Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 4

Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987 Morgunblaðið/Börkur Fjölmenni var á hádegisverðarfundi með Parkinson sem haldinn var á Hótel Sögu í gser. Parkinson rekur misnotkun vímu- efna til leiðinda VERJIST leiðindunum sem fylgja sjálfvirkninni, voru ráð- leggingar C. N. Parkinson til áheyrenda sinna á hádegisverð- arfundi á Hótel Sögu I gær. Parkinson er þekktur fyrir lög- mál sitt um að sérhvert starf fylli þann tíma sem til aflögu er og sjálfvirka þenslu mannahalds og verkefna. Hann er staddur hér i boði Verslunarráðs íslands og Almenna bókafélagsins. Parkinson telur að stöðnun hafí ríkt í menningu og stjómmálum meðan tækninni hefur fleygt fram og afleiðing þessa séu stöðugar til- raunir til þess að breyta vélum í menn og menn í vélar. Þetta leiði til innihaldslausrar færibandavinnu sem krefðist einskis af starfsfólki og gæfí ekkert af sér. „Leiðindi eru helsta meinsemd nútímamannsins og einkenni þeirra lýsa sér meðal annars í aukinni neyslu vímuefna", sagði Parkinson enn fremur. „Vandræðin eru þau að menn eru stöðugt að leita svara við þessum einkennum í stað þess að grafast fyrir um sjálfan sjúkdóminn.“ Hann varaði einnig við oftrú á tölvumar sem gætu auðveldlega leikið á grandalausan og taldi væn- legast að setja lög sem legðu bann við því að menn jmnu innihaldslaus störf lengur en þrjá daga vikunnar. Nánar verður fjallað um Parkinson og fyrirlestur hans í viðskiptablaði Morgunblaðsins á morgun. VEÐUR IDAGkl. 12.00: Heimild: Veðursiola Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR I DAG, 1S.07.87 YFIRLIT á hádegi í gær: Um 700 km suöur af Reykjanesi er hæg- fara 988 millibara djúp lægð. Yfir Skandinavíu er 1025 millibara hæð. SPÁ: Suðaustan gola eða kaldi (3 til 5 vindstig) og skýjað um allt land. Á suður- og austurlandi verður súld eða rigning og hætt við skúrum á noröur- og vesturlandi. Hiti allt að 20 stig í innsveitum norðanlands en annars 10 til 16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FIMMTUDAGUR: Austlæg átt. Dálítil rigning við austurströndina og á suðurlandi en þurrt að mestu norðaniands og vestan. FÖSTUDAGUR: Útlit er fyrir hægviöri og nokkuö bjart veður víöa um land, þó hætt viö skúrum suðvestanlands. Fremur hlýtt béða dagana. Alskýjað / Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■|0O Hrtastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V E' — Þoka = Þokumóða > , 5 Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður Tfr nl kKr C m % ^ w ▼ V' «* VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 ígœr að ísl. tíma hltl veður Akureyri 19 skýjað Reykjavfk 13 alskýjað Bergen 19 Mttskýjað Helsinkl 19 skýjað Jan Mayen 6 rígnlng Kaupmannah. 19 léttskýjað Narssarssuaq 11 hólfskýjað Nuuk 2 þoka Osló 19 léttskýjað Stokkhólmur 19 skýjað Þórshöfn 11 þokalgr. Algarve 29 helðskfrt Amsterdam 23 skýjað Aþena 34 helðskfrt Barcelona 28 léttskýjað Berlln 21 léttskýjað Chicago 16 léttskýjað Feneyjar 29 helðeklrt Frankfurt 24 léttskýjað Glaskow 21 mistur Hamborg 19 hélfskýjað Las Palmas 26 léttskýjað London 24 alskýjað Los Angoles 17 alskýjað Lúxemborg 24 léttskýjað Msdríd vantar Malaga 28 mistur MaUorca vantar Miaml vantar Montreal 24 þokumóða NewYork 26 þokumóða Perís 23 skýjað Róm 28 léttakýjað Vln 24 hólfskýjað Washington 26 þokumóða Winnipeg 13 skúr Þórður Jónsson á Hvallátrum látinn ÞÓRÐUR Jónsson á Hvallátrum andaðist i sjúkrahúsi í Reykjavík þann 12. júlí síðastiiðinn, 77 ára að aldri. Þórður Jón Jónsson fæddist 19. júní 1910 á Hvallátrum í Rauða- sandshreppi. Foreldrar hans vom Jón Magnússon bóndi og kona hans Gíslína Gestsdóttir. Þórður var sjó- maður í 30 ár en síðan bóndi á Hvallátrum. Auk þess fékkst hann ýmiss konar störf. Hann var hrepp- stjóri Rauðasandshrepps í 25 ár, skipaeftirlitsmaður í'íkisins í 40 ár, sjómælingamaður í 15 ár, veðurat- hugunarmaður o.fl. Hann starfaði einnig að margs konar féiagsmál- um. Þórður varð þjóðkunnur fyrir þátttöku f björgun skipsbrotsmanna af breska togaranum Doon sem strandaði undir Látrabjargi 12. des- ember 1947 og var var sæmdur gullmerki Slysavamafélgs íslands, oreskri orðu og heiðurskjali. ilann var tsæmdur ítiddarakrossi liinnar íslensku Fálkaorðu 11. apríl 1980. Kona Þórðar var ísigríður Ólafs- dóttir. Hún lést í júlí árið 1981. Þau eignuðust fjögur l>öm og eru þijú Ijeirra á lífi. Þórður var fréttaritari Morgun- blaðsins 'um iirabil og skrifaði Þórður Jónsson margar greinar r blaðið, einkum á árum úður. Blaðið sendir ijölskyldu hans samúðarkveðjur vegna láts hans. Minningarathöfn um Þórð fer fram í Fossvogskapellu f dag lciukk- :in 10.30 og útför hans verður gerð frá Breiðavíkurkirkju klukkan 13.30 næstkomandi iaugardag. Ríkisstjómin: Ráðherranefnd- um ætlað að auð- velda samstarfið ÞRJÁR ráðherranefndir voru skipaðar á fundi ríkisstjómar- innar í gærmorgun. í nefndunum situr einn fulltrúi hvers stjómar- flokkanna. Að sögn Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra eiga nefndimar að auðvelda stjómar- samstarfið og auka upplýsinga- flæði. „Samstarf þriggja flokka hlýtur að vera vandmeðfamara en tveggja," sagði hann. í nefndinni sem fjallar um efna- hags- og kjaramál sitja auk Þor- steins, Steingrímur Hermansson utanríkisráðherra og Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra. Steingrfmur og Jón silja einnig f nefndinni um utanríkismál en fulltrúi Sjálfstæðis- flokks í henni er Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra. Nefnd um ríkisfjármál skipa Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra, Friðrik Sophusson iðnaðar- ráðherra og Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.