Morgunblaðið - 30.06.1987, Blaðsíða 52
T8<H IVfOf, 06 HUUA<JTJM31Htl ,GIGAtia>!!JDH()M
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987
8ð
52
fclk f
fréttum
EIÐISTORG113 - SÍMI: 6113 13
v»
Góðkunningjar lögreglunnar & lögreglustöðinni í Köln; Ivan sjö ára í miðið ásamt systur sinni
Karibar, tólf ára t.v. og telpu úr þjófaflokknum.
Fingralöng sígaunabörn í Köln
MUnchen, fri Bergljótu Fríðríludóttur fréttaritara Morgunblaðsins.
Imiðbæ Kölnar geta menn vart
lengur gengið óhultir um götur
borgarinnar því síðustu mánuði
hafa um 30 sígaunaböm farið í
fiokkum um borgina og rænt sak-
lausa ferðalanga á götum úti.
Lögregla og borgaryfirvöld standa
ráðþrota frammi fyrir þessu
vandamáli sem skiljanlega hefur
mikil áhrif á ferðamannastrauminn
til Kölnar.
Bömin í þjófaflokknum sem eru
á aldrinum sjö til fjórtán ára em
öll úr sígaunabúðum sem reistar
vom skammt fyrir utan Köln s.l.
haust. Einn af góðkunningjum lög-
reglunnar er hinn sjö ára gamli
Ivan og hin tólf ára gamla systir
hans Karibar. Þau vinna ævinlega
saman og em vægast sagt afkasta-
mikil. Ivan velur úr ferðamanna-
straumnum eitthvert fómarlamb,
oft eldri manneskju, og vekur á
sér athygli. Viðkomandi hrífst oft
af stóm brúnu bamsaugunum og
síðum hárlokkunum og gefur sig
á tal við Ivan. Á meðan notar syst-
ir hans, Karibar, tækifærið og
hirðir á augabragði peninga, ferða-
tékka og annað slíkt úr vösum
fómarlambsins, sem uppgötvar
þjófnaðinn oftast ekki fyrr en
systkinin em löngu á bak og burt.
Þennan leik hafa þau tvímenn-
ingamir, og tæpir þrír tugir
sígaunabarna að auki, leikið í hálft
ár og lögregluyfírvöld vita ekki
lengur sitt ijúkandi ráð. Bömin em
öll undir lögaldri svo ekki er hægt
að refsa þeim eða setja þau í fang-
elsi. Þegar þau em staðin að verki,
og það gerist daglega, fara lög-
regluþjónamir því með þau á
bamauppeldisheimili í borginni og
skilja þau þar eftir. Þar er hins
vegar ekki hægt að loka þau inni
og venjan er sú að þegar bömin
em búin að borða sig södd, láta
þau sig hverfa. Næsta morgun em
þau svo kominn niður í bæ og tek-
in til við fyrri iðju. Bömin hafa
ekkert að óttast því þau vita að
þeim verður ekki refsað og Ivan
litli er vanur að glotta til lögreglu-
manna þegar þeir koma að sækja
hann, og segja á bjagaðri þýsku:
„Ég ekki refsað, ég bara sjö ára“.
Félagsmálafulltrúi Kölnar hefur
nú ákveðið að veija stórfé og vinnu
til þess að reyna að hjálpa þjófun-
um ungu. Hópur uppeldisfraeðinga
mun í framtíðinni annast bömin,
reyna að vinna traust þeirra og
ná sambandi við flölskyldur eða
skyldmenni. Reynt verður að gera
þeim ljóst að lifibrauð þeirra sé
ólöglegt og allt gert til að koma
undir þau fótum í lífínu.
Þó að sígaunamir í Köln eigi
vægast sagt litlum vinsældum að
fagna meðal borgarbúa þá em
sumir sem segja að borgaryfirvöld
skuldi sígaunum félagslega og
fjárhagslega aðstoð. Á uppgangs-
tímum nazista í Þriðja rikinu var
nefnilega geysilegum fjölda
sígauna safnað saman í Köln og
þeir síðan fluttir þaðan í útrýming-
arbúðimar illræmdu í Auschwitz.
Reuter
Rainer fursti í golfi
Rainer fursti af Mónakó brá sér golfmótið sem hófst á Jónsmessu- heimsfræga spænska golfleikara
í golf daginn fyrir Monte Carlo dag. Hann leikur hér með hinum Severiano Ballesteros.