Morgunblaðið - 12.07.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
35
tróð linsu vélarinnar út. Himinn var
alheiður og skyggni frábært. Sama
í hvaða átt litið var: Alls staðar
blasti við stórbrotið landslag: í
norðri skartaði Esjan sínu fegursta
í skini kvöldsólarinnar, í vestri blasti
höfuðborgin við og í bakgrunni
gnæfði Snæfellsjökull yfir
umhverfið. Bláfjöll teygðu sig til
suðurs og greina mátti útlínur
Reykjanesskagans. í fjarska sást
Suðurlandsundirlendi.
Grænir geimálfar
Eg byijaði að taka myndir. Við
flugum svo nálægt Vífilfelli að ekki
voru nema 20 metrar að
fjallshlíðinni. Þetta var einstök
tilfinning, að þjóta um loftin blá
alveg hljóðlaust. Nota uppstreymið
eins og fuglamir. Sniðugra að nota
vindorkuna á þennan hátt en greiða
kollegum J.R háar upphæðir fyrir
eldsneyti. Ekki var laust við að ég
brosti við tilhugsunina. Skammt
undan flugu Þórður Eydal
Magnússon og Steinþór Skúlason á
svifflugum sínum. Þeir voru báðir
í meiri hæð, enda voru þeir dregnir
á loft af flugvélinni Unni Gunnu.
Þegar við höfðum flogið í um 20
mínútur fórum við að lækka flugið.
Við höfðum farið nokkram sinnum
með hlíð Vífilfells og yfir nálæga
tinda. Lendingin var mjúk og
heppnaðist vel. Svifflugan
staðnæmdist og við losuðum
öryggisbeltin. „Hvað er að sjá þig
maður, þú ert grænn í framan,"
vora fyrstu hughreystingarorðin er
viðstaddir sögðu við blaðamann
Morgunblaðsins, nýstiginn úr
svifflugunni. „Mér er fúlasta alvara.
-Ég hef aldrei séð grænt andlit
áður nema í teiknimyndum." Ég tók
þessu með jafnaðargeði og sagði
að þeir gætu sjálfir verið grænir
geimálfar.
Þorgeirs þáttur
Skömmu síðar hófst þáttur
formannsins, Þorgeirs Amasonar
formanns félagsins. TF-TUG dró
svifflugu hans á loft og þegar
dráttartauginni hafði verið sleppt
byijaði ballið. Þar var ekki að sjá
að uppi færi vélarvana sviffluga,
því sjá mátti flestar þær kúnstir sem
vélflugmenn geta látið sig dreyma
um. „Það er hægt að fljúga
svifflugum á hvolfi. Þó era slíkar
kúnstir ekki mjög algengar meðal
svifflugmanna. Einnig er hægt að
fara lykkjur og spinna líkt og á
venjulegum flugvélum,“ sagði
Steinþór. „Það er einnig nokkuð
vinsælt hjá þeim sem lengra era
komnir að fljúga lágflug á miklum
hraða. Þá kemur svifflugan niður
að jörðinni á allt að 250 km hraða,
fer upp aftur, snýr við og lendir,"
bætti Höskuldur við.
Tveir hressir strákar vora á vappi
kringum svifflugumar og fyldust
með flugi Þorgeirs. Þeir sögðust
heita Egill Amar Rossen og Pétur
Magnússon og vera 16 ára.
Aðspurðir kváðust þeir félagar vera
nýgræðingar í íþróttinni. „Þetta er
í annað skipti sem við fljúgum í
svifflugu en við eram ákveðnir í að
halda áfram," sagði Egill. Pétur
félagi hans sagði að þeir hefðu
komið fyrst á Sandskeiðið fyrir
nokkram dögum og ákveðið að
prófa, aðallega fyrir forvitni sakir,
en einnig hefði afí hans verið félagi
í Svifflugfélaginu. Piltamir sögðu
að ekki hefði gengið neitt
sérstaklega vel í fyrsta skiptið.
„Dráttartaugin slitnaði þegar verið
var að draga Pétur upp og hann
var því fremur stutt uppi í sinni
fyrstu ferð en í kvöld heppnuðust
ferðimar miklu betur."
Degi var tekið að halla og fyrir
löngu kominn háttatími fyrir
árrisula blaðamenn. Við kvöddum
og héldum til borgarinnar.
Strákamir með. „Ferlegt að vera
ekki með bílpróf."
Grein og myndir: MAGNÚS
GOTTFREÐSSON
DAS afhendir
aukavinning
Happdrætti DAS afhenti nýlega
aukavinning í júlí.
Myndin var tekin þegar eigandi
miðans, Björgvin Hallgrímsson,
Reykjavík tók við lyklunum að
Subaru stationbifreið úr hendi
framkvæmdastjóra happdrætt-
isins, Baldvins Jónssonar.
Á milli þeirra stendur eiginkona
Björgvins, Guðrún Elíasdóttir.
VUNPtA ÞAR SEM
UMHVERFIÐ ER ÆVINTÝRl LÍRAST!
í Hagkaup Kringlunni ætlum við að bæta við 150-200 manns til starfa.
í KRINGLUNNIERU NOKKRAR LAUSAR
STÖÐUR í BOÐI. GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ
MEÐAN ÞAÐ GEFST!
í ágúst opnum við hinar nýju og glæsilegu verslanir okkar í
Kringlunni. Þið sem sitjið ennþá heima eða ætlið að skitpa um
vinnustað - hvað emð þið að hugsa! Komið og sláist í skemmtilegan
hóp, því að við erum búnir að ráða sæg af hressu fólki.
NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞÉR:
Okkur vantar ennþá starfsfólk á kassa í heilsdags og hálfsdags
störf. Einnig ýmis störf í matvörudeild. Svo er það rúsínan í
pylsuendanum! Sælkeraborðið bíður eftir sniUdarkokkinum eða
matseljunni. Þið þurfið ekki að eiga skrautritað prófskírteini.
Við viljum að verkin tali sínu máli. Við bjóðum einnig helgarvinnu —
það gefur aukatekjurnar.
ALLT UNDIR SAMA ÞAKI
Við bjóðum ykkur að starfa á mest spennandi vinnustað á landinu í
dag. í Kringlunni hitta allir alla og þar mun alitaf gerast eitt-
hvað nýtt. Þú munt njóta þín í skemmtilegu umhverfi viðskipta,
þjónustu og athafna.
Þegar tími og tækifæri gefast til, getur þú sinnt
þínum erindum. Skroppið í bankann, farið með
fötin í hreinsun, pantað farseðilinn í sumarfríið og
margt fleira. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af veðri.
Þú finnur ekki notalegri vinnustað.
VID HLÖKKUN TIL AÐ HEYAR í ÞÉR
Komduog spjallaðu við okkur milli kl. 13 og 18 alla virka
daga. Ef sá tími hentar ekki - þá hringdu og við ákveðum
sameiginlega annan tíma. Vlð erum i síma 68-65-66 í Skeifunni 15.
BJ&kM?
Kristján Sturluson Valdimar Hermannsson Karl West
starfsmannastjóri verslunarstjóri . verslunarstjóri