Morgunblaðið - 30.06.1987, Side 60
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Símamynd/Júlíus Siguijónsson
Heimsmeistararnir lagðir að velli
íslendingar sigruðu heims- og ólympíumeistara Júgóslava 18:15 f landsleik í handknattleik í gærkvöldi f borginni Prilep. Leikurinn
var liður í Júgóslavíumótinu f handknattleik. Á myndinni fagnar íslenska liðið inni í búningsklefa eftir frældlegan sigur. Lengst til
vinstri er Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, og við hlið hans er þjálfarinn, Bogdan Kowalzcyk. Sjá nánar/B 1 og B 4-5
Jón Baldvin skilaði stjórnarmyndunarumboðinu í gær:
Sjálfstæðisflokkur vill
halda tílraunmm áfram
Undirritaður
samningur um
rekstur íslensku
óperunnar:
Ríkið greiðir
laun fastra
starfsmanna
SAMKOMULAG hefur verið
undirritað milli menntamála-
ráðuneytisins, fjármálaráðu-
neytisins og íslensku óperunnar
um rekstrargrundvöll hennar,
þar sem kveðið er á um að
greitt verði úr málum óperunn-
ar. Að sögn Sverris Hermanns-
sonar menntamálaráðherra
mun rfkið greiða laun fastra
starfsmanna við óperuna og sjá
um kostnað við rekstur hús-
næðis hennar.
„í samkomulaginu eru einnig
ákvæði um ógreidd gjöid til ríkisins
frá fyrri árum," sagði mennta-
málaráðherra í viðtali við Morgun-
blaðið. „í þriðrja lagi er í
samkomulaginu ákvæði um §ár-
magn til óperunnar svo hægt sé
að hefja störf á hausti komanda,
_wiuk þess sem greitt verður úr
' lausaskuldum hennar. Við höfum
einnig áhuga á að koma á sam-
starfí milli Þjóðleikhúss, Sinfóníu-
hljómsveitar íslands og íslensku
óperunnar í framtíðinni. Við teljum
mjög mikilvægt að ná þeim kröft-
um sem þar starfa saman.
Ég er ákaflega ánægður með
þennan samning," sagði Sverrir
Hermannsson ennfremur, „og geri
mér von um að framtíð Islensku
óperunnar sé tryggð. Þetta sam-
komulag tókst fýrir mikinn velvilja
fjármálaráðherra, Þorsteins Páls-
sonar, og þeirrar neftidar sem hafði
verið skipuð til að greiða úr þessum
■ -»málum.“
JÓN Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins gekk á
fund forseta íslands kl. 16 í gær
og skilaði af sér umboði til
stjórnarmyndunar, sem hann
hefur haft í tæpar fjórar vikur.
Jón Baldvin lagði áherslu á það
f samtali við fréttamenn að
fundi hans með forseta loknum,
að hann liti þannig á að svo lftið
væri eftir til þess að mynda
ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks, að ekki væri stætt á því
að hans mati, að hætta þessari
tilraun nú.
EJcki var í _gærkveldi búist við
því að forseti Islands tæki ákvörð-
un um það hver fái næstur umboð
til sljómarmyndunar fyrr en í dag,
en Ijóst var af máli Jóns Baldvins
í gær að hann taldi ekki óeðlilegt
að Þorsteinn Pálsson fengi umboð-
ið næstur.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins kom saman til fundar kl. 18 í
gær og þar varð niðurstaðan sú
að leggja til að tilraunum til mynd-
unar þessarar þriggja flokka
ríkisstjómar Sjálfstæðisflokks, Al-
þýðuflokks og Framsóknarflokks
verði haldið áfram og vom þing-
menn á einu máli um að það væri
ábyrgðarleysi að hlaupa frá þess-
ari tilraun þegar svo skammt væri
í það að stjómarmyndun geti tek-
ist.
Það sem strandaði á í fyrrinótt,
þegar viðræðumar fóm út um
þúfur var ný krafa framsóknar-
manna um að fá Qóra ráðherra-
stóla í sinn hlut. Nú kann að fara
svo að sjálfstæðismenn séu reiðu-
búnir til þess að sætta sig við það
að framsókn fái fjóra ráðherra-
stóla, svo fremi sem hún gefur
eftir sjávarútvegsráðuneytið og
tekur þess í stað iðnaðarráðuneyt-
ið.
Sjá Af innlendum vettvangi
á miðopnu.
t-r+
Fomleifafundur á Bessastöðum:
Mannvistarleif -
ar frá miðöldum
Mann vistarleifar frá mið-
öldum fundust á Bessastöð-
um þegar hafist var handa
við að breikka aðkeyrslu
Bessastaðastofu í síðustu
viku. Að sðgn Guðmundar
Ólafssonar fornleifafræðings
er um að ræða eitt elsta
mannvistarlag sem enn hefur
fundist á þessu svæði. Þá var
komið niður á rústir Kon-
ungsgarðs sem byggður var
um 1721.
„Þetta er að öllum líkindum
frá 15. öld og hefur varðveist
ótrúlega vel, þéttur jarðvegurinn
hefur séð til þess. Á þriggja
metra dýpi fundum við mann-
vistarlag, fullt af stórgripabein-
um, leðri og viðarleifum. Beinin
segja sína sögu um breytingar,
sem orðið hafa á mataræði, því
ofar f jarðveginum eru aðallega
smærri bein, bein af sauðfé, og
fískbein. Þetta er mjög merkileg-
ur fundiu-,“ sagði Guðmundur
Ólafsson.
Konungsgarður var embættis-
mannabústaður Danakonungs á
Bessastöðum í aldaraðir, teikn-
aður um 1720. í vor fundust
fyrstu leifamar af Konungsgarði
þegar verið var að skipta um
gólf í Bessastaðastofu, en nú
hafa komið í ljós aðrir hlutar
byggingarinnar, veggjarústir og
heUulagnir. Auk þess ýmislegt
muna úr keramiki og postulfni,
sem að sögn Guðmundar er aðal-
lega frá 18. og 19. öld. Unnið
verður áfram við uppgröft rúst-
anna á Bessastöðum.
Morgunblaðið/KGA
Guðmundur Ólafsson fomleifa-
fræðingur við Bessastaði. Á
þriggja metra dýpi fundust
mannvistarleifar frá miðöld-
Morgunblaðið/KGA