Morgunblaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JULI 1987
23
Víglundur Þorsteinsson f ormaður FÍI:
Veriðaðýta
viðskiptum
til útlanda
Rústir Málningarhússins hreinsaðar i gær.
„Við höfum verulegar áhyggj-
ur af áhrifum þess að lagður
verði söluskattur á tölvur, þjón-
ustu og vélbúnað til gagna-
Málning hf. ræðir við bæjaryfirvöld um lóð við Reykjanesbraut:
Skiptar skoðanir um
ágæti blandaðra hverfa
- segir Björn Þorsteinsson,
bæjarritari í Kópavogi
VIÐRÆÐUR hafa staðið yfir að
undanförnu á milli forsvars-
manna Málningar hf. og bæjar-
yfirvalda í Kópavogi um yfirtöku
bæjarins á lóð og byggingum
fyrirtækisins að Marbakkabraut
21, húsnæðinu sem brann í fyrra-
dag, gegn því að bærinn úthlut-
aði fyrirtækinu lóð í iðnaðar-
hverfi við Reykjanesbraut í
Fífuhvammslandi.
Bæjarráð úthlutaði tveimur fyrir-
tækjum, ístaki og Hlaðbæ, sitt-
hvorri lóðinni á sínum tíma við
Reykjanesbrautina, en ístak dró sig
út úr samningum og fóru þá for-
svarsmenn Málningar hf. að spyrj-
ast fyrir um lóðina og standa þær
viðræður enn. Rætt hefur verið um
20.000 fermetra lóð undir alla starf-
semi fyrirtækisins. Bæjaryfirvöld
hugðust þá rífa hús Málningar við
Marbakkabraut og úthluta landinu
undir íbúðabyggingar.
Björn Þorsteinsson, bæjarritari
Kópavogs, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fyrsta aðalskipulag
Kópavogs sem hefði gert ráð fyrir
iðnaðarhveifi á þessu svæði, þ.e.
frá birgðastöð Vita- og hafnarmála-
stofnunar, sem brann fyrir mánuði
síðan, að húsnæði Málningar hf.,
sem brann í fyrradag. „Fljótlega
komu fram óskir frá íbúum við
Kársnesbraut um að svæðið yrði
gert að íbúðabyggð. Um var að
ræða erfðafestulönd svo Kópavogs-
bær gerði samninga við eigendurna
um erfðafestuna og gert var deili-
skipulag um íbúðabyggð á svæðinu
árið 1972. Ekki þótti þó ástæða til
að hrekja þau fyrirtæki í burtu sem
þarna höfðu byggt upp starfsemi
sína og sú er ástæðan fyrir því að
Málning hf. og Vita- og hafnarmál
voru með aðstöðu á þessu svæði
enn þann dag í dag."
Björn sagði að hópur íbúa hefði
skrifað undir áskorun til bæjarins
um endanlegan frágang á þessu
svæði fyrir skömmu þar sem farið
væri fram á að bærinn lyki við frá-
gang Marbakkabrautar. Hinsvegar
hefði ekki verið minnst á húsnæði
Málningar hf. í bréfí íbúasamtak-
anna né eldhættu frá húsinu, eins
og gefið hefði verið í skyn í fjölmiðl-
um.
Björn sagði að blönduð hverfi,
íbúða og iðnaðar, væru til víðar í
Kópavogi og skiptar skoðanir væru
um ágæti þeirra. Slík hverfi er til
dæmis að finna við Nýbýlaveg,
Auðbrekku og Laufbrekku og einn-
ig á Kársnestánni. Sett hafa verið
ákveðin skilyrði um hvers konar
iðnaður má vera í slíkum hverfum
og er aðallega um að ræða lítil iðn-
fyrirtæki og verslanir, að sögn
Björns.
vinnslu," sagði Víglundur
Þorsteinsson, formaður Félags
islenskra iðnrekenda, i samtali
við Morgunblaðið. „Það hefur
verið mikill vöxtur í þessum
greinum en þessi skattheimta
mun höggva verulega í mögu-
leika innlendra aðila á markaðn-
um og beinlinis ýta viðskiptunum
til útlanda."
I rafeindaiðnaðinum mun sölu-
skatturinn leggjast á framleiðslu
eins og tölvur og gagnavinnslu-
tæki, s.s. tölvuvogir, sem hafa verið
mikið seldar í frystitogara. Þessir
togarar hafa verið sendir út í breyt-
ingar og vogirnar settar í þegar
heim er komið. Ef á að setja 25%
söluskatt á þær er viss hætta á að
útgerðarmenn fari að kaupa þessi
tæki erlendis eða að íslensk fyrir-
tæki verða að flytja þau út til þess
að halda markaðnum.
Hugbúnaðarframleiðslunni er
einnig verið að ýta til útlanda ef
innheimta á söluskatt af henni.
Hugbúnaður er mjög fyrirferðarlít-
ill og hægt er að fá hann á disklingi
í pósti eða jafnvel beint í gegnum
síma. Skattheimtan yrði því bara á
íslenskan hugbúnaðariðnað þar sem
alltaf verður auðvelt fyrir þann inn-
flutta að sleppa fram hjá söluskatt-
inum.
Við eigum erfitt með að trúa því
að stjórnmálamennirnir hafi vitað
hvað þeir voru að gera þegar þeir
ákváðu þetta, að minnsta kosti ef
litið er á kaflann í stjórnarsáttmál-
anum um eflingu og vöxt atvinn-
ulífsins. Ég ætla að minnsta kosti
að vona að þeir hafi ekki vitað það,"
sagði Víglundur að lokum.
Eden:
Helgi Hálfdanarson sýnir
HELGI Hálfdanarson heldur
málverkasýningu í Eden,
Hveragerði, dagana 15.—26.
júlí. Þetta er fyrsta málverka-
sýning Helga.
Á sýningunni eru 26 olíumál-
verk, flest unnin á sl. 2 árum.
Helgi hefur verið 3 vetur í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur. Flestar
myndirnar eru landslagsmyndir
og eru allar til sölu.
Helgi Hálfdanarson er verk-
fræðingur að mennt og vinnur nú
sjálfstætt við forritagerð.
h
Helgi Hálfdanarson við eitt verka sinna.
Bækur eftir Magnus Guðbrandsson,
Gamanyrði og í léttum dúr, eru til sölu
í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
í seinni bókinni er sjón- r. .. .. 1K if-^v^^yr-^K ¦
varpsrevía sem lýsir í |- YJ\/\1 IM ' )SS( )l\I
spéspegli ýmsu sem gerist í L- 1 J V lV_^t 1 iL/w/*J>w/i N
þjóðmálum eða getur gerst
i þjóðmálum. Revían endar
við inngang í Alþingishús.
Austurstræti 18, símar 18880 og 14255
og í Nýja bœ, Eiðistorgi 11, sími 611700