Morgunblaðið - 02.07.1987, Page 1
88 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
146. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Iransmálið:
North yfirheyrður
af þingnefndum
Viðurkennir þátttöku í vopnasölunni
Waahington, Reuter.
YFIRHEYRSLUR rannsóknarnefnda Bandaríkja-
þings hófust í gær yfir Oliver North, ofursta, og
fóru þœr fram fyrir luktum dyrum. Ofurstinn
sagði fréttamönnum að hann hefði afhent nefnd-
unum „persónulegar dagbækur, sendibréf,
handskrifaðar athugasemdir, dulmálsbækur, ljós-
myndir og ýmis önnur gögn“.
Ráðunautur þingnefndanna spurði North m.a. hvort
hann hefði haft vitneskju um tilraunir Bandaríkja-
stjómar til að fá lausa bandaríska gísla í Líbanon,
sölu á bandarískum vopnum og upplýsingum til ír-
ans, notkun á hagnaði af þeirri sölu og sömuleiðis
þann stuðning sem bandarískir embættismenn veittu
kontra-skæruliðum í Nicaragua eftir að Bandaríkja-
þing hafði lagt bann við slíkum stuðningi. North
svaraði öllum þessum spumingum játandi.
Markmiðið með þessum yfirheyrslum er skýrt af-
markað; að komast að því hvort Reagan forseti hafi
vitað um aðalatriði málsins sem er yfirfærsla sölu-
hagnaðarins til kontra-skæruliðanna.
Tímaritið Far Eastem Economic Review, sem gefið
er út í Hong Kong, hélt því fram í gær að Kínverjar
hefðu selt kontra-skæruliðum í Nicaragua vopn fyrir
sjö milljónir Bandaríkjadala og hefði North verið milli-
göngumaður í þeim viðskiptum.
Reuter
North á leið frá lögfræðingi sínum í gær.
Toshiba/Kongsberg-málið:
Innflutning’s-
bann samþykkt í
Bandaríkjunum
Evrópubandalagið:
Landbúnaðar-
styrkir skertir
Thatcher krefst aðhalds í fjármálum
Brussel, London, Reuter.
Landbúnaðarráðherrar Evrópubandalagsins náðu í gær
samkomulagi um að skerða niðurgreiðslur á landbúnaðaraf-
urðum fjárhagsárið 1987—1988. Töldu ráðherramir að
verulegt skref hefði verið stigið til að umbylta landbúnaðar-
stefnu bandalagsins en hún er aðalorsök sívaxandi skulda-
bagga þess. Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, barðist
kröftuglega gegn auknum útgjöldum og taldi við heimkom-
una til London í gær að bent hefði verið á leiðir til þess en
nú þyrfti bandalagið að velja.
óbreyttar og framlögin einfald-
lega hækkuð.
Skoðanir Thatchers nutu ekki
fylgis annarra leiðtoga á fundin-
um og í lok hans ásakaði Chirac,
forsætisráðherra Frakklands,
Thatcher um að meta fjárhags-
áætlun bandalagsins með augum
húsmóður.
Stjómarandstæðingar í breska
þinginu gerðu harða hríð að
Thatcher að lokinni skýrslu henn-
ar. Sögðu þeir hana hafa farið á
fundinn án þess að hafa í fartesk-
inu tillögur til úrbóta og þess
vegna hefði hún einangrast og
mistekist að fá samþykktar raun-
verulegar úrbætur í fjármálum.
„Henni mistókst vegna þess
að hún veit aðeins hveiju hún er
andvíg en ekki hvað hún styður,“
sagði Neil Kinnock, leiðtogi
V erkamannaflokksins.
Breska dagblaðið The
Times varði Thatcher í leiðara og
sagði að evrópskir starfsbræður
forsætisráðherrans hefðu gagn-
rýnt hana vegna þess að hún
segði það sem þeir vildu ekki
heyra minnst á.
Sjá bls. 35, „Verð á land-
búnaðarvörum . . .“
Osló, Tókýo, Reuter.
TVEIR æðstu yfirmenn Tosh-
iba-fyrirtækisins í Japan til-
kynntu afsögn sína á blaða-
mannafundi i gær. Ástæðan er
sala dótturfyrirtækis Toshiba á
hátæknibúnaði til Sovétríkjanna.
Norska vopnaverksmiðjan
Kongsberg Vaapenfabrikk hefur
selt hugbúnað til Sovétríkjanna
sem, ásamt japanska búnaðinum,
Panama:
Enn ókyrrð
á götum úti
Panama City, Reuter.
ANDSTÆÐINGAR ríkis-
stjórnarinnar flykktust á ný út á
götur höf uðborgar Panama í gær
og kröfðust afsagnar Manuels
Noriega, sem í reynd er aðal-
valdamaður landsins. Neyðar-
ástandslögum, sem staðið höfðu
i 20 daga, var aflétt i fyrradag.
