Morgunblaðið - 25.06.1987, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1987
Aðeins mótefnamæling
allra kemur til greina
Rætt við þýskan heimilislækni um alnæmi
Dr. Niels Aunagen, heimilislæknir í Freiburg, V-Þýskalandi.
Freiburg, V-Þýskalandi.
Umræðan um umhverfísmál,
kjamorkuvopn og atvinnuleysi
fellur um þessar mundir í skugg-
ann af umræðunni um alnæmi.
Allir fjölmiðlar í Þýskalandi eru
uppfullir af frásögnum um sjúk-
dóminn; hveijar séu smitleiðir,
hvemig skuli vama smiti og vöng-
um velt yfir því hvað hægt sé að
gera. Almenn upplýsing og notk-
un smokka em þeir þættir sem
stjómvöld í Þýskalandi beita sér
fjúir. Að fyrirskipan Ritu Sussm-
uth heilbrigðismálaráðherra var
fyrir einu og hálfu ári sendur
bæklingur á hvert heimili. Lítið
var gert úr hættunni á alnæmi
fyrir „venjulegt" fólk heldur var
talið vandamál homma og eitur-
lyfjaneytenda. Fyrir hálfu ári
hófst smokkaherferðin en upp á
síðkastið hefur dregið úr þeim
áróðri og í staðinn hefur áherslan
verið lögð á að fólk hafí einungis
einn „félaga".
Það em þó ekki allir á einu
máli um gagnsemi smokkanna og
áskoranir um afturhald í kynferð-
ismálum. í Þýskalandi em starf-
rækt samtökin „Verein zu AIDS
verhútung e.V.“, þ.e. samtök til
vamar alnæmi. Aðeins læknar,
tannlæknar og lyfjafræðingar
geta gerst meðlimir. í Freiburg
er starfandi heimilislæknir að
nafni Niels Auhagen. Hann er
meðlimur í samtökunum og hefur
hann verið ötull við að halda fyrir-
lestra í Þýskalandi og Austurríki
til að kynna hugmyndir þeirra um
ráðstafanir gegn alnæmi. Þótti
mér fróðlegt að kynna mér þessar
hugmjmdir og tók hann tali.
— Niels Auhagen, hvaða skoð-
un hefur þú á þeirri herferð sem
fer núna fram á Vesturlöndum
um notkun smokka og áhættu-
minna kjmlíf?
„Ef tekið er mið af sóttvömum,
þá tel ég að almenn notkun á
smokkum sé langt því frá full-
nægjandi lausn ef það er markmið
okkar að koma í veg fyrir út-
breiðslu á þessum hættulega
sjúkdómi.“
— Ef þú værir í dag heilbrigð-
ismálaráðherra hvað myndir þú
gera?
„Árið 1985 komum við í „sam-
tökum til vamar alnæmi" með
hugmyndir sem samræmdust lög-
um um sóttvamir. Þar ber fyrst
að nefna mælingar á HlV-mótefni
hjá allri þjóðinni. Upplýsa hvem
einstakan um niðurstöður og já-
kvæðu tilfellin yrði að skrá niður.“
— ... með nafni?
„Já, því e.t.v. þyrftum við að
taka blóð úr umferð ef um stað-
festa alnæmissýkingu væri að
ræða. Einnig væri nauðsynlegt
að ná í alla þá sem sjúklingurinn
hefur haft kjmferðislegt samband
við.“
— Þú vilt mótefnamæla alla
þýsku þjóðina. Á íslandi deila
Skúli Johnsen borgarlæknir og
Ólafur Ólafsson landlæknir um
það hvort við fengjum alla íslend-
inga í mælingu ef af stað færi
almenn mótefnamæling.
„í Þýskalandi em það heilbrigð-
isyfírvöld sem sjá um að lögum
um heilbrigðismál sé framfylgt.
Ef upp kæmi sú staða að einhver
neitaði að koma í mótefnamæl-
ingu þá þyrfti að grípa til þving-
unaraðgerða. Auðvitað á það
sama að gilda um alnæmi og aðr-
ar sóttir eins og kúabólu, berkla
o.s.frv. íslendingar hafa háþróað
heilbrigðiskerfí og því ætti fram-
kvæmd mælinganna ekki að vera
vandamál."
— Göngum út frá því að allir
íslendingar yrðu alnæmisprófaðir.
