Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987 Morgunblaðiö/Sigurður Jónsson Birgir Guðmundson, nýráðinn mjólkurbússtjóri, og Grétar Símonar- son, fráfarandi mjólkurbústjóri MBF, sem gegnt hefur starfinu í 35 ár. Mjólkurbú Flóamanna: Birgir Guðmundsson hefur verið ráðinn mj ólkurbússtj óri Selfossi. STJÓRN Mjólkurbús Flóamanna Fiskmarkaðurinn í Bremerhaven: Sveiflur í framboði valda allaf verðlækkun - segir Þórarinn Guðbergsson umboðsmaður „ÉG VONAST eftir því að jafnt framboð náist á næstunni. Markaður- inn þolir að meðaltali um 30 gáma, mest karfa en eitthvað af ufsa á hverri viku í allt sumar. Þá gæti verð verið í kringum 60 krónur, 2,50 mörk. Þannig var það nánast allt síðasta sumar. Sveiflur í fram- boði þýða í raun ekki annað en verðlækkun. Skorti fisk, hækkar verðið upp úr öllu valdi. Það verður of hátt fyrir neytendur, en seljendur hrúga fiskinum inn. Afleiðingin er verðfall. A sama hátt veldur offramboð alltaf verðfalli,“ sagði þórarinn Guðbergsson, umboðsmaður við fisksölu i Bremerhaven, í samtali við Morgunblaðið. réð þann 3. júlí Birgi Guðmunds- son mjólkurbússtjóra fyrir mjólkurbúið. Birgir tekur við starfinu af Grétari Símonarsyni sem gegnt hefur starfi mjólkur- bússtjóra síðan 1953. Grétar mun áfram vinna til áramóta að sér- stökum verkefnum fyrir mjólk- urbúið. Birgir Guðmundsson er fæddur 21. júlí 1949 á Akranesi, sonur Guðmundar Ó. Guðmundssonar, rannsóknarmanns hjá Sements- verksmiðju ríkisins, og Málfríðar Sigurðardóttur, konu hans. Birgir hóf nám við Mjólkurbú Flóamanna 16 ára gamalll í maí 1966. Hann lauk verklegu námi í mjólkurfræði í Danmörku 1970 og framhaldsnámi 1971 frá Dalun Mejeriskole á Fjóni. Hann vann fyrst sem mjólkurfræðingur við al- menn störf hjá MBF, en stundaði síðan leiðbeiningaþjónustu við mjólkurframleiðendur í fimm ár á vegum búsins. Hann varð verkstjóri yfír G-vöruframleiðslunni og síðan framleiðslustjóri búsins 1981. 1. júní 1986 varð hann aðstoðarmjólk- urbússtjóri. Birgir hefur mikla starfsreynslu úr mjólkuriðnaðinum. Viðamestu verkefnin sem hann hefu unnið að eru uppbygging G-vörunnar, undir- búningur og uppsetning nýju duftvinnslunnar og markaðssetning Danska stúlk- an í Noregi? DANSKA stúlkan, sem leitað hefur verið að síðan á miðviku- dag, hefur ekki fundist enn. Taiið er nokkuð víst að hún sé nú stödd i Noregi. Enn er lýst eftir stúlkunni, sem heitir Pia Jespersen og er 15 ára gömul. Þegar hún hvarf var hún klædd í bláar gallabuxur og galla- jakka með hvítu loðfóðri og loð- kraga. Hún er ljóshærð, þybbin og gengur ýmist með gleraugu eða linsur. Lögreglan telur líklegt að hún hafí komist um borð í flugvél til Noregs, en það hefur ekki feng- ist staðfest enn. á viðbitinu„Létt og laggott". Vegna þessara verkefna og til að auðvelda vöruþróun búsins hefur hann sótt §ölda námskeiða erlendis. Eigin- kona Birgis er Ragnheiður Haf- steinsdóttir handavinnukennari. Birgir tekur við starfi af Grétari Símonarsyni_ sem gegnt hefur því síðan 1953. Á 34 ára starfsferli sem mjólkurbússtjóri hefur Grétar unnið mörg stór afrek innan íslensks mjólkuriðnaðar. Hann stóð fyrir endurbyggingu