Morgunblaðið - 09.07.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1987
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 550 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið.
Skattstofnar og
skattstigar
••
Ollum mátti ljóst vera að
aukin skattheimta — í ein-
hveiju formi — yrði fylgifiskir
nýrrar ríkisstjórnar, eins og stað-
an í efnahagsmálum og einkum
ríkisfjármálum var metin af
tveimur núverandi stjórnarflokk-
um. Niðurstaðan af samninga-
viðræðum flokkanna var sú að
brýnt væri að draga úr þenslu í
þjóðarbúskapnum og hamla gegn
verðbólgu, sem sýnt hefur greini-
leg vaxtarmerki. í annan stað
var rekstrarhalli ríkissjóðs hálfur
fimmti milljarður króna tvö
næstliðin ár og fyrirsjáanlegur
halli líðandi árs, að óbreyttum
gjalda- og tekjuáætlunum, rúm-
lega hálfur fjórði milljarður til
viðbótar. Sjálfstæðismenn hafa
haldið því fram, að þessi halli
væri að langstærstum hluta her-
kostnaður í baráttunni gegn
verðbólgu og fyrir jafnvægi og
stöðugleika í atvinnu- og efna-
hagslífi þjóðarinnar. Innan
Sjálfstæðisflokksins hafa verið
uppi sterkar raddir um að engin
sérstök hætta væri samfara
hallarekstri á ríkissjóði að því
tilskyldu, að sá halli væri fjár-
magnaður með innlendum lán-
tökum. Þetta sjónarmið nýtur
takmarkaðs stuðnings í hinum
stjómarflokkunum.
Eitt af markmiðum nýrrar
ríkisstjórnar er að eyða þessum
halla á næstu þremur árum. Til
þess að ná því marki eru tvær
leiðir til. Annarsvegar að auka
tekjur ríkissjóðs eftir gamal-
kunnum tekjuöflunarleiðum, það
er skattheimtu. Hinsvegar að að
beita niðurskurði, aðhaldi og
hagræðingu í ríkisbúskapnum,
laga útgjöldin að áætluðum tekj-
um og fjárhagsgetu ríkissjóðsins.
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur hafa krafizt aukinnar
skattheimtu, en veikleiki Sjálf-
stæðisflokksins er sá, að tveimur
fjármálaráðherrum úr röðum
Sjálfstæðismanna hefur mis-
tekizt á sl. ijórum árum að ná
fram nokkrum umtalsverðum
niðurskurði á útgjöldum.
Aðild og stjórnarforysta Sjálf-
stæðisflokks tryggir, að skatt-
heimtan verður hóflegri en ella.
Niðurstaða stjórnarflokkanna er
sátt, sem kemur fyrir augu þjóð-
arinnar í stefnuyfirlýsingu og
starfsáætlun ríkistjómarinnar.
Þar er því meðal annars heitið
„að endurskoða útgjöld ríkisins
þannig að skatttekjur nýtist sem
bezt“ og að „útgjöld hins opin-
bera vaxi ekki örar en þjóðartekj-
ur“.
Eins og við er að búast fá
skattheimtuleiðir, sem stjórnar-
sáttmálinn boðar, misjafnar
undirtektir. Morgunblaðið tekur
undir gagnrýni Félags íslenzkra
iðnrekenda á skattheimtu, sem
leiðir til fjórðungsverðhækkunar
tölva og tölvubúnaðar. Tölvur
eru mikilvægur hluti af tækni-
búnaði nútíma atvinnurekstrar.
Það á að auðvelda en ekki tor-
velda íslenzkum fyrirtækjum að
styrkja samkeppnisstöðu sína að
þessu leyti, enda ráðast lífskjör
í landinu — til lengri tíma litið —
fyrst og fremst af því, hvemig
okkur tekst að laga atvinnulíf
okkar að breyttum aðstæðum,
nýrri tækni og harðnandi sam-
keppni.
