Morgunblaðið - 07.07.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1987
Vestmannaeyjar;
Þjóðhátíð-
arlagið
frumflutt
Vestmannaeyjum.
Þjóðhátíðarlag Vestmanna-
eyja var frumflutt á laugardag-
inn á Skansinum. Þar var
troðfullt hús og atburðinum var
útvarpað í beinni útsendingu á
Stjörnunni. Höfundur lagsins,
Síðasti dansinn, er Kristinn Svav-
arsson, fyrrum liðsmaður
Mezzoforte, sem nú er meðlimur
í hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar. Texta við lagið samdi Árni
Johnsen.
Það var hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar og söngvaramir
Ema Gunnarsdóttir og Björgvin
Halldórsson sem fluttu lagið. Fyrir
því er áratuga löng hefð í Vest-
mannaeyjum að samið er sérstakt
lag fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja.
-hý.
Morgunblaðið/hkj.
Formaður Knattspymufélagsins Týs, Birgir Guðjónsson, færði
höfundi þjóðhátíðarlagsins, Kristni Svavarssyni, blómvönd frá
félaginu eftir frumflutning lagsins.
VEÐURHORFUR í DAG, 07.07.87
YFIRLIT á hádegl f gær: Yfir íslandi er 1005 millibara djúpt lægðar-
drag sem þokast austur.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt, skýjað og sumsstaðar dálítil rign-
ing á norðanverðu landinu. Á sunnanveröu landinu lóttir smám
saman til, fyrst suðvestanlands. Hiti á bilinu 7 til 11 stig nyrðra en
12 til 18 stig syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
MIÐVIKUDAGUR: Hæg vestanátt og lítilsháttar súld á annesjum
norðanlands en annars þurrt. Léttskýjað á suðaustanverðu landinu.
FIMMTUDAGUR: Útlit er fyrir hæga sunnanátt með björtu og hlýn-
andi veðri noröanlands en skúrum syðra.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
m Skýjað
ÉHlík Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * » Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígœr að ísl. tíma
Akurayri Reykjavlk hltl 13 11 veður skúr úrkomatgr.
Bsrgen 16 þokumóða
Helsinki 23 léttskýjað
Jan Mayen 4 skýjað
Kaupmannah. 21 láttskýjað
Nerasarasuaq 8 alskýjað
Nuuk 4 alskýjað
Oaló 24 hótfskýjað
Stokkhóimur 24 skýjað
Þórahðfn 11 rlgnlng
Algarve 26 helðskfrt
Amsterdam vantar
Aþena 26 skýjað
Barcelona 28 mlstur
Berlln 26 léttskýjað
Chlcago 21 þokumóða
Feneyjar 28 skýjað
Frankfurt 26 léttskýjað
Glaskow 18 skýjað
Hamborg 26 léttskýjað
LasPalmas 24 léttskýjað
London 27 mlstur
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 26 léttskýjað
Madríd 29 hélfskýjað
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 30 skýjað
Miaml 28 léttskýjað
Montreal 21 léttskýjað
NewYork 20 alskýjað
Parls 29 helðskfrt
Róm 31 helðsklrt
Vln 23 lóttskýjað
Washington vantar
Winnlpeg 16 þoka
Stykkishólmur:
Alls staðar vinn-
andi hönd að starf i
Stykkishólmi.
ÞAÐ FER ekki á milli mála að
fólk þakkar fyrir og kann að
nota sér veðurblíðuna.
Alls staðar er hin vinnandi
hönd að starfi. í Stykkishólmi
er mikið gert til að fegra bæinn.
Starfslið bæjarins er önnum kaf-
ið við að sefja þökur á gróðurlitla
bletti og í kringum skólann og
hótelið er búið að fylla upp með
mold stór svæði og nú er verið
að þekja þetta allt og gaman að
sjá hversu fegurðin kemur fyótt
í Ijós. Sveitarstjórn er það metn-
aðarmál að bærinn fari í sem
fegurst sumarklæði.
Fólk er duglegt við að prýða
í kringum sín heimili og smitast
hver af öðrum og má segja að
máltækið, hver dregur dám af
sínum sessunaut, eigi vel við. Og
margar hendur vinna létt verk.
Dr. Selma Jónsdóttír
listfræðingur látín
SELMA Jónsdóttir, forstöðumað-
ur Listasafns íslands, Iést 5. júlí
sl. Hún var fædd í Borgamesi
17. ágúst 1917 og var því hátt á
sjötugasta aldursári. Foreldrar
hennar voru Jón Bjömsson frá
Bæ, kaupmaður í Borgaraesi og
kona hans Helga Bjömsdóttir frá
Svarfhóli í Stafholtstungum.
