Morgunblaðið - 05.07.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
23
veiðimaður og njótir þess betur þvi
verri sem skilyrðin eru: Ruwe seg-
ir: „Ekki segi ég það nú kannski
að ég vilji að skilyrðin séu sem
verst, en það er satt, ég er dugleg-
ur í veiðiskap og það er vegna þess
að ég hef óendanlega gaman af
þessu. Veiðin er mér ástríða og það
er eins og að lifa draum að geta
dvalið við fallega laxveiðiá, sett í
lax á flugu í fallegu umbverfí. Ann-
ar sannleikspunktur í því sem þú
lagðir fyrir mig er, að ég vil hafa
fyrir mínum veiðiskap. Mér líkar
við dimma rigningardaga, kann vel
við mig þegar þannig viðrar, því
mér fínnst það eiga meira við í laxi
heldur en sól og blíða þótt ég hafi
ekkert á mót slíku veðri. Málið er
einfaldlega að veiðiskapurinn verð-
ur að vera krefjandi, ég vil þurfa
að vaða langt, kasta langt og þreyt-
ast í glímum við sterka laxa. Ég
hann var að gera, til vitnis um það
er velgengni hans. Hann hélt sig
eingöngu innan vébanda Michigan,
en rétt áður en ég átti að ljúka
MA-gráðunni minni var ég farinn
að iða svo í skinninu að reyna fyrir
mér, að ég hélt til Texas þar sem
ég vann á olíusvæðunum í 4 ár.
Ég var tvítugur þegar ég tók þessa
ákvörðun. Ég vildi afla mér reynslu
upp á eigin spýtur, en hugmyndin
var að taka saman' með föður
mínum. Það var nú svo skrítið, að
þegar ég var farinn að vinna fyrir
olíufyrirtæki í Texas, þá var það
eitt af mínum fyrstu verkefnum að
fara til Michigan og leita að olíu.
Ég var í þessu til 24 ára aldurs,
til ársins 1960, en þá fór að draga
til tíðinda í lífi mínu.“
Hvaða tíðindi voru það? Ruwe
svarar: „Þá fór ég að vinna fyrir
Richard Nixon sem fór fram gegn
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, á skrifstofu
sinni við Laufásveg.
tel það ekki einu sinni eftir mér að
tína slýið af línunni ef ég hitti á
slýrek í ánni. Það er hluti af heildar-
dæminu, slýrekið gerir veiðina
erfiðari og meira krefjandi og þann-
ig vil ég hafa það. Eins og ég sagði
áðan eru gæði mér meira virði held-
ur en fjöldi."
Við vendum nú okkar kvæði í
kross, spyrjum sendiherrann sitt-
hvað um uppruna hans, æsku,
skólagöngu og væntingar. Hann
svarar þessu öllu ljúflega. Hann er
fæddur og uppalinn í Detroit í Mich-
igan-ríki. Reyndar fór uppeldið að
hluta fram við Lake St.Clair, sem
er rétt fyrir utan Detroit, en um-
rætt vatn er „minnst vatnanna
miklu“ eins og Ruwe kemst að orði.
Bæði á þessum tíma svo og seinna,
er hann kom heim til sumarvinnu
með námi kynntist Ruwe útivist og
veiðiskap. Hann vann fyrir sér sem
vikapiltur á búgarði sem var með
ferðamannaþjónustu. Var hann
„altmuligmaður" og ekki síst leið-
sögumaður fyrir stangveiðimenn.
„Þarna var regnbogasilungur og
hann fallegur. Fiskurinn þama
minnir mig svolítið á Þingvalla-
bleikjuna. Þama var líka ein af
mörgum útgáfum af vatnaurriða.
Ég sótti mjög í þetta strax í æsku
samt kom svo langt hlé á veiðiskap
uns við pabbi tókum þráðinn upp
aftur."
Ruwe fór í gegnum skólakerfíð
í Michigan. Hann hugðist feta í
fótspor föður síns sem nam jarð-
fræði og efnaðist svo á svokölluðu
„Wildcatting", en „Wildcatters“ eru
þeir menn kallaðir í Bandaríkjunum
sem hafa haldið af stað undir for-
merkjunum vogun vinnur, vogun
tapar. Þeir leita olíu á olíklegum
stöðum og Lester Ruwe vissi hvað
hann var að gera. Margar af olíu-
lindum þeim sem hann boraði upp
og uppgötvaði fyrir áratugum em
enn í notkun. „Pabbi vissi hvað
John F. Kennedy. Þessi kosninga-
barátta hafði þau áhrif á mig að
ég fór að velta fyrir mér hvort
framtíð mín lægi þrátt fyrir allt í
olíuheiminum. Eg ákvað að gefa
stjómmálavafstrinu forgang og
fann að mér líkaði þetta afar vel.
Ég steypti mér á kaf í þetta og hef
ekki séð eftir því. Á ferli mínum í
stjómmálum hef ég kynnst ýmsum
stómmálamönnum, þar af þremur
sem orðið hafa forsetar Banda-
ríkjanna. Ég hef unnið með þeim
öllum í gegnum kosningabaráttu
þeirra. Þetta em þeir Richard Nix-
on, Gerald Ford og nú síðast Ronald
Reagan. Ég vann einnig fyrir
Rockefeller þegar hann bauð sig
fram til ríkisstjóra í New York.“
Næst er Ruwe spurður að því
hver helsti munurinn væri á þeim
tignu mönnum sem hann nefndi og
við hvem þeirra sér hefði líkað best.
