Morgunblaðið - 02.07.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1987
71
"PE'R VILOR RLLIR RF^ R€> HBFH STÓRU SLÖNC5UNR"
íþróttir fatlaðra lítið kynntar
Velvakandi góður.
Ég get ekki orða bundist og
ætla því að veita orðum mínum
útrás. Laugardaginn 27. júní sl.
var mættur á Laugardalsvelli
fríður hópur ungmenna frá Norð-
urlöndunum fimm, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og ís-
landi. Þetta voru hópar fatlaðra
ungmenna er hist hafa á íþrótta-
mótum annað hvert ár, til skiptis
á Norðurlöndunum, nú í fimmta
sinn og í fyrsta sinn á íslandi.
Ég fékk tækifæri til að fylgjast
með einu slíku móti en það var
haldið í Noregi 1983. Ég hafði
ekkert kynnst íþróttum hjá fötluð-
um áður, ég hafði heyrt nefnda
„boccia“ og vissi að fatlaðir stun-
duðu þá íþrótt en vissi ekki hvemig
sú íþróttagrein fór fram. Fatlaðir
stunduðu sund, það vissi ég, en
um annað vissi ég ekkert.
En undrandi varð ég er ég á
þessu íþróttamóti í Noregi sá og
kynntist öllum þeim greinum
íþrótta er fatlaðir stunda, ég fyllt-
ist undrun og síðan aðdáun sem
ég hef ekki misst enn. Hver ein-
staklingur sigrar, kannski ekki
alltaf andstæðing, enda rangt að
kalla aðra keppendur andstæð-
inga, þetta er leikur og á að vera
leikur þar sem hver einstaklingur
gerir sitt besta, og hann vinnur
sinn persónulega sigur hvað sem
öðrum finnst. En það sem kemur
mér til að skrifa þessar línur er
hve fjölmiðlar sinna þessu íþrótta-
fólki lítið. Ég hafði heyrt að
þennan dag færi fram íþróttamót
fatlaðra í Laugardal en svo tak-
markaðar voru þær fréttir að
meira vissi ég ekki.
Af rælni fór ég inn í Laugardal
og ætlaði að fylgjast með en varð
heldur sein því frjálsum íþróttum
var lokið en náði þó að fylgjast
með sundinu, sem fór fram í Laug-
ardalslaug.
Ég frétti að á Laugardalsvelli
hefði farið fram falleg setning
mótsins þar sem forseti íslands
Vigdís Finnbogadóttir var viðstödd
athöfnina. Að horfa á þessi ung-
menni mætt hér á íslandi í góðu
veðri og flest langt að komin,
Svíar í bláum og gulum búningum,
Danir í rauðum og hvítum, Norð-
menn í rauðum, bláum og hvítum,
Finnar í bláum og hvítum og ís-
lendingar í sinum bláu, hvítu og
rauðu búningum, var einstaklega
fallegt og ánægjulegt. Ég settist
niður á fréttatíma beggja sjón-
varpsstöðvanna og ætlaði að njóta
þess að horfa á það sem ég missti
af á íþróttavellinum, en nei, ekk-
ert kom, ekki einu sinni minnst á
að þetta mót hefði farið fram. Ég
er bæði sár og reið að fréttamenn
sjónvarps skuli ekki þykja meira
til þessa íþróttafólks koma og er
það ástæða þess að ég skrifa þess-
ar línur.
Það er líklega meiri þörf fyrir
íslendinga að fylgjast vel með
óeirðum í Suður-Kóreu, en sýndar
Til Velvakanda.
Þegar farið var að útvarpa allan
sólarhringinn á rás 2 var því haldið
fram, að rásin næði til allra lands-
manna. Staðreyndin er þó sú, að á
sunnanverðum Austfjörðum er eng-
in endurvarpsstöð og heyrist því rás
2 ekki á a.m.k. 4 þéttbýlisstöðum
þar, þ.e. á Djúpavogi, Breiðdalsvík,
Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði.
Útvarpsstjóri gat þess í símtali á
sínum tíma, að hugsanlegt væri að
rásin næðist hér fyrir páska. Hann
hafa verið fréttamyndir frá þeim
undanfarin kvöld.
