Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
149. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Óeirðir í
Venezúela
Caracas, Reuter.
FIMM lögregluþjónar og 47
námsmenn slösuðust í óeirðum
við háskólann í Caracas, höfuð-
borg Venezúela, í gær. Til
ofsafenginna átaka kom á skóla-
lóðinni annan daginn í röð.
Lögregluþyrlur flugu yfír skóla-
lóðinni og var skotið fuglahöglum
úr þeim yfír stúdentana. Þeir voru
flestir með hjálma. Vopnaðir menn
í röðum stúdenta, sem voru um eitt-
þúsund talsins, svöruðu með því að
skjóta á lögreglumenn, sem stóðu
vörð við hlið háskólalóðarinnar.
Átök brutust einnig út í gær og
fyrradag í borgunum Merida, San
Cristobal og Trujillo. Einn maður
hefur beðið bana og 65 særst í stúd-
entaóeirðunum í Venezúlea og 123
hafa verið handteknir.
Óeirðimar brutust út eftir að
tvítugur námsmaður lézt við mót-
mælaaðgerðir í Trujillo. Námsmenn
skelltu skuldinni á lögreglu, sem
segist vera saklaus.
• •
Onnur belg-
flugstilraun
Montreal, Reuter.
TVEIR brezkir belgfarar hyggj-
ast gera nýja tilraun til að fljúga
yfir Atlantshafið í heitaloftsbelg,
daginn eftir að landar þeirra
nauðlentu á írlandshafi.
Belgfaramir, Don Cameron og
Jim Howard, hugðust leggja upp
kl. 4.30 að íslenzkum tíma í morgun
frá St. John’s á Nýfundnalandi I
loftbelg, sem gefíð hefur verið nafn-
ið Zanussi.
Sólin sér um að halda Zanussi á
lofti með því að hita upp loftið f
belgnum. Virgin Atlantic Flyer var
einnig knúinn sólarorku. Belgir af
þessu tagi lækka því ekki flugið í
bjartviðri og verður að opna þá upp
á gátt til þess að lækka flugið.
Lækkunin getur orðið mjög ör og
auðvelt að misreikna sig. Sannaðist
það á milljónamæringnum Richard
Branson og Per Lindstrand þegar
belgur þeirra nauðlenti aðeins tvær
mílur undan Skotlandsströndum á
föstudagskvöld. Cameron og How-
ard hyggjast sjá við þessu með því
að hafa meðferðis algengari tegund
heitaloftsbelgs sem þeir geta stjóm-
að alveg að vild. Verður hann
blásinn upp þegar þeir nálgast Bret-
land og sólknúna belgnum þá
sleppt.
/ Kverkfjöllum
Morgunblaðið/Ami Sœberg
Suður-Kórea:
Krefj ast sakarupp-
gjafar andófsniamia
Seoul, Reuter.
SNURÐA er komin á þráðinn í lýðræðisþróun í Suður-Kóreu. Leið-
togar stjórnarandstöðunnar, þeir Kim Young-Sam og Kim Dae-Jung,
ákváðu í gær að fresta öllum viðræðum við stjórnvöld um lýðræðis-
legar endurbætur fram í næstu viku eða þangað til stjórnin leysti
úr haldi alla pólitíska fanga.
Leiðtogamir halda því fram að
2.000 pólitískir andófsmenn séu í
fangelsum í landinu en stjórnvöld
segja engan vera í fangelsi af
pólitískum orsökum. Kim Young-
Sam sagði á fréttamannafundi í
gær að þess væri vænst að stjórnin
léti fólkið laust þegar í næstu viku
og jafnframt fengju ýmsir andófs-
menn, þ. á m. Kim Dae-Jung,
aftur full borgaraleg réttindi. Sá
síðamefndi hlaut á sínum tíma
dauðadóm, sem síðar var breytt í
20 ára fangelsisvist, fyrir „undir-
róðursstarfsemi". Hann sat þó ekki
inni nema nokkra mánuði en var
Plágaþjakar Kínaveldi:
Skefjalaus mútuþæsui
Pekinfr. Reuter. ^1111 ^
Peking, Reuter.
