Morgunblaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987
Sláturhúsaskýrsla landbúnaðarráðuneytis:
Þrjátíu húsum
lokað á 5 árum
„ÞAÐ Á eftir að ræða niðurstöð-
ur skýrslunnar. Menn stefna að
vissu marki að þvi að eftir henni
verði farið, en ég býst við að í
haust verði viðhöfð svipuð vinnu-
brögð og áður. Það fer meðal
annars eftir því hveiju dýra-
læknar mæla með,“ sagði Svein-
björn Dagfinnsson ráðuneytis-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu
um skýrslu nefndar um hagræð-
ingu í rekstri sláturhúsa.
I skýrslu neftidarinnar kemur
fram að hún leggur til að slátur-
húsin í Borgamesi, Búðardal,
Patreksfírði, Þingeyri, Norðurfírði,
Hólmavík, Hvammstanga, Blöndu-
ósi, Sauðárkróki, Húsavík, Kópa-
Ríkisstjórnin:
Nefnd um
erlenda
fjárfestingu
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á
þriðjudag að skipa að nýju
starfshóp til að semja regl-
ur um erlenda fjárfestingu.
Stjórn Steingríms Her-
mannssonar skipaði slíka
nefnd, en ætlunin er nú að
veita stjórnarflokkunum
þremur aðild að henni.
Þorsteinn Pálsson forsæt-
isráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að nefndinni
væri ætlað að vinna að ein-
földun á þeim flóknu reglum
er giltu um fjárfestingu er-
lendra aðila hér á landi. Hann
sagði að stjómarflokkamir
væru sammála um að eitt af
markmiðum breytinga á regl-
unum yrði að greiða götu
erlends Qármagns innan
ákveðinna marka. Þau mörk
væru meðal annars að fast
yrði haldið um auðlindir
landsins.
Hatton-Rockall:
skeri, Fossvöllum, Egilsstöðum,
Homafírði, Kirkjubæjarklaustri,
Hvolsvelli, Selfossi og Þykkvabæ,
haldi áfram rekstri.
í skýrslunni er lagt til að önnur
sláturhús verði lögð niður í áföng-
um. Árið 1987 verði lögð niður
slátrun í Sláturhúsi Sláturfélags
Suðurlands við Laxá, sláturhúsun-
um í Stykkishólmi, Bíldudal, Flat-
eyri, Þórshöfn, Djúpavogi, Vík,
Minni-Borg, Grindavík og Isafírði.
Árið 1988 verði lögð niður slátr-
un í sláturhúsunum í Króksfjarðar-
nesi, Borðeyri, sláturhúsi S.
Pálmasonar, SS Vík og SS Laugar-
ási._
Árið 1989: Sláturhúsunum í
Skriðulandi, á Dalvík, Akureyri og
Svalbarðseyri og Sláturhúsi Slátur-
samlags Skagfírðinga.
Árið 1990: Sláturhúsi á Óspaks-
eyri, Vopnafirði, Verslunarfélags
Austurlands, Reyðarfirði, Eskifírði,
Norðfirði og Fáskrúðsfirði.
Árið 1991: Sláturhúsi á Breið-
dalsvík, Fagurhólsmýri og Höfn hf.
Selfossi og árið 1997 verði lögð
niður slátrun í Bolpngarvík.
Bílvelta íLönguhlíð
Morgunblaðið/Bjami
TVÆR bifreiðir rákust harkalega saman á mótum Flókagötu og Lönguhlíðar um kl. 14 í gær,
með þeim afleiðingum að önnur bifreiðin valt og stórskemmdist. Ekki urðu nein veruleg meiðsl á
fólki. Slökkviliðið var kallað á staðinn til þess að hreinsa bensínið, sem lak úr bilnum, en við
áreksturinn kom gat á tankinn.
Skattur á erlend lán:
Flugleiðir fara fram á
undanþágu frá lögum
Þyrftu að greiða 90 milljónir af nýju flugvélunum
FLUGLEIÐIR hafa mótmælt
formlega lögum um skatt á er-
lendar lántökur sem sett voru
síðastliðinn föstudag. í bréfi sem
Sigurður Helgason stjómar-
formaður sendi Þorsteini Páls-
syni daginn sem ráðuneyti hans
tók við völdum var þess farið á
leit að skattur þessi nái ekki til
lántöku vegna flugvélakaupa eða
flugreksturs á íslandi. Legðist
skatturinn á lán vegna endumýj-
unar flugvélaflota félagsins
næmi hann um 90 milljónum
króna, segir í bréfinu.
Forsætisráðherra sagði í samtali
við blaðið í gær að hann hefði rætt
efni bréfsins við Jón Baldvin
Olíuleitarskip fengið
til leiðangnrs í haust
Hannibalsson ijármálaráðherra.
Gerði Þorsteinn ráð fyrir því að
flugvélakaupin yrðu skoðuð sér-
staklega. „Um þetta giida nú lög
sem fjármálaráðherra hefur sett og
er það því á hans verksviði að taka
afstöðu til bréfsins," sagði Þor-
stéinn. „Það var hinsvegar aldrei
ætlun okkar að lögin yrðu aftur-
virk.“
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að sér
væri kunnugt um erindi Flugleiða
en hann hefði það ekki til umíjöllun-
ar. „Þessu erindi var beint til
forsætisráðuneytisins. Engri form-
legri beiðni heftir verið beint til mín
eða fjármálaráðuneytisins um að
taka afstöðu til þessa rnáls," sagði
hann.
Samningur um flugvélakaupin
var undirritaður á afmælisfundi
Flugleiða 6. júní síðastliðinn. Samn-
ingurinn hljóðar upp á um þrjá
milljarða króna og er að sögn fé-
lagsins enn unnið að því að fjár-
magna kaupin erlendis.
