Morgunblaðið - 25.06.1987, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1987
69
Núverandi heimili aldraðra á efri hœð hússins. Niðri er heilsugæsl-
an og tannlæknastofur í viðbyggingu.
ans, Guðmundar Ingvarssonar, og
fleiri hreppsnefndarmanna, að fyrr
en síðar verði farið að skrá sögu
Þingeyrar og nágrennis, þeim yngri
til íhugunar, því til erlendra þjóða
og samskipta við þær lærðist Dýr-
firðingum margt, s.s. verkmennt
ýmiskonar er nýttist því fólki er þá
stóð í fararbroddi. En það var lán
mikið að það tókst að koma í veg
fyrir að Frakkar settust hér að á
19. öld með útgerðarbæinn sinn
ásamt öllu er þvf átti að fylgja,
nokkrum þúsundum franskra
manna. Hvar væri þá íslensk tunga
töluð í Dýrafírði og víðar? Þingeyr-
ingar báru þá gæfu til að standa
saman sem einn maður er Alþingi
fjallaði um þau mál og tókst með
harðfylgi að forða þeirri vá er fyrir
dyrum stóð. Af þeirri sögu má
margt læra enn í dag, að sameinað-
ir geta Þingeyringar lyft Grettistök-
um þótt ekki sé mannmergð fyrir
að fara.
Ótal verkefni bfða vinnufúsra
handa og þau eru óþijótandi, sagði
Jónas, en það er gamla sagan, til
þess þarf peninga, mikla peninga
og allt tekur sinn tíma. Hrepps-
nefnd vinnur stíft að þvf að knýja
á um bættar samgöngur, má þar
fyrst nefna Dýrafjarðarbrúna að
ógleymdum jarðgöngunum sem
tengja á saman byggðimar á norð-
anverðum Vestfjörðunum, voru
lokaorð Jónasar.
- Hulda
laugsson skólastjóri á Núpi sendi á
undan sér eyfírskar plöntur er festu
rætur árið 1906 og hóf síðan til
vegs og virðingar skrúðgarðarækt
f Dýrafirði með tilurð skrúðs f
Núpslandi. Lengi býr að fyrstu
gerð, því þar lærðu nemendur að
rækta garðinn sinn, bæði matjurtir,
skrautblóm og skógrækt.
Að fortíð skal hyg-gja
er framtíð skal byggja
I spjalli við eldri borgara kemur
fram að þeim er það gleðiefni að
haldið skuli í gamlar hefðir af þeim
er stjóma þessu litla þorpi og líka
haldið til haga því sem minnir á
gengnar kynslóðir sem af forsjálni
bjuggu í haginn fyrir komandi kyn-
slóðir. Þá völdust til forystu stór-
huga konur og menn er gerðu
garðinn frægan hvað snertir menn-
ingu og mennt hreppsbúa, reyndar
beggja megin flarðarins sem enn
eymir af, þótt ýmsu hafí verið kast-
að fyrir róða. Sem dæmi má nefna
að 1904 var stofnað í Þingeyrar-
hreppi brunabótafélag er nefíidist
Verðandi og starfaði það þar til
Brunabótafélag íslands var stofnað
og reyndar lengur, til ársins 1923.
Árið 1935 vom í þessum sjóði kr.
32.000. Mörg undanfarin ár hefur
fé verið varið úr þessum sjóði til
verðlaunaveitinga við gmnnskóla
Þingeyrar.
Full ástæða er að dómi oddvit-
Sýslunefnd Rangárvallasýslu:
Harmar eftirlits-
lausan innflutn-
ing fjórhjóla
AÐALFUNDUR sýslunefndar
Rangárvallasýslu var haldinn í
Skógum undir Eyjafjöllum dag-
ana 11. og 12. júní siðastliðinn.
Á fundinum var fjöldi mála
ræddur; m.a. var harkalega veist
að innflutningi fjórhjóla. Allir
aðalmenn voru viðstaddir, auk
sýslumannsins, Friðjóns Guðröð-
arsonar, sem er oddviti nefndar-
innar.
Tekjur og gjöld sýslusjóðs Rang-
árvallasýslu 1987 nema kr.
4.800.000 og var þeirri upphæð að
mestu leyti varið til mennta-, fé-
lags- og menningarmála. Til Fjöl-
brautarskóla Suðurlands var varið
1,6 milljón, 800.000 til byggða- og
skjalasafns í Skógum, 250.000 til
tækja- og búnaðarkaupa í stjóm-
stöð almannavama og 200.000 til
undirbúnings og útgáfu sýsluritsins
Goðasteins.