Hvað getum við þá gert við þá
ferðamenn sem koma til landsins?
„Sennilega jrði ísland fyrsta
landið með hnitmiðaðar aðgerðir
gegn þessum skæða sjúkdómi,
sem mjmdi jafnframt virka sem
aðdráttarafl á erlenda ferðamenn.
Ég mæli með því að við komu til
landsins yrðu ferðamenn að
framvísa mælingum sem ekki
væru eldri en 8—10 daga gamlar.
Ef einhver ferðamaður kæmi án
þessara skilríkja væri hægt að
framkvæma mælingar við komu
og lægju niðurstöður fyrir á
hálftíma."
— Hvert er svo næsta skref?
Hvað verður um þá sem mælast
jákvæðir?
„Þar sem sjúkdómurinn er ekki
bráðsmitandi er ekki þörf á að
einangra fólk sem eru fómarlömb
þessa banvæna sjúkdóms. Það
eina sem þeir mega ekki gera er
að smita næsta mann. Það þýðir
að smitaðir mega ekki stunda
kynlíf. Hver sem gerir það stofnar
nánustu vinum sínum í lífshættu.
Þess vegna er okkar tillaga að
húðflúra þann sýkta en þannig
að enginn komi til með að sjá það
í daglegu lífí, t.d. á rassinn. Kæmi
það fyrst í ljós við kynmök ef
annar aðilinn væri sýktur. Á þess-
ari ráðstöfun er aðeins ein réttlæt-
ing. Hún er sú að með henni
komum við í veg fyrir þjáningu
margra, þ.e. dauðann. Ég vil sér-
staklega undirstrika það að eftir
mikla umhugsun er þetta eina
mögulega mannlega ráðstöfunin
sem vemdar þá sem enn em ekki
sýktir."
— Er ekki hægt að draga úr
sjúkdóminum með almennri
fræðslu og með því að leggja
áherslu á tryggð innan hjóna-
bandsins?
„í fyrsta lagi getum við Iitið til
Bandaríkjanna. Þá sjáum við að
ekkert hefur dregið úr sjúkdómn-
um þrátt fyrir frábæra upplýs-
ingaherferð. í öðm lagi er það
mikilvægast af öllu að hver ein-
staklingur geti ákveðið sjálfur
hvaða lífsform hann velur sér,
þ.e. hvort hann er gagn-, sam-
eða tvíkynhneigður eða hvort
hann stundar ein- eða fjölkvæni.
Það er einkamál hvers og eins og
við læknar verðum að sjá til þess
að vemda hvem og einn óháð því
lífsformi sem einstaklingurinn
hefur valið sér.“
— Hvemig líst þér á þessar
aðgerðir í Bayem um mótefna-
mælingar í áhættuhópum?
„Alnæmi er ekki bundið við
neina áhættuhópa. Því getur mót-
efnamæling á vissum hópum
manna einungis leitt til misréttis
sem hinsvegar gefur engan
árangur í baráttunni við útrým-
ingu veimnnar. Það eina sem
kemur til greina er að mótefna-
mæla alla.“
— Hve ömgg er mótefnamæl-
ingin?
„Notaðar em ELISA-mælingar
þar sem falsneikvæð próf em í
1—2% tilfella. Þar yrði að senda
mælingamar í enn jákvæðari próf.
Með þessum prófum væri hægt
að mæla alla með nánast 100%
öryggi.
— Getur þú hugsað þér aðrar
ráðstafanir gegn alnæmi?
„Ef okkar hugmyndir um lausn
á þessum vanda hefðu komist í
gegn árið 1985, þegar við komum
fyrst fram með þær, þá hefðu
10—20 þúsund manns látist af
völdum alnæmis í stað þess að
þurfa að reikna með 100—200
þúsund manns. Það em ekki
nokkrar aðrar ráðstafanir sem
jafnframt því að vera árangursrík-
ar gegn veimnni og um leið bjarga
mannslífum.
— Hvað getum við gert?
„Ef þið íslendingar mynduð
mótefnamæla alla þýddi það að
þið yrðuð fyrst til þess að hrinda
þessum hugmjmdum í fram-
kvæmd og verða þannig fyrir-
mynd annarra þjóða. í fyrsta lagi
þýddi það að þið hefðuð árang-
ursríkustu aðferðina til að vemda
sjálfsákvörðunarrétt einstaklings-
ins. í öðm lagi jrði þetta vemd
fyrir fómarlömb sjúkdómsins til
að lifa eðlilegu lífí að því undan-
skildu að geta stundað kynlíf.