Ég er sannfærð um að almenn-
ingur í landinu veit lítið sem ekkert
um íþróttir fatlaðra, en í þeim
hópi eigum við íslendingar margt
afreksfólk sem náð hefur langt
erlendis. Ég skora á almenning
að fylgjast betur með þessu
íþróttafólki og koma á íþróttamót
þeirra og fylgjast með, þau eru
öðruvísi á sinn hátt en ekki síður
spennandi.
Svo vil ég í lokin óska íþróttafé-
lagi fatlaðra góðs gengis í framtíð-
inni, bæði í íþróttum og við
byggingu íþróttahússins. Afram
ÍF.
svaraði svo fyrirspum í Velvakanda
á þann veg, að endurvarpsstöðvar
yrðu settar upp með vorinu. Nu er
komið sumar, stöðugt er verið að
flytja gott útvarpsefni yfir á rás
2, nú síðast fréttaþáttinn Hér og
nú, en ekkert bólar á endurvarps-
stöðinni.
Því spyr ég útvarpsstjóra, hve-
nær von sé á að rás 2 náist á þessu
svæði, og hvað það er sem tefur.
Hákon Hansson,
Breiðdalsvík
inváasboi.
Bergljót Einarsdóttir
Fyrirspum til
útvarpsstjóra
KROSSVIÐUR
T.d. vatnslímdur og
vatnsheldur - úr greni,
birkl eða furu.
SPÓNAPLÖTUR
T.d. spónlagðar, plast-
húðaðar eða tilbúnar
undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu
verði' SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
iJJ\ND5!NS \ táið að sníða niður allt plötuefni
BBSTA \ \ hjá okkur í stórri sög
ÚFVAL- /(_wTV - ykkur að kostnaðarlausu.
621566
BJORNINN
Við erum í Borgartúni 28
RITSTJÓRI
NORDISK
MEDIE NYT
Staða ritstjóra Nordisk Medie Nyt er hér með auglýst laus til
umsóknar. Nordisk Medie Nyt er fréttablað, sem er útgefið af
Norrænu ráðherranefndinni og skýrir frá þróun fjölmiðlunar
innan og utan Norðurlanda. Blaðið kemur út fjórum sinnum á
ári og er áhersla lögð á fréttir í stuttu máli, auk þess sem ákveð-
in efni eru tekin til ítarlegrar umfjöllunar.
Ritstjórinn er I hálfu starfi. Hann hefur samráð við vinnuhóp
um menningu og fjölmiðlun, sem starfar á vegum Norrænu ráð-
herranefndarinnar og ritara hans, sem hefur aðsetur i skrifstofu
ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn. Fréttaritarar blaðsins
starfa í mennta- og menningarmálaráðuneytum Norðurlanda,
en auk þeirra rita lausráðnirblaðamenn greinar í blaöið. Auk
ritstjóra starfar ritari við blaöið og annast hann einnig ýmsa
þætti ritstjómarinnar.
Óskað er eftir starfsmanni sem hefur lokið háskólanámi eða
námi í fjöimiðlafræðum og hefur viðeigandi starfsreynslu.
Mikilvægt erað viðkomandi þekki til hlítarþau vandamál, sem
eru samfara fjölmiðlun og stefnumótun á þvi sviði (mediepolit-
ik) á Norðurlöndum, Evrópu og víöar. Þess er krafist, að
viðkomandi virði reglur vandaðrar blaðamennsku og sé þess
umkominn að koma flóknum málum til skila á skýran og ein-
faldan hátt. Óskað er eftir dugmiklum og sjálfstæðum starfs-
manni, sem getur, í samráði við ráðherranefndina, skipulagt
umfjöllun blaðsins og annast ritstjóm þess.
Staðan er veitt til ársloka 1988 en framlenging kemur til greina
ef fyrir liggur samþykki ráðherranefndarinnar.
Laun eru ákveðin með hliðsjón af launasamningum stéttarfélaga
í heimalandi viðkomandi starfsmanns.
Óskað er eftir þvl að ritstjórinn taki til starfa sem fyrst og eigi
siðaren 1. september 1987.
Umsóknarfrestur rennur út 20. júlí 1987.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norrænu ráðherra-
nefndarinnar í síma 01 11 46 11. Innanhússíminn er 540 eða 584.
Umsóknir skal senda:
Nordisk Ministerráds sekretariat
Store Strandstræde 18,
1255 Köbenhavn K,
DANMARK.
Jtv L.