Tekjur sýsluvegarsjóðar námu
rúmlega 10 milljónum. 3,5 milljón-
um var varið til nýbygginga vega,
6,3 í viðhald og 250.000 í ófyrirséð-
an kostnað.
Sýslunefnd ályktaði um hin ýmsu
mál. Meðal þeirra var akstur íj'ór-
hjóla. Sýsluneftidin harmaði það að
fijáls og eftirlitslaus innflutningur
skyldi hafínn, þar eð stórfelld nátt-
úruspjöll hafí þegar orðið af völdum
þeirra viðs vegar um landið, auk
þess sem veruleg slysahætta fylgi
þeim. Skorað var á lögreglu að
gera skyldu sína og hefta ólöglega
meðferð þessara tækja og mælst
til þess við sveitarstjómir, að þær
komi upp sérstökum afmörkuðum
og afgirtum æfíngasvæðum fyrir
fjórhjólin. Einnig verði kannaðir
möguleikar á því að fjórhjólin megi
ekki aka um vegi landsins eins og
létt og þung bifhjól.
Sýslunefnd lýsti og yfír óánægju
sinni með þá seinkun, sem orðið
hefði á áætlunum um gerð nýrrar
brúar yfír Markarfljót og fullnaðar-
uppbyggingu vegarins að henni.
Lagði fundurinn áherslu á að þess-
um framkvæmdum verði hraðað í
beinu framhaldi af brúargerð við
Óseyrames, þannig að staðið verði
við fyrri áætlanir um að brúin verði
tekin í notkun 1990.
Sýslunefnd vakti einnig athygli
á nauðsyn þess að setja ákveðnar
strangari reglu varðandi umgengi
ferðamanna t.d. í Þórsmörk og
Landmannalaugum. Einnig var á
það bent, að menningarminjar í
sýslunni væru víða í vanrækslu.
Fimmtudagskvöldið ll.júní kom
sýslunefnd V estur-Skaftfellinga í
kvöldverðarboð að Skógum. Að
honum loknum hélt landgræðslu-
stjóri, Sveinn Runólfsson erindi um
gróðurverndar- og landgræðslumál.
Fræðslustjóri Suðurlands kom á
sýslufund og flutti erindi um
framtíð skólahalds á Skógum, en
sýslunefndir Rangárvalla- og Vest-
ur-Skaftafellssýslu standa sameig-
inlega að uppbyggingu Skóga.
Keppt í ralli í Borg-
arfj arðarhéruðum
SKAGARALL hefst á Akranesi á
morgun, föstudag, og hafa 27
bifreiðir verið skráðar til leiks.
Er þetta í fyrsta sinn sem Skaga-
menn standa fyrir rallkeppni og
nú eiga Akumesingar einnig
fulltrúa-í keppninni.
Rall þetta er liður í keppninni
um íslandsmeistaratitil rallöku-
manna. Bifreiðimar verða ræstar á
Akratorgi kl. 18 á morgun og verð-
ur þá ekið um Leirármela. Keppnin
heldur svo áfram á laugardags-
morgun kl. 6, en þá liggur leiðin
vítt og breitt um Borgarfjarðar-
héruð. Vonast Skagamenn til að
keppni þessi verði fastur liður á
keppnisskrá rallökumanna á næstu
árum.
Ferðaþjónusta Akumesinga,
Skagaferðir, sér um framkvæmd
rallsins, í samvinnu við Bifreiða-
íþróttaklúbb Borgarfjarðar. Á með-
al keppenda í Skagaralli verða
SkagaraU hefst á Akranesi á morgun og eiga Akumesingar nú f
fyrsta sinn fulltrúa í rallkeppni. Það em þeir Guðjón Björa Guð-
mundsson og Jökull Svavarsson, sem hér era við farkost sinn.
íslandsmeistaramir Jón Ragnars-
son og Rúnar Jónsson. Þá munu
Akumesingar í fyrsta sinn eiga
fulltrúa í rallkeppni, sem eru þeir
Guðjón Bjöm Guðmundsson og Jök-
ull Svavarsson. Þeir hafa áður
starfað sem aðstoðarmenn í rall-
keppni.
Islandsmeistarakeppni írallý cross:
Fjórhjóladrifin forysta-
„ÉG ER dauðþreyttur, þetta var
mikið puð, því brautin var mjög
erfið. Sigurinn sýnir hvað bíllinn
getur,“ sagði Birgir Viðar Hall-
dórsson i samtali við Morgun-
blaðið, en hann vann rallý*
cross-keppni Bifreiðaíþrótta-
klúbbs Reykjavíkur á sunnudag-
inn. Ók Birgir Mazda 323 4x4
og hefur nú góða forystu í ís-
landsmeistarakeppninni i rallý
cross.