Um þijú þúsund manns, aðallega
stúdentar, reyndu í gær að fara í
friðsamlega mótmælagöngu að for-
setahöllinni en í nánd voru hermenn
í fullum herklæðum. Fólkið flúði í
ofboði skammt frá höllinni þegar
hópur manna í borgaralegum klæð-
um réðst á það með táragassprengj-
um og byssum að sögn sjónarvotta.
Klukkustund síðar réðust um 500
stúdentar á byggingu stjórnar-
flokksins við aðalgötu borgarinnar
með gijótkasti en voru hraktir é
brott af vörðum og síðar sló óeirða-
lögregla hring um bygginguna.
Ýmsir
stjórnmála-
skýrendur
höfðu litla
trú á land-
búnaðar-
samkomu-
laginu og
töldu það
aðeins verða
til að stað-
festa áframhaldandi hallarekstur
bandalagsins. ,
Thatcher flutti í gær breska
þinginu skýrslu um leiðtogafund
Evrópubandalagsins. Þar sagðist
hún hafa beitt sér gegn fjárhags-
áætlun bandalagsins af tveimur
ástæðum. í fyrsta lagi gætu Bret-
ar ekki samþykkt lokaáætlunina
fyrr en samþykktar hefðu verið
aðgerðir til að ná taumhaldi á
útgjöldum bandalagsins. í öðru
lagi gætu þeir ekki fallist á að
upprunalegar reglur um ijár-
austur til landbúnaðarins yrðu
Reuter
Prins á humarveiðum
Játvarður Bretaprins horfist hér í augu við bráðmyndarlegan
nýveiddan humar, sem hann fangaði í veiðiferð á lokadegi sex
daga heimsóknar sinnar til Kanada. Ekki virðist það vera fögur
sjón, ef dæma má af svip hátignarinnar. Humarinn mætti örlög-
um sínum undan strönd eyju, sem svo skemmtilega vill til að
heitir Prince Edward Island, eða Eyja Játvarðs prins.
hefur gert Sovétmönnum kleift
að smíða nær hljóðlausar kaf-
bátaskrúfur. í fyrradag sam
þykkti öldungadeild Bandaríkja
þings með yfirgnæfandi
meirihluta að banna allan inn
flutning frá báðum fyrirtækjun
um í 2 til 5 ár.
Bannið öðlast þó ekki gildi fyrr
en fulltrúadeildin og forsetinn hafa
samþykkt tillöguna. Sérfræðingar
álíta að salan á tæknibúnaðinum
geti kostað Atlantshafsbandalagið
(NATO) milljarða Bandarikjadala
vilji það reyna að ná aftur yfirburð-
um í vömum gegn kafbátum.
• Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Noregs, sagði í gær að
gagnrýni Bandaríkjamanna á söl-
una til Sovétríkjanna þjónaði ekki
hagsmunum NATO.
„í bandalagi getur einn þátttak-
enda ekki komið fram sem dómari
og refsivald yfir hinum,“ sagði ráð-
herrann á fréttamannafundi í gær.
„Markmið okkar er að öllu tali um
refsiaðgerðir verði hætt,“ bætti
hann við.
Talið er að bandarískt innflutn-
ingsbann geti riðið Kongsberg
Vaapenfabrikk að fullu en tap á
rekstri fyrirtækisins á síðasta ári
var um 918 milijónir norskra króna.
Mögulegt tap Toshiba á banninu
er áætlað þrír til fjórir milljarðar
Bandaríkjadala.
Sjá bls. 36, „Ofurvald hátækn-
Angóla:
Mikið mami-
fall í liði
Kúbumanna
Washington, Reuter.
KÚBANSKI herinn hefur misst
um það bil tiu þúsund hermenn
fallna og særða í stríðinu í Ang-
óla, að sögn landflótta kúbansks
herforingja. Hann skýrði einnig
frá því að hermenn sem koma
heim til Kúbu og reynast vera
með alnæmi væru settir bak við
lás og slá.
Herforinginn, Rafael del Pino
Diaz, var yfirmaður flugsveita Kú-
bana í Angóla. Hann flúði til
Bandaríkjanna í maí i lítilli flugvél.
Hann sagði frá því í viðtali við út-
varpsstöð að yfirmenn kúbönsku
hersveitanna í Angóla áætluðu að
um 10.000 hermenn hafi fallið,
særst eða týnst í átökunum þar.
Del Pino sagði að herstjómin liti
á stríðið sem tapað og talað væri
um Angóla sem „kúbanskt
Víetnam".
Flugforinginn fyrrverandi sagði
að hermenn, sem sneru aftur frá
Angóla, væru blóðprófaðir til að
kanna hvort þeir væru sýktir af
alnæmi. Reyndist prófíð jákvætt
væru mennirnir umsvifalaust sendir
í fangelsi.