum og er þá átt við fólk sem ekki reykir. Það er staðreynd að fólk sem vinn- ur á vínveitingahúsum, hótelum, mötuneytum og á matsölustöðum er í mun meiri hættu að fá lungna- krabbamein eða annað krabbamein en þeir sem vinna í bönkum þar sem reykingar eru ekki leyfðar. Þetta var niðurstaða bandarískra lækna og vísindamanna. Það væri fróðlegt að fá að vita það hversu oft þeir hjá heilbrigðis- eftirlitinu hafa farið til dæmis í vínveitingahúsin og mælt mengun- ina þar undanfarin ár, sem er mun hættulegri en sú litla mengun sem kemur frá bílum eða verksmiðjum hér á landi, sem þeir hafa svo miklar áhyggjur af. Eru þetta nú glæsileg vmnubrögð. Og það er kominn tími til þess að fólk fari að gera sér grein fyrir því þegar það fer í vínveitingahús- in að skemmta sér að það er að setja sjálft sig í hættu. Eigendur vínveitingahúsanna setja bæði starfsfólk sitt í hættu og líka gesti sína með því að leyfa reykingar á þessum stöðum. Það eru engar ýkjur að fólk er nánast hvergi óhult fyrir tóbaksreyknum. í því sambandi vil ég geta þess að ég fór í Templarahöllina, sem er hús stórstúku íslands, í vetur tii að skemmta mér en ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Mjög víða voru öskubakkar og í aðal dans- salnum var öskubakki á hveiju borði og allir máttu reykja sem vildu. Er þetta nú í anda íslenskra templara og hugsjóna þeirra? Það þarf að setja stranga löggjöf um það að reykingar séu bannaðar á öllum mannamótum; í kvikmynda- húsum, vínveitingahúsum, leik- húsum, hótelum, matsöluhúsum, mötuneytum og víðar. Það er aug- ljóst að úr sjúkdómum sem rekja má til óbeinna reykinga hér á landi deyja mun fleiri en til dæmis úr eyðni og því er löngu tímabært að fara nú að taka á þessum málum og láta þetta mál hafa forgang í heilbrigðiskerfínu. Bindindismaður Þröngar akreinar á Stekkjarbakka Til Velvakanda: Ökumaður í Breiðholti skrifar. Ég er sammála ökumanninum sem skrifaði nýlega í Velvakanda um þröngar akreinar á Stekkjar- bakka á móts við söluskálann Staldrið. í fyrsta lagi skagar eyjan á gatnamótum Steklq'arbakka og Reykjanesbrautar of langt út í göt- una. Þetta er bagalegt þegar ekið er af Reykjanesbraut til austurs inn á Stekkjarbakka, á vinstri akrein. Þama eru tvær akreinar til austurs og vegna þrengsla má oft sjá bilana á vinstri akrein rekast á eyjuna (eins og glöggt má sjá af dekkjaför- um þar). Þetta á sérstaklega við þegar strætisvagnar eru á hægri akreininni og taka mikið rými á beygjunni. Annað er furðulegt við þessar framkvæmdir. Á Stekkjar- bakkanum á mótum Grænastekks Þessir hringdu . . Þökkum Guði fyrir það sem okkur er veitt Helgi Elíasson hringdi: „Mig langar að koma á fram- færi þakklæti til sr. Pranks M. Halldórssonar fyrir ræðu hans í Dómkirkjunni 17. júní, þar sem hann áminnti íslensku þjóðina um að biðja hvorki um auðlegð né fátækt, heldur sinn deilda verð. Mér fínnst í raun og veru að við var gömul hliðarrein frá dögum vinstri aksturs þegar strætisvagnar sem komu upp Blesugróf stönsuðu þama á hominu. Þessi hliðarrein nýttist vel í hægri akstri þegar bílar beygðu af Stekkjarbakka upp Grænastekk. Þá viku þeir inn á hliðarreinina áður en beygt var til hægri og þá var bein braut fyrir þá sem á eftir komu og voru á leið í Hólahverfí. Nú hefur einhver reglustikuverkfræðingurinn (sem kann ef til vill að mæla með reglu- stiku á götuuppdrætti en virðist ekki hafa bílpróf) ákveðið að loka hliðarreininni með steyptum kanti. Sá hinn sami sem mældi þetta á uppdrættinum ætti að aka á eftir þeim bílum sem beygja upp Græn- astekk og upplifa þær tafir sem hljótast af þegar ökumennimir hægja á ferðinni á miðjum Stekkjar- Sr. Frank M. Halldórsson séum of kröfuhörð því mikill meirihluti jarðarbúa verður að sætta sig við mun lakari lífskjör en íslendingar. Við ættum að bakka í stað þess að geta notfært sér hliðarreinina og greitt fyrir umferðinni. Þetta er svo sannarlega afturför því að þama er mikil um- ferð bíla. Sams konar reglustikuað- ferð hefur verið viðhöfð í Seljahverfi þegar götur og bílastæði vom hönn- uð. Þar er hreinlega ekki ætlast til að gestir komi akandi að húsunum og ef maður villist inn í rangan botnlanga er ekki viðlit að snúa við nema aka upp á gangstétt eða inn á bílastæði húsanna. Ég skora á þá sem þessum málum ráða að skoða staðreyndir. Óframkvæman- legt er að breikka götumar í Seljahverfínu héðan af, en lítið mál er að brjóta kantinn við Grænastekk og opna inn á gömlu hliðarreinina á nýjan leik. Ekki veitir af að liðka fyrir umferðinni, jafn hrikaleg og hún er orðin. þakka Guði fyrir allt sem okkur er veitt og fara betur með það sem við eigum. Þá langar mig til að minna á hin þekktu orð Thom- asar Jefferson Bandaríkjaforseta: Kostgæfínn lestur hinnar helgu bókar skapar betri borgara, betri feður og betri eiginmenn. íslendingar em mikil bókaþjóð en gleymist okkur ekki stundum að lesa bók bókana af kostgæfni?" Myndavél Myndavél fannst við Fríkirkju- veg 17. júní. Eigandi hennar getur hringt í síma 44708. Kettlingur gef- ins Fallegur kettlingur, svartur og hvítur, fæst gefins. Upplýsingar í síma 686901. Sólstofur 10-13 fermetra. Uppsettar fyrir innan við kr. 100.000 Vönduð gróðurhús. Verð frá kr. 48.000 - 78.000 »r Sýningar- & sölutjaldið sími 626644 Borgartúni 26 (lóðin bak við Bílanaust) Sýning um helgma. Opið laugardag kl. 10-17, sunnudag 14-17. Vandaðir og traustir tjaldvagnar frá Camp-Let á 13’ dekkjum. Uppsettir á 3 mínútum með fortjaldi. M Stór og óvenju vönduð hjólhýsi á hag- stæðu verði. Góðir greiðsluskilmálar. Einnig fyrirliggjandi vandaðar kerrur, t.d fólksbíla-, jeppa-, kassakerrur og stórar kerrur með sturtubúnaði. Gísli Jónsson og Co. hf Sundaborg 11, sími 686644

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.