Morgunblaðið - 05.07.1987, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
36
Afmæliskveðja:
Þórður Sigurðs
son í Hnífsdal
í dag á Þórður Sigurðsson í
Hnífsdal 80 ára afmæli. Hann er
fæddur á Kleifum í Ögurhreppi 5.
júlí 1907 og voru foreldrar hans
Þorbjörg Pálsdóttir og Sigurður
Gunnarsson. Hann ólst upp hjá
hjónunum Guðrúnu Þórðardóttur
og Guðmundi Reginbaldssyni á
Kleifum til 14 ára aldurs, en þá
lést Guðmundur. Eftir það varð
hann að sjá um sig sjálfur og vann
'hann hin ýmsu störf sem til féllu
bæði til sjávar og sveitar.
Árið 1932 fór Þórður í Bænda-
skólann á Hvanneyri og lauk prófi
þaðan tveimur árum síðar með
fyrstu einkunn. Eftir að hann lauk
námi fór hann aftur vestur í Djúp
og þar hefur hann ætíð átt starfs-
vettvang.
Hann kvæntist Guðnýju Finns-
dóttur frá Hrauni á Ingjaldssandi
2. desember 1938 og hefur heimili
þeirra alla tíð staðið í Hnífsdal. Þau
eignuðust þrjú böm: Guðrúnu, sem
býr á Höfða á Höfðaströnd í Skaga-
fírði og gift er Friðriki Antonssyni,
Guðnýju Sigríði, sem gift er Jens
Kristmannssyni, aðalbókara Orku-
bús VestQarða, og Guðmund,
VEISLA í HVERRI DÓS
KJÖTIÐNADARSTÖÐ KEA
AKUREYRI SÍMI: 96-21400
byggmgameistara, kvæntur Ernu
Jónsdóttur og eru þau búsett á
ísafírði.
Á árinu 1944 hófu Guðný og
Þórður búskap á Bakka í Hnífsdal.
Þórður tók mikinn þátt í félagsmál-
um, átti m.a. sæti í hreppsnefnd
Eyrarhrepps á árunum 1950—1968,
var formaður skólanefndar bama-
skólans í Hnífsdal í 10 ár og
sóknamefndarformaður í 20 ár.
Hann hafði eftirlit með byggingu
bamaskólans í Hnífsdal og félags-
heimilisins og vann ýmis önnur störf
fyrir sveitarfélagið.
Eftir að Eyrarhreppur sameinað-
ist ísafírði réðst Þórður til verslun-
arstarfa í Timburversluninni Björk
á ísafírði og starfaði þar í átta ár,
en síðustu árin hefur hann sinnt
ýmsum tómstundastörfum og aðal-
lega í sambandi við ættfræði. Hann
var sæmdur merki Sjómannadags-
ráðs árið 1986.
Þórður hefur ávallt haft áhuga á
stjómmálum og verið virkur þátt-
takandi í störfumSjálfstæðisflokks-
ins og unnið mörg trúnaðarstörf
fyrir flokkinn auk sinnar löngu setu
í hreppsnefnd Eyrarhrepps.
Þórður Sigurðsson er traustur
maður og vandaður til orðs og
æðis, drenglundaður og tekur vel á
öllu því sem hann hefur að unnið
um dagana og sýnt einstaka sam-
viskusemi í störfum. Ég, sem þessar
línur rita, hef þekkt Þórð í marga
áratugi og með okkur hefur ávallt
verið traust og góð vinátta.
Ég er þess fullviss að þeir em
margir sem vilja flytja Þórði Sig-
urðssyni, á þessum tímamótum í
ævi hans, þakkir fyrir hans mörgu
og góðu störf um dagana í þjónustu
almennings. Hann hefur aldrei talið
eftir sér að vinna fyrir aðra, hefur
alltaf lagt gott til mála og haft þá
hæfíleika að kunna að meta menn
eftir frammistöðu þeirra í lífinu.
Hann varð sjálfur að sjá sér far-
borða ungur að árum og það hefur
einkennt hann síðar á lífsbrautinni.
Við sendum honum okkar bestu
kveðjur og ámaðaróskir á þessum
tímamótum, óskum honum fagurs
og bjarts ævikvölds.
Þórður mun dvelja ásamt
Guðnýju konu sinni á heimili dóttur
þeirra á Höfða á Höfðastönd á af-
mælisdaginn.
Matthías Bjamason
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
afsláttur
Íjúníog júlíveitumvið
15% staðgreiðsluafslátt af
pústkerfum í Volksvagen
og Mitsubishi bifreiðar.
Kynntu þér okkar verð,
það getur borgað sig.
m
HEKLAHF
SIMAR:
91-695500
91-695650
91-695651
Höfum opnað
sölu- og sýningarsal
fyrir öryggisbúnað okkar.
Skeifan 3h - Sími 82670
Heimsnýjung
á fUANVf!