Astæða er og til að vara við
ótímabærum hugmyndum um
skattheimtu á framtak eða
sparnað landsmanna. Skatta-
reglur eiga að hvetja fremur en
letja bæði til framtaks í atvinnu-
lífinu og almennrar sparifjár-
myndunar. Meginorsök erlendrar
skuldasöfnunar á verðbólguárun-
um, sem rýrir til langrar fram-
tíðar lífskjör í landinu, var sú,
að innlend spariijármyndun var
lögð í rúst eða svo gott sem.
Hmn innlends sparnaðar gerði
íslenzkt atvinnulíf og raunar
ríkisbúskapinn einnig háðari er-
lendum sparendum en góðu hófi
gegndi. Sá sproti sparnaðar, sem
festi rætur hjá almenningi í tíð
fráfarinnar ríkisstjórnar, þarf að
eiga áframhaldandi vaxtarskil-
yrði. Hann þolir hinsvegar ekki
beitarálag ótímabærrar skatt-
heimtu.
Ríkisstjórnin hefur sett sér það
markmið „að stuðla að jafnvægi,
stöðugleika og nýsköpun í efna-
hags- og atvinnulífi, bæta lífskjör
og draga úr verðbólgu". Þetta
markmið er góðra gjalda vert.
En það eru verkin, sem skipta
máli og nú er að sjá, hvort hinni
nýju ríkisstjórn tekzt að standa
við þau fyrirheit, sem hún gefur
í stjórnarsáttmála.
Til lengri tíma litið er það mun
vænlegri og tryggari leið til
tekjuöflunar og tekjuaukningar
ríkissjóðs að stuðla að auknum
umsvifum í þjóðarbúskapnum,
en hækka skattstigana. Ofskött-
un hefur þvert á móti hliðstæð
áhrif á almennt vinnuframlag og
atvinnulífið og ofveiði á nytja-
fiska. Höfuðstóllinn minnkar. Til
lengri tíma litið eru það því hags-
munir ríkissjóðs engu síður en
þjóðarbúskaparins í heild að
tekjuöflun ríkissjóðs fari ekki
yfir skattaleg „nýtingarmörk"
atvinnuvega og almennings.
NY RIKISSTJORN TEKIN I/10 VOLDUM
Jón Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra:
Bráðabirgðalög
fyrsta verkefnið
JÓN Baldvin Hannibalsson tók
við lyklavöldum að fjármála-
ráðuneytinu síðdegis í gær úr
hendi Þorsteins Pálssonar, frá-
farandi fjármálaráðherra.
Þorsteinn sagði þegar hann af-
henti Jóni Baldvin lyklana að
auðvitað stæði kratarós á borði
í ráðuneytinu, nýja fjármálaráð-
herranum tií heiðurs. Jafnframt
afhenti Þorsteinn fjármálaráð-
herra sparibaukinn Óskar, sem
hann sagði að fylgt hefði sér í
fjármálatíð sinni. Bauknum
fylgdi 10 króna framlag forsæt-
isráðherra, sem hann sagði vera
sitt fyrsta framlag í ríkissjóð
undir stjórn Jóns Baldvins!
„Mitt fyrsta verkefni verður að
„ÞAÐ fyrsta sem ég mun gera
er að skoða þau verkefni sem er
verið að vinna að hér í ráðuneyt-
inu og setja mig inn í þetta nýja
starf,“ sagði Friðrik Sophusson,
iðnaðarráðherra, i samtali við
Morgunblaðið, eftir að hafa tekið
við lyklum að ráðuneytinu frá
Þorsteini Pálssynij fráfarandi
iðnaðarráðherra. „Eg mun síðan
fylgja eftir þeirri starfsáætlun
sem stjórnin hefur sett sér i
stjórnarsáttmálanum."
„Það þarf í fyrsta lagi að endur-
skoða skipulag orkumála og verður
byijað á því innan tíðar. í öðru lagi
þarf að hafa vakandi auga fyrir
hugsanlegri samvinnu við erlend
fyrirtæki á sviði stóriðju. Það hefur
líta grannt yfir texta bráðabirgða-
laga og reglugerða, vegna fyrstu
aðgerða þessarar ríkisstjórnar,"
sagði Jón Baldvin, er hann var
spurður hvert yrði hans fyrsta verk
sem fjármálaráðherra. Bráða-
birgðalögin verða til afgreiðslu á
ríkisstjórnarfundi kl. 10 árdegis í
dag.