Mjólkurbús Flóa- manna 1953 — 1958 og beitti sér fyrir tankvæðingunni á svæði bús- ins sem olli byltingu í meðferð mjólkur. Grétar er upphafsmaður jógúrt- og G-vöruframleiðslunnar hér á landi og frumkvöðull flestra þeirra nýjunga sem fram hafa kom- ið í mjólkuriðnaðinum mörg síðustu ár. BRÖGÐ munu vera að því við sölu gámafisks í Þýskalandi að reglur Evrópubandalagsins um lágmarksverð séu sniðgengnar. Þannig hefur fiskur opinberlega verið seldur á lágmarksverðinu, en raunverð hefur verið lægra. Lögum samkvæmt hefði þessi fiskur átt að fara í gúanó. Á þýsku fískmörkuðunum gilda þær reglur Evrópubandalagsins að lágmarksmeðalverð á karfa í 2. flokki, sem er algengasta stærðin er 84 pfenningar á pundið. Allt fyrir neðan það verð er óseld vara og á lögum samkvæmt að fara í gúanó. Heimildir Morgunblaðsins herma að lögin séu sniðgengin á þann hátt að fískseljendur og fískaupendur semja sín á milli um þetta lágmarksverð, en fiskkaup- anda er greiddur hluti verðsins til „Þegar verð nær hámarki hér, fer í tvö mörk á pund, yfír 80 krón- ur á hvert kíló af karfa, hækkar verð á flökum mikið inni í landi,“ sagði Þórarinn. „Það þýðir 4 mörk á kíló og 12 mörk á kíló af karfa- flökum, um 250 krónur. Það er bara hráefnisverð. Síðan eiga vinnulaun, umbúðakostnaður og fleira eftir að bætast við kostnað- inn. Þannig er verðið komið upp í 17 til 20 mörk, allt að 420 krónum á hvert kíló til dæmis í Munchen. Með endanlegri álagningu kostar flakakílóið því kannski 25 mörk, um 525 krónur út úr búð. Þá hvorki vill né getur fólk keypt fiskinn. Það getur fengið beinlaust nauatkjöt á 420 krónur kílóið og kjúklinga fyr- ir um 100 krónur kílóið. Það er stutt héðan til Danmerk- ur, Færeyja og Noregs og þegar verð hér er hátt streymir fiskur inn frá þessu löndum og jafnvel allt frá írlandi. Á morgnana hafa verið hér allt að 40 fískflutningabílar með 15 til 20 tonn hver, en við eðlilegar aðstæður eru hér fjórir til fímm bílar á hverjum morgni. Þegar verð- ið nær svona hátt, hrúgast fískurinn héma inn og verðið fellur auðvitað. Sveiflan er svo mikil frá lágmarks- verði, sem er um 35 krónur og upp í 50 til 60 krónur, svo ekki sé talað um 80 krónur, að það fælir nánast alla frá viðskiptum með þennan físk. Meðalverð í fyrra var 2,40 mörk, um 50 krónur, fyrir kíló af karfa. Við getum allir lifað við um 60 króna verð á kíló, seljendur, kaupendur og neytendur. Meðal- verðið í fyrra sýnir þetta. Það er svo rosalegt áfall, sem skipin geta orðið fyrir, þegar markaðurinn fell- ur og menn verða að sætta sig við lágmarksverð eða hluti aflans selst ekki. Það þarf að koma í veg fyrir og það verður ekki gert öðru vísi en að jafna framboðið. Offramboð má ekki koma fyrir og heldur ekki má skorta fískinn. Það er okkar umboðsmannanna að ráðleggja út- baka sem kostnaður. Fiskmarkaðurinn tekur um 4,55% þóknun og ýmis annar kostn- aður dregst einnig frá fískverðinu. Heimildir Morgunblaðsins herma hins vegar.að við gámasölu í þess- ari viku hafí þessi „kostnaðarfrá- dráttur" numið um 50% og verðið jafnvel farið í 17-18 kr. á kílóið. Kostnaður við það að sigla með afla er yfirleitt