Morgunblaðið - 12.07.1987, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
34
Svifíð
Sa,
-og leiki
SVIFFLUGtelst
varla til þeirra
íþrótta sem
vísitölufjölskyldan
leggurstund á í
frístundum sínum.
Þeim íslendingum
fer þó fjölgandi sem
hafa þessa íþrótt að
áhugamáli.
Starfsemi
Svifflugfélags
íslandsstendurá
gömlum merg, því
að rúmlega hálf öld
erliðin síðanfélagið
var stofnað.
Blaðamaður
Morgunblaðsins
lagði leið sína til
æfingasvæðis
félagsinsá
Sandskeiði
góðviðriskvöld eitt í
júní.
á orkukreppuna
Nokkrir menn voru staddir við
jaðar flugbrautarinnar. Þeir voru
að fylgjast með flugtaki Steinþórs
Skúlasonar á TF-SIS er okkur bar
að garði. Höskuldur Frímannsson
varð fyrir svörum, en hann sá um
að bóka flug þetta kvöld.
Allt gert klárt
Hann tók vel í hugmynd okkar
og skráði okkur niður. Meðan beðið
var eftir svifflugunni spurði ég
Höskuld hversu lengi menn gætu
verið á lofti í einu. Hann sagði
menn geta verið til eilífðamóns ef
þeir þyrftu ekki að sinna kalli
náttúrunnar. „Reyndar eru sumir
flugmenn erlendis með þvagpoka
þegar þeir eru lengi á lofti í einu.
Þeir geta verið dögum saman uppi.
Það sem máli skiptir er að
nægjanlegt uppstreymi lofts sé til
staðar," sagði hann.
- Er þetta ekki hættuleg íþrótt?
„Sumir hafa sagt að það sé
hættulegra að koma sér hingað upp
á Sandskeið en að fljúga svifflug.
Ég skal ekki leggja dóm á þá
fullyrðingu, en það gildir í þessari
íþrótt eins og öðmm, að menn verða
að vita hvað þeir em að gera og
umfram allt ekki tefla í tvísýnu.
Þá er hættan mjög lítil."
Eftir skamma stund var röðin
komin að mér og við gengum að
kennsluvélinni TF-SAB þar sem
Sverrir Thorláksson var við
stjómvölinn. Filma sett í
Þórður Eydal á flugi fyrir ofan kennsluvélina
Steinþór Skúlason búinn til flugtaks
myndavélina og trekkjarinn stilltur
á 5 myndir á sekúndu til að ná
flugtakinu. Glerkúpunni lokað og
nú fór að strekkjast á
dráttarvímum. Spilið dró
sviffluguna fyrst hægt áfram, en
síðan tók hún kipp. „Hvemig ætli
sé að vera flugmaður á F-15,“
hugsaði ég og rifjaði upp helstu
staðreyndir úr Flugvélabók Fjölva.
Það liðu ekki nema örfáar sekúndur
frá því að glerkúpunni var lokað
þar til við vomm á fleygiferð upp.
100, 200, 300, 400, 500 m sýndi
hæðarmælirinn.
Stórkostlegt útsýni
Það var ekki laust við að léttur
fíðringur gerði vart við sig í
maganum er við klifmðum. Þegar
500 metra hæð var náð var vímum
sleppt. - Vissulega hafði verið gott
veður niðri fyrr um daginn, en þetta
sló letilífið í Austurstæti alveg út.
Ég opnaði smáglugga á glerinu og
•JÉSfefítaggögj
' ----------------------'i
. m - m
' §?
A .■> t
F? V *>,. ' í
WWÉ,, - ií
,V ■ ■
Horft austur, skömmu eftir flugtak. Æfingasvœði félagsins sést
yst tíl vinstri.