MÚTUÞÆGNI er skefjalaus i sumum deildum kínverska
kommúnistaflokksins, sem eiga samskipti við útlendinga, jafn-
vel meðal háttsettra embættismanna flokks og ríkisstjómar.
Þetta kom fram I fréttum opinberu fréttastofunnar Nýja
Kína í gær.
í frétt af fundi aganefndar
flokksins varaði fréttastofan
flokksmenn við því, að hver sá
sem yrði uppvís að því að þiggja
mútur yrði umsvifalaust rekinn
úr flokknum, óháð stöðu og titli.
Fréttastofan sagði að ýmsir
flokksmenn hefðu notfært sér
aðstöðu sína í samskiptum við
útlendinga og krafist fjár fyrir að
greiða fyrir viðskiptasamningum.
„Þeir gátu ekki staðist freistingar
fjármuna og vamings og fórnuðu
þannig virðingu Kína,“ sagði
fréttastofan.
„Sumir báðu um lúxusvaming,
aðrir vildu peninga eða létu í ljós
að þá langaði til að ferðast eða
stunda nám erlendis. Það er jafn-
vel vitað til þess að embættismenn
hafí beðið um að múturnar yrðu
lagðar inn á reikninga í erlendum
bönkum,“ sagði í frétt Nýja Kína.
Þess var þó getið, að flestir af
hinum 46 milljónum sem em með-
limir kommúnistaflokksins, væm
löghlýðnir og iðjusamir.
lengi í útlegð í Bandaríkjunum og
síðar í stofufangelsi.
„Ríkistjórnin ætti ekki að reyna
að náða eða leysa úr haldi stöku
fanga. Náða ætti alla, að undan-
skildum morðingjum og kommún-
istum,“ sagði Kim Dae-Jung á
fundinum. Hann hefur enn ekki
sagt afdráttarlaust hvort hann
muni gefa kost á sér í væntanlegum
forsetakosningum síðar á árinu en
leiðtogamir hafa lýst því yfir að
þeir muni sameinast um einn fram-
bjóðanda stjómarandstöðunnar
gegn Roh Tae-Woo, frambjóðanda
stjómarflokksins.
I gær ítrekaði stjórnarandstaðan
kröfu sína um að Chun Doo Hwan
forseti segði af sér embætti strax,
til þess að tryggja að kosningamar
fari lýðræðislega fram. Talsmaður
stjómarflokksins vísaði í gær á bug
orðrómi þess efnis að flokksstjómin
íhugaði að láta Roh taka strax við
embætti flokksformanns af Chun
forseta.
Um fimmtán þúsund stúdentar
söfnuðust í gær saman á lóð Seoul-
háskóla til þess að ræða umbótatil-
lögur stjórnvalda. Allt fór
friðsamlega fram og langflestir
fundargesta bauluðu á fámennan
hóp sem sönglaði róttæk slagorð
gegn stjóminni. Talsmenn lögregl-
unnar, sem í óeirðunum undanfarn-
ar vikur hefur verið ásökuð um
mikinn hrottaskap, sögðu í gær að
lögregla myndi ekki bæla niður
mótmæli á háskólalóðinni nema
háskólayfirvöld færu fram á það.
Um það bil eitt hundrað ættingj-
ar fanga hrópuðu vígorð gegn
stjóminni og köstuðu eggjum í aðal-
stöðvar stjórnarflokksins i gær og
heimtuðu að andófsmenn yrðu þeg-
ar í stað látnir lausir en ekki kom
þó til átaka að sögn sjónarvotta.
Takeshita næsti
forsætisráð-
herra Japans?
Tókýo, Reuter.
FYRRUM fjármálaráðherra Jap-
ans, Noboru Takeshita, lýsti í
gær yfir stofnun nýs samstarfs-
hóps innan Frjálslynda lýðræðis-
flokksins sem fer með stjórn
landsins.
í hópnum eru 113 þingmenn (af
445 þingmönnum stjómarflokksins)
og er hann stærstur slíkra hópa. Ta-
keshita og félagar hans klufu sig frá
öðrum hóp þar sem Tanaka, fyrrum
forsætisráðherra, var valdamestur.
Stjómmálaskýrendur telja
Takeshita nú vera sterkastan allra
keppinautanna um sæti forsætisráð-
herra.