talinn nema 16 kr. fyrir hvert kg. Öll skjöl um sölu á ferskfíski fara í gegnum hendur Gjaldeyriseft- irlits Seðlabankans og taldi viðmælandi Morgunblaðsins undrun sæta að engar aðfínnslur hefðu verið gerðar f þeirri stofnun. Þetta er í fjórða sinn á þessu ári að fiskverðið hrynur á Þýskalands- markaði og gripið er til þessara úrræða. flytjendum heilt, vara þá við sveifl- um í framboði, bæði við offramboði og fískskorti. Það verður að stjórna fiskveiðun- um; að ekki verði veitt um of, þegar fyrirsjáanlegt er að ekki næst að vinna aflann heima og framboð er- lendis verður of mikið. Dæmin frá í vetur sýna þetta. Þegar frystihús- in lögðu alla árherzlu á loðnufryst- ingu og gátu ekki tekið nægilega mikið af bolfiski, var ekkert lát á veiðunum. Þegar páskaslysið varð, hafði mikið verið unnið vikurnar á undan, veiði var mikil og páskafríið LOÐNUSKIPIÐ Albert GK 31 frá Grindavík kom heim í byrjun vikunnar frá Englandi eftir mikl- ar breytingar sem gerðar voru á því eftir að loðnuvertíð lauk. Að sögn Þórarins Ólafssonar annars aðaleiganda skipsins eru helstu breytingar þær að skipið var lengt um 7 metra, sett var á það ný brú og afturendanum breytt fyr- ir skuttog með skutrennu. Sett var á hann frystilest, hvalbakurinn hækkaður með hádekki og öll spil færð upp á efra dekk. Settir voru á hann tveir nýir kranar en annar þeirra kemur í stað löndunarbómu. óumflýjanlegt. Veiðamar voru hvorki í samræmi við aðstæður í fiskvinnslu né á erlendum mörkuð- um. Þetta má alls ekki gerast. Síðasta „slysið" varð svo vegna verkfalls í Færeyjum. Þá var útlit gott á markaðnum hér og við hvött- um menn til hóflegs útflutnings, enda höfðum við ekki hugmynd um að fleiri hundruð tonn af karfa og ufsa voru á leið á markaðinn frá Færeyjum. Slíka hluti ráðum við ekki við, en hitt getum við passað," sagði Þórarinn. Hvað finnst þér um samninga um lægra verð en lágmarksverð, þegar verð fellur? „Ég þekki þau mál ekki nægilega vel til að tjá mig um þau. Hins vegar er bannað að selja fisk undir lágmarksverði, nema hann fari í gúanó. Sé þessi leið farin, hlýtur hún því bæði að vera ólögleg og óheppileg," sagði Þórarinn Guð- bergsson. Allar mannaíbúðir voru endumýjað- ar og skipið sandblásið og málað. Verkið var unnið í Skipasmíða- stöð í South-Shields í Englandi og tók tæpa fjóra mánuði. Heildar- kostnaður nemur 45 milljónum króna og eykst burðargetan um 150 tonn af loðnu. Albert GK fer nú til rækjuveiða enda var helsti tilgangurinn með breytingunum að gera skipið fjöl- hæfara til að brúa dauða tímann milli loðnuvertíða. Skipstjórar eru feðgamir, _ Sævar Þórarinsson og Þórarinn Ólafsson. . Kr.Ben. ;í if Morgunblaðið/Kr.Ben. Albert GK eftir breytingarnar er hið glæsilegasta skip þar sem það liggur í Grindavikurhöfn eftir heimkomuna. Sig. Jóns. Sala á gámafiski í Þýskalandi: Reg’lur EB um lág- marksverð brotnar Morgunblaðið Kr.Ben. Feðgamir Sævar Þórarinsson og Þórarinn Ólafsson em skipstjórar á Albert Gk en Sævar hefur verið aðalsskipstjóri undanfarin ár. Grindavík: Loðnuskipið Aibert GK 31 gjörbreytt Grindavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.