Jón Baldvin var spurður hvað
hann vildi segja um gagnrýni þá
sem hefur komið fram á ákvæðin
um afnám undanþága frá sölu-
skatti: „Þó það nú væri. Það væri
til lítils ef ríkisstjómin færi af stað
með tómri blíðmælgi og fengi ekk-
ert nema rósir,“ sagði fjármálaráð-
herra.
að vísu slegið nokkuð í bakseglin
að undanförnu en við verðum samt
sem áður að fylgjast með öllum
þeim möguleikum sem kunna að
bjóðast.
Þriðja og stærsta verkefnið, og
það sem mun snerta allan allmenn-
an iðnað í landinu, er að jafna
starfsskilyrði atvinnugreinanna.
Ríkisstjórnin ætlar að skapa fyrir-
tækjum jafna möguleika og skatt-
leggja jafnt hvort sem þau starfa
á sviði sjávarútvegs, landbúnaðar,
iðnaðar eða einhvers annars. Það
er vitað mál að iðnaðurinn hefur
ekki búið við sömu starfsskilyrði
og aðrar atvinnugreinar fram að
þessu," sagði Friðrik að lokum.
„Vinna, vinna og aftur vinna,“ ví
Stefánsson gaf Jóhönnu Sigurðar
Jóhanna Sigurðard
ráðherra:
Launajafr
kynjanna
f organgs1
ÞEGAR Jóhanna Sigurðardóttir
tók við embætti félagsmálaráð-
herra af Alexander Stefánssyni í
ráðuneytinu í gær bað hún að
skilnaði um vegarnesti. Svar hans
var: „Vinna, vinna og aftur
vinna.“ í samtali við Morgun-
blaðið sagði Jóhanna að meðal
forgangsverkefna sinna yrði að
vinna að launajafnrétti kynjanna,
í samræmi við eindregna yfirlýs-
ingu í málefnasamningi ríkis-
stjórnarinnar.
„Til eru lög um launajafnrétti sem
þverbrotin eru bæði af hinu opinbera
og á hinum almenna vinnumarkaði.
Tel ég það hlutverk ríkisins að ganga
á undan með góðu fordæmi. Fyrst
minnst var á þetta í málefnasamn-
ingi hljótum við sem að stjóminni
stöndum að meina það sem við segj-
um,“ sagði hún.
Jóhanna sagðist telja húsnæðis-
málin vandmeðfarin málaflokk. Vildi
hún fara yfir gögn ráðuneytisins og
skoða stöðuna mjög vandlega. Hafist
Birgir ísleifur Gunnarsson tekur
neytinu úr hendi Sverris Hermann:
herra.
Birgir ísleifur Gun
málaráðherra:
Verndun
ar megin
„Menntamálaráðuneytið er afar
umfangsmikið ráðuneyti en
grundvallarverkefnið er auðvitað
að vernda íslenska tungu og efla
islenska menningu. Ég sest í þetta
ráðuneyti með þau markmið að
Ieiðarljósi,“ sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson menntamálaráðherra
aðspurður um helstu verkefni sem
væru framundan í menntamála-
ráðuneytinu.
Birgir sagði að í stjórnarsáttmála
ríkisstjómarinnar væru ítarleg
ákvæði um menningar- og mennta-
mál þar sem kveðið væri á um mörg
Morgunblaðið/RAX
Þorsteinn Pálsson og Friðrik Sophusson takast brosandi í hendur
eftir að Þorsteinn afhenti Friðrik lyklana að iðnaðarráðuneytinu
að viðstöddu starfsfólki ráðuneytisins.
Morgunblaðið/RAX
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra kominn með lykil fjár-
málaráðuneytisins í hönd úr hendi Þorsteins Pálssonar, fráfarandi
fjármálaráðherra.
Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra:
Starf sskilyrði
atvinnugrein-
anna verði jöfnuð