Kristín S. Hjálmtýsdóttir
fréttaritari.
Aðalfundur SIR:
Gjaldskrá Landsvirkj-
unar endurskoðuð
Morgunblaðið/Albert Eymundsson
MEGIN viðfangsefni aðal-
fundar Sambands íslenskra
rafveitna (SÍR), sem haldinn
var á Höfn í Homafirði dag-
ana 10.—11. júni sl., var auk
aðalfundarstarfa að fjalla um
gjaldskrá Landsvirkjunar,
innheimtumál rafveitna, orku-
getu raforkukerfisins og
samband þess og Háskóla ís-
lands.
Þá var og fjallað um rannsókn-
ir og þróun á raforkusviðinu og í
því sambandi sérstaklega rætt um
athuganir á raforkukerfínu, bil-
anaskráningu og tölvuskráningu
lagna og tækjakerfis.
Eftir rækilegar umræður um
fyrirhugaða gjaldskrárbreytingu
Landsvirkjunar samþykkti fund-
urinn samhljóða tillögu þar sem
því var fagnað að gjaldskráin skuli
hafa verið tekin til endurskoðunar
með það fyrir augum m.a. að verð-
hlutfall afls og orku endurspegli
tilkostnað við vinnslu og flutning
orkunnar. Fundurinn telur nauð-
synlegt að eyða ríkjandi óvissu
um heildsöluverð raforku sem
Frá fundinum.
fyrst með því að ákvörðun verði
tekin um nýja gjaldskrá Lands-
virkjunar. Jafnframt var lögð
áhersla á að dreifíveitur og not-
endur fái nægilegan aðlögun-
artíma að breyttu verði og
gjaldskrá.
í sambandi við umræðumar
kom fram sú skoðun að mikilvægt
væri að stjómvöld raski ekki sam-
keppnisaðstöðu raforku með þeim
aðflutningsgjöldum og sköttum
eins og nú er gert.
Á fundinum voru fulltrúar flest-
allra raforkufyrirtækja landsins
og þeirra stofnana sem þeim
tengjast: Rafmagnseftirlits ríkis-
ins, verkfræðideild Háskólans,
Orkustofnunar og iðnaðarráðu-
nejdis.
Á aðalfundinum fór fram
stjómarkjör og voru þessir kosnir
í stjóm:
Formaður: Aðalsteinn Guðjohn-
Aðalsteinn Guðjohnsen, raf-
magnsstjóri Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, var kosinn
formaður.
sen, rafmagnsstjóri Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Meðstjómend-
ur: Eiríkur Bogason, rafveitustjóri
Vestmannaeyja, Kristján Haralds-
son, orkubússtjóri Vestfjarða,
Sverrir Sveinsson, rafveitustjóri
Sigluíjarðar. Fyrir í stjóm vom
þeir: Halldór Jónatansson, for-
stjóri Landsvirkjunar, Sigurður
Ágústsson, rafveitustjóri Sauðár-
króks, og Sævar Sörensson,
rekstrarstjóri Hitaveitu Suður-
nesja.
- A.E.
Kjúklingabænd-
ur mótmæla
hækkun kjarn-
fóðurgjalds
MORGUNBLAÐINU hefur bo-
rist eftirfarandi:
„Fundur haldinn í félagi kjúkl-
ingabænda þann 19. júní sl.
mótmælir harðlega fyrirhugaðri
hækkun kjamfóðurgjalda sem
nýta á til stuðnings við sölu á
kindakjötsfjallinu. Fyrirhuguð
hækkun gjaldsins mun leiða til
hækkunar á útsöluverði kjúkl-
ingakjöts sem nemur um kr. 45,00
á hvert kg. og er því augljóst að
aðgerðin miðar að því að beina
neyslu almennings firá hvítu kjöti
og er því bein ógnun við afkomu
félagsmanna okkar.“
Netaveiðar
bannaðar 1. júlí
til 15. ágúst
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
gefíð út reglugerð um bann við
netaveiðum nú í sumar. Sam-
kvæmt reglugerð þessari em allar
veiðar í þorskfísknet bannaðar
tímabilið 1. júlí til 15. ágúst, að
báðum dögum meðtöldum.