Að loknu prófí frá Verslunar-
skóla íslands 1935 stundaði hún
fyrst nám í Þýskalandi, en hélt
1942 til náms í listfræðum við há-
skólann í Berkeley í Kalifomíu.
BA-prófi í listasögu lauk hún frá
Columbia-háskóla í New York
1944. Síðan var hún við framhalds-
nám þar og við Warburg Institute
við Lundúna-háskóla 1944—1948.
Master of Arts prófí lauk hún frá
Columbia-háskóla 1949. Doktors-
ritgerð sína, Býzönsk dómsdags-
mynd í Flatatungu, varði hún við
Háskóla íslands 1960 og var hún
fyrsta konan sem varði doktorsrit-
gerð á íslandi.
Þegar Listasafn íslands fékk inni
í nýbyggðu safnahúsi við Hring-
braut 1950 var Selma ráðin fyrsti
og eini starfsmaður þess, skipuð
umsjónarmaður 1953 og forstöðu-
maður 1961, sem hún var síðan til
dauðadags. Það kom í hennar hlut
að móta starfsemi Listasafnsins og
marka stefnuna eftir að það tók til
starfa sem sjálfstæð stofnun. Henni
var alla tíð mikið kappsmál að leysa
húsnæðisvanda saftisins til fram-
búðar. Fyrir baráttu hennar eignað-
ist safnið Fríkirkjuveg 7 þar sem
það fær nú innan skamms varanleg-
an samastað í nýjum og veglegum
húsakynnum.
Jafnhliða embættisstörfunum
lagði hún alla tíð stund á rannsókn-
Dr. Selma Jónsdóttir
ir og ritstörf um listsöguleg efni.
Auk áðumefndrar doktorsritgerðar
má af ritum hennar nefna: The
Portal of Kilpeck Church í The Art
Bulletin 1950, Saga Maríumyndar
1964, Lýsingar í Stjómarhandriti
1971, Lýsingar Helgastaðabókar
1982, í ritröðinni íslensk miðalda-
rit. Ennfremur birti hún fjölda
fræðilegra ritgerða í ritsöfnum og
tímaritum. Að undanfomu vann
hún að rannsókn á 14. aldar lýsing-
um í íslenskum handritum, aðallega
Stjóm.
Fyrir embættis- og fræðistörf sín
var Selma sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku Fálkaorðu 1979.
Auk þess hlaut hún önnur norræn
heiðursmerki. _ Hún var félagi í
Vísindafélagi Íslands.
Eftirlifandi eiginmaður Selmu
Jónsdóttur er dr. Sigurður Péturs-
son gerlafræðingur.
Auglýsingamynd
fyrir Fiat tekin
upp á íslandi
Fiatverksmiðjuraar á Ítalíu ætla
í lok þessa mánaðar að taka upp
auglýsingamynd á íslandi. Af þvi
tilefni koma hingað til lands frá
ítaliu 70 fjórþjóladrifnar Fiat
Panda bifreiðar og tveir tU þrir
170 manna hópar sem munu ferð-
ast á bílunum um landið allt á
ellefu dögum.
Hildur Jónsdóttir, hjá innan-
landsdeild Samvinnuferða-Land-
sýn, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ferðir sem þessar væru
vel undirbúnar og hefði undirbún-
ingur þessarar ferðar staðið síðan
síðasta haust.
Fyrsti hópurinn mun koma til
landsins 26. júlí n.k. og leggja af
stað í fyrstu ellefu daga hringferð-
ina daginn eftir. Að sögn Hildar
verða bílamir ekki í samfloti en
munu hittast á tjaldstæðum að
kvöldi hvers dag.
í för með ökumönnunum og far-
þegum þeirra verður að öllum
líkindum sægur ítalskra blaða-
manna og kvikmyndatökumanna
sem fylgjast munu með því hvemig
ítölsku bílamir spjara sig á íslensk-
um vegum.
Hildur tók það fram að ekki
væri um neinn torfæruakstur að
ræða og hefði fulltrúum Náttúm-
vemdarráðs verið gerð grein fyrir
ferðum ökumannanna.
Gísli Gíslason, framkvæmdastjóri
Náttúmvemdarráðs, tjáði Morgun-
blaðinu að þeir hjá Náttúruvemdar-
ráði sæju ekki ástæðu til þess að
amast við þessum ferðalögum ítal-
ana en fylgst yrði með ferðum
þeirra. Starfsmenn Náttúmvemd-
arráðs á landsbyggðinni munu
annast þetta eftirlit með aðstoð lög-
reglu.