í bréfí Flugleiða kemur fram að
íslensk flugstarfsemi hafí frá upp-
hafí reitt sig á erlendar lánastofn-
anir þar sem fjárhæðir þær sem
velt er í greininni hafí v'érið íslensk-
um bönkum um megn. Stjómendur
félagsins leggja jafnframt áherslu
á að íslensk flugfélög búi við sömu
skilyrði og keppinautar þeirra.
Flugvélar og rekstrarvörur séu
verðlagðar í erlendum gjaldmiðlum.
Þorsteinn var spurður að því
hvort ríkisstjómin myndi íhuga að
leggja ekki skatt á erlend lán til
flugrekstrar. „Þessi Íög vom ein-
mitt sett til að hamla gegn erlend-
um lántökum," var svar hans.
Á NÆSTU dögum verður gengið
til samninga við eitt þeirra sjö
olíuleitarfyrirtækja sem gerðu
tilboð í gagnasöfnun á Hatton-
Rockall svæðinu sem íslending-
ar, Danir og Færeyingar gangast
fyrir. Á fundi stjómamefndar
90 aurar fyr-
ir hvert kff
af þorski
HALLDÓR Ásgrimsson sjávarút-
vegsráðherra undirrítaði í gær
reglugerðarbreytingu, sem hef-
ur í för með sér þá breytingu á
greiðslum í Verðjöfnunarsjóð
fiskiðnaðaríns, að í sjóðinn ber
einnig að greiða af útfluttum
gámafiski.
Samkvæmt hinni nýju reglugerð
ber þeim, sem flytja út ferskfisk í
gámum, að greiða í sjóðinn ákveðna
upphæð fyrir hvert kílógramm af
físki. Fyrir hvert kg af þorski eru
greiddir 90 aurar, 25 aurar fyrir
aðrar tegundir, en ekkert fýrir
karfa eða kola.
verkefnisins I Kaupmannahöfn í
gær var ákveðið að úrvinnsla
gagnanna sem aflað verður með
leiðangri á svæðið í september
verði öll í höndum Orkustofnun-
ar. „Þetta er viðurkenning fyrir
Orkustofnun og veldur því að við
öðlumst reynslu i vinnslu svo
viðamikils verkefnis, sem hugs-
anlega verður hægt að nýta og
selja i framtíðinni,11 sagði Guð-
mundur Pálmason jarðeðlisfræð-
ingur og fulltrúi í sljórnamefnd-
inni i samtali við blaðamann.
Danir og íslendingar kosta rann-
sóknina til helminga. Leiga skipsins
verður líklega um 20 milljónir
króna, sem er sama upphæð og
varið er til verkefnisins á fjárlögum
í ár. Hinum helmingi flárins verður
síðan varið til úrvinnslunnar hér á
landi.
Rannsóknin á Hatton-Rockall
svæðinu mun beinast að því að afla
gagna um setlögin á hafsbotninum
og bergrunninn undir þeim.
Vísindamenn hafa komið sér niður
á ákveðna siglingarleið olíuleitar-
skipsins eftir fímm línum sem
samtals eru 1800 km að lengd.
Þrautreyndri bergmálsleitartækni
er beitt til þess að gefa sem
gleggsta mynd af eðli jarðskorp-
unnar.
Að sögn Guðmundar er hlutverk
leiðangursins í raun tvíþætt. Ann-
ars vegar fæst vitneskja um setlög-
in sem nauðsynleg er til að ákvarða
hvort þar kunni að leynast olía eða
jarðgas. Hins vegar eru gögn um
berggrunn nauðsynleg til stuðnings
þeirri skoðun Hatton-Rockall svæð-
ið sé jarðfræðilega náskylt íslandi
og landgrunni þess. „Þau gögn sem
við öflum um berggrunninn verða
hrein viðbót við það sem við vitum
fyrir," sagði Guðmundur.
Olíuleitarskipið verður leigt með
áhöfn sem annast alla vinnslu í
hafí. Um borð verða eftirlitsmenn
frá Danmörku og íslandi. Skipið
kemur að landi með tölvugögn sem
Orkustofnun á síðan að vinna úr.
Er búist við að þeirri úrvinnslu ljúki
vart fyrr en um mitt næsta ár. Ein-
ar Kjartansson jarðfræðingur sem
hefur sérþekkingu á olíuleitartækni
hefur verið fenginn til að stjóma
gagnavinnslunni, en honum til full-
tingis verða tveir íslenskir jarðvís-
indamenn.
Akranes:
Gísli Gíslason
ráðinn bæjarsljóri
GÍSLI Gislason lögfræðingur
hefur veið ráðinn bæjarstjóri á
Akranesi, en hann hefur um tæp-
lega tveggja ára skeið gegnt
starfi bæjarritara. Finun aðrir
sóttu um stöðuna. Gisli tekur
formlega við hinu nýja starfi 1.
september, en þá hættir núver-
andi bæjarstjóri Ingimundur
Sigurpálsson, en hann tekur við
starfi bæjarstjóra i Garðabæ.
Gísli Gíslason er fæddur 9. júlí
1955. Hann útskrifaðist úr Laga-
deild Háskóla íslands 1981, starfaði
síðan sem lögmaður hjá Ragnari
Aðalsteinssyni hrl. um skeið og rak
síðan sjálfstæða lögfræðiskrifstofu
á Akranesi uns hann tók við starfi
bæjarritara árið 1985. Gísli er
kvæntur Hallberu Jóhannesdóttur
og eiga þau þijú böm. Gfsli er kunn-
ur íþróttamaður og lék um skeið í
Gisli Gíslason
landsliði íslands í körfuknattleik og
hefur verið í fremstu röð forystu-
manna í íþróttamálum á Akranesi.
J.G.
]