Hann reynist vera ákaflega orðvar
gagnvart þessum spumingum og
er það kannski engin furða. Hann
lætur sér nægja að segja að það
sé erfitt að svara þessu þar sem
forsetamir hefðu hver um sig sett
ólík mál á oddinn. Til dæmis hefði
Nixon lagt allt kapp á utanríkis-
mál, Reagan á innanríkismál
o.s.frv., þess vegna væri erfitt að
leggja mennina og störf þeirra hlið
við hlið til samanburðar. Hins vegar
hefði hann kynnst Gerald Ford
líklega best af þeim öllum, þá hefði
hann haft stöðu við innanríkisráðu-
neytið og eiginkona hans vann þá
einnig í Hvíta húsinu.
Talið berst um hríð aftur að lax-
veiðum hér á landi og í beinu
framhaldi þar af emm við komnir
að sendiherrastöðunni og tilurð þess
að hann sótti svo mjög að fá hana.
Ruwe segir: „Það var í rauninni
ekki eingöngu vegna þess að ég
hafði kynnst svo vel landi og þjóð,
að ég gæti staðið mig vegna þess.
Ég hef til dæmis sett mig þannig
inn í málefni Atlantshafsbandalag-
ins að ég geri mér fulla grein fyrir
stöðu íslands gagnvart því. Sú
staða er mikilvæg. Einn utanríkis-
ráðherra íslands sagði einu sinni
fyrir vestan haf, að ísland ætti í
raun meiri hagsmuna að gæta inna
NATO heldur en Bandaríkin. Mér
fannst þetta fyrst djörf yfirlýsing,
en þegar ég hugsaði út í það sá ég
að það var margt til í þessu. Nú,
vegna þessa áhuga míns á NATO
þá lagði ég mig ekki eingöngu í líma
við að kynnast fólkinu í landinu,
heldur einnig íslensku stjómarfari.
Útkoman var sú, að ég fór að hugsa
mér sendiherrastöðu á íslandi sem
draumastöðu, þá stöðu sem mér
hentaði betur en nokkur önnur.
Þegar hún bauðst var það eiginlega
of gott til að vera satt. Ég man
hvað konan mín varð undrandi á
sínum tíma þegar ég bauð stjóm-
völdum ekki upp á annan valkost
þegar mér var boðin staða í stjóm-
inni hjá Reagan. En svona var í
pottinn búið.
Hefur þú orðið fyrir vonbrigðum
á einhvem hátt eða vildir þú nú að
hlutimir hefðu æxlast á annan
hátt?: Ruwe á síðasta orðið: Nei.
TEXTI:
GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON
GÖTEBORGS TEATER- OCH KONSERT AB
söker
óskar eftir að ráða
FRAMKVÆMDASTJÓRA/FORSTÖÐUMANN
SINFÓNÍUHUÓMSVEITAR GAUTABORGAR
Staðan er nú þegar laus.
Göteborgs Teater og Konsertaktiebolag annast nú rekstur
sinfóníuhljómsveitarinnar en áætlað er að borgin taki við
rekstrinum nú í haust.
Forstöðumaðurinn hefur með höndum rekstur tónleikahallar
Gautaborgar í samráði við stjóm hússins og innan ramma
þeirra fjárveitinga sem stjórnin ákvarðar.
Við óskum eftir sjálfstæðum og hugmyndaríkum manni, sem
þekkir reglur markaðarins og hefur lokið viðskiptafræðinámi.
Mikilvægt er að til starfans veljist maður sem getur hvatt
samstarfsmenn sína til dáða.
Upplýsingar um starfið veita Lars Argren stjórnarformaður í
síma 31-20 4417 eða varaformaöurinn Rune Hellgren í síma
31-62 67 40. Bengt Hörnberg forstöðumaður veitir einnig
upplýsingar í síma 31-81 99 20.
Einnig má hringja í fulltrúa starfsmanna þau Britt-Louise Johan-
son og bengt carlsson í síma 031-20-01-30. Umsóknir með
viðeigandi upplýsingum ásamt upplýsingum um hvenær við- 7
komandi getur tekið til starfa verða að hafa borist stjórninni
fyrir 26. júní 1987. Þær skal senda:
GÖTEBORGS TEATER- OCH KONSERT AB
Box 53116
Att: Personalchef Ingemar Juhlin
400 15 GÖTEBORG
MUNIÐ
STÓRLEIKINN
KR
VALUR
mánudaginn 6. júlí kl. 20:00 að Hlíðarenda.
Feróaskrifstofan
. Betri
f kostur
GOODYEAR
TRAKTORSDEKK
gera kraf taverk
Til kraftaverka sem þessa þarf gott jarðsamband.
Það næst með Goodyear hjólbörðum.
Gott samband jarðvegs og hjólbarða auðveldar alla
jarðvinnu.
Hafið samband við umboðsmenn okkar.
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJOLBARÐA
GOODfYEAR
IhIHEKIAHF
LL_U Laugavegi 170-172 Simi 28080 695500 1 —'