Brautin, sem keppt var á, var
gróf eftir fyrstu umferðimar og því
erfíð yfírferðar. Fjórhjóladrifinn
keppnisbíll Birgis naut góðs af því,
en bíll hans var sá eini sem ekki
er sérstaklega hannaður fyrir rallý
cross — er óbreyttur fjölskyldubíll.
„Ég átti ekki von á bílnum svona
sterkum í rallý cross og mun nú
einbeita mér að svona akstri;“ sagði
Birgir. „Ég reyni að ná í Islands-
meistaratitilinn, ætla að létta bílinn
fyrir næstu keppni, því harkan verð-
ur ömgglega meiri."
Það gekk á ýmsu í undanriðlum
fyrir úrslit. Snorri Harðarson var
manna duglegastur að skemmta
áhorfendum. Fyrst missti hann aft-
urhjól undan bílnum á fullri ferð
Lánleysi í Skotlandsf ör
íslenskra rallökumanna
ÞEIR vora lánlausir islensku
rallökumennirnir sem kepptu i
skoska alþjóðarallinu um miðjan
mánuðinn. Þeir Þorsteinn Inga-
son og Gordon Dean á Toyota
og Birgir Viðar Halldórsson og
Úlfar Eysteinsson á Lada féllu
úr leik á einni af síðustu sérleið-
um keppninnar. Toyota-bíllinn
endaði förina á tré, en vél Lada-
bílsins bilaði.
Ævintýrið byijaði heldur illa hjá
Þorsteini og Gordon þegar púst-
kerfíð losnaði og festi um leið stýrið.
Fór bíll þeirra útaf og þeir töpuðu
miklum tíma, en náðu þó að vinna
upp talsverðan tíma og voru í 47.
sæti eftir fyrri dag. Húddið fauk
upp seinna í keppninni og fór Þor-
steinn lítillega útaf, þar sem hann
sá ekki neitt. Gátu Þorsteinn og
Gordon fest húddið aftur og héldu
áfram. Eftir þetta gekk aksturinn
áfallalaust og á öðrum degi voru
þeir komnir í 36. sæti. En lánið lék
ekki við kappana á síðasta degi. Á
þriðju síðustu sérleið lenti bíllinn
útaf og á tré og stórskemmdist.
Þá voru Þorsteinn og Gordon í 34.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Voldugt tré stöðvaði Þorstein og Gordon Dean, en þeir vora þá i
34. sæti. 45 bílar luku keppni.
sæti, höfðu á leiðinni á undan náð
25. besta tíma, en ekki klifrað upp
um sæti.
Birgir og Úlfar fóru öllu rólegar,
vermdu botnsætið á afllitlum Lada-
bfinum og litu á keppnina sem
reynslu. Þau 70 hestöfl sem þeir
höfðu til umráða urðu máttlaus í
enda sömu leiðar og Þorsteinn fór
útaf. Komst Ladan 300 metrum
lengra en Toyotan áður en bfllinn
gafst endanlega upp, með ónýta
vél. Sigurvegari í skoska rallinu
varð David Llewellin á Audi
Quattro, en Jimmy McRae á Ford
Sierra Cosworth varð annar. McRae
hafði haft forystu alla keppnina,
en smávægileg bilun í lokin setti
hann úr fyrsta sætinu.
- GR
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Úrslitin ráðin. Birgir Viðar á fjórþjóladrifnum Mazda skilur andstæð-
ingana eftir í startinu. Ríkharður Kristinsson á Toyota fylgir á eftir
Og Sigurður Óli einnig á Toyota.
þg stöðvaðist og síðan þegar hann
var í þá mund að vinna sig í úrslit
flaug framhjól undan og út í móa.
Felgumar reyndust of lélegar fyrir
átökin, en brautin var þung yfír-
ferðar. Stendur það það þó til bóta,
því hana á að lagfæra fyrir næstu
keppni og kosta miklu til. í úrslitum
tók Birgir strax forystu, á undan
Ríkharði Kristinssyni á Toyota sem
hafði ekið með miklum látum í und-
anriðlum. Birgir hélt forystunni
örugglega og vann sinn annan sigur
í röð. Ríkharður varð annar en Sig-
urður óli Gunnarsson á Toyota
þriðji. Toyota Jóhanns Egilssonan'**
varð síðan í fjórða sæti.
- GR