Morgunblaðið - 30.06.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987
59
Á fjórða þúsund þátttak-
endur í friðarhlaupinu
Hvltri dúfu sleppt I þágu fríðar í heiminum.
ÞÁTTTÖKU íslendinga í al-
heimsfriðarhlaupi Srí Chinmoy
maraþonliðsins lauk með hátíða-
og tónleikahaldi á Lækjartorgi á
sunnudaginn.
íslandshlaupið hófst við Höfða
12. júní s.l. þar sem Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
hljóp fyrsta spölinn. Síðan þá hafa
á fjórða þúsund þátttakendur
hlaupið ríflega 3.200 km en það er
sama vegalengd og hlaupin var í
Ástralíu.
Hlaupinu lauk á sunnudag þegar
fjöldi hlaupara, með Egil Olafsson
söngvara í broddi fylkingar, hljóp
með friðarkyndilinn inn á Lækjar-
torg.
Að sögn Eymundar Matthíasson-
ar, eins af forráðamönnum hlaups-
ins hér á landi, var mikill fjöldi fólks
saman kominn á Lækjartorgi og
höfðu forystumenn stjómmála-
flokkanna gert hlé á störfum sfnum
Morgunblaðið/Árni Sœberg
Forystumenn íslenskra stjórn-
mála höndla friðarkyndilinn.
til þess að vera viðstaddir athöfn-
ina. Þar var þeim afhent friðar-
merki og flutti hver þeirra stutt
ávarp.
Sveinn Bjömsson, forseti íþrótta-
sambands íslands, og Marteinn
Marteinsson, einn af forsvarsmönn-
um hlaupsins hér, fluttu einnig
ávörp en síðan var hvítri dúfu sleppt
í þágu friðar í heiminum. Athöfti-
inni á Lækjartorgi lauk með tón-
leikahaldi og flutningi gamanmála.
Eymundur sagði, í samtali við
Morgunblaðið, að tilgangur með
hlaupinu væri tvenns konar. Annars
vegar sá að vekja athygli á því að
friðurinn byijaði innra með hveijum
einstaklingi og yrði að koma þaðan
út en hins vegar að segja mönnum
það að jörðin sé eitt heimili mann-
kyns eins og Sri Chinmoy boðar.
Chinmoy segir„ að friður verði þeg-
ar mannkynið setur vald kærleikans
ofar kærleika á valdinu" og hafði
Marteinn þetta eftir honum í ávarpi
sínu.
Að sögn Eymundar er enn verið
að hlaupa friðarhlaup í Banda-
ríkjunum, Kanada og Evrópu en
því lýkur endanlega í New York
þann 7. ágúst n.k. Hann sagði að
fulltrúar þeirra Evrópuþjóða sem
tekið hafa þátt í hlaupinu ætluðu'
að hittast við hátíðlega athöfn fyrir
framan hús Sameinuðu Þjóðanna
12. júlí en þá hafa allar Evrópuþjóð-
ir lokið þátttöku. Fulltrúar íslands
verða einnig í New York við lokaat-
höfn hlaupsins.
Sprett úr sporí síðasta spölinn.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum
29. júní
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hœsta Lœgsta Meðal- Magn Heildar-
vorð verð vsrð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 34,30 25,00 31,36 81,4 2.555.000
Ýsa 51,50 45,00 49,01 4,5 224.000
Karfi 16,80 15,40 15,81 3,0
47.000 Koli 25,20 25,20 25,20 1.7 43.000
Ufsi 15,20 12,00 14,72 2,9 43.000
Annað — — 22,48 3,0 67.000
Samtals 30,83 96,6 2.970.000
Annað: Lúða, humar, hlíri og steinbítur. Aflinn kom úr togurunum
Ymi og Hauki Böðvarssyni. Einnig nokkur bátafiskur.
Til sölu í dag: 160 tonn úr Ými, Þórkötlu og Jóni Baldvins. Mest
þorskur, einnig karfi ýsa og ufsi.
Lislama&urinn Karl Lagerfeld hefur í samvinnu vi& CHLOÉ-safnið í Daris hannað þessi
gullfallegu matar- o§ kaflistell ,,Kalablómi5‘‘sem Hutschenreuther framleiðir úr postulini
af bestu gerð.
/ SILFURBÚÐIN
Laugavegi 55, Reykjavík Sími 11066