Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 31

Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987 31 „Fljúgandi virki“ á Reykjavíkurflugvelli FLJÚGANDI virki, Boeing B-17G, kom til landsins í gær frá Prestvík í Skotlandi. Að sögn Jeffrey L. Ethell blaðafulltrúa í för vélarinnar er hún ein af örfá- um sem eftir eru af þessari tegnnd í heiminum af um 12.700 sem framleiddar voru á árum síðari heimsstyrjaldar. Héðan flýgnur vélin til Bandaríkjanna með millilendingu í Grænlandi og Kanada. Er henni ætlaður staður í Lone Star flugsafninu í Houston i Texas. Samkvæmt upplýsingum blaða- fulltrúans var flugvél þessi gerð upp að fyrirmynd annarrar slíkrar sem fræg er meðal áhugamanna og köll- uð var Thunder Bird. Sú hafí farið 127 árásarferðir frá Englandi í seinni heimsstyrjöld og alltaf skilað áhöfninni heilli heim þrátt fyrir að hún yrði margsinnis fyrir skoti. Blaðafulltrúinn sagði flugvél þá sem hingað kom hafa verið mikið á flugsýningum í Evrópu undanfar- in ár, en þar áður hafi hún verið lengi í þjónustu frönsku landmæl- inganna. I för með vélinni er Gene nokkur Girman sem var loftskeytamaður á fyrirmyndinni Thunder Bird. Segist hann hafa flogið með henni síðustu ferðimar áður en vélinni var lagt vegna slits og skemmda. Ahöfnin hafi fengið nýja vél, en í þriðju sprengjuferð hennar hafi hún verið skotin niður yfir Merseberg í Þýska- landi í ágúst 1944. Loftvarnarskot hafi hæft fullt sprengjuhólf vélar- innar og hafí hún sprungið í tvo hluta. Klefi loftskeytamanns hafí verið næst aftan við sprengjuhólfíð og segist Girman hafa þeyst út úr vélinni við sprenginguna og missti meðvitund. Hann hafi samt raknað tímanlega úr rotinu og tekist að opna fallhlíf sína og svífa til jarð- ar. Hafi hann verið tekinn til fanga og eytt því sem eftir lifði af stríðinu í fangabúðum Þjóðveija, en aðeins einn annar af áhöfninni hafí lifað af. Vélin lagði af stað áleiðis til Grænlands um hádegisbilið í gær. Hið „fljúgandi virki,“ Boeing B-17G, hefur sig til flugs á Reykjavíkurflugvelli í gær. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Horft inn i flugstjórnarklefa virkisins. Eins og sjá má er hann eilitið öðruvisi en flugstjórnarklefar i Boeing-flugvélum nútimans. Eyrarbakki 13 oddvitar á 90 árum Selfossi. ÞRETTÁN menn hafa gegnt starfi oddvita í Eyrarbakka- hreppi í 90 ára sögu hans. Sá sem lengst hefur gegnt þessu starfi í þágu sveitarfélagsins er Vigfús Jónsson, sem var oddviti 1946 til 1970, í 24 ár. í fréttagrein um 90 ára afmæli hreppsins féll nið- ur nafn Vigfúsar í upptalningu á oddvitum Eyrarbakkahrepps og eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á því. Sá sem fyrstur gegndi starfi odd- vita eftir stofnun hreppsins var Jón Pálsson, 1897-1898. Þá tók við Pétur Guðmundsson, 1898-1903, Guðmundur ísleifsson var oddviti 1903-1906, Guðmundur Jónsson tók við og var oddviti í 16 ár, 1906-1922, Bjarni Eggertsson, 1922-1925, Jón Einarsson, 1925-1928, þá Magnús Oddsson, 1928-1931, því næst Sigurður Kristjánsson í 11 ár, 1931-1942, og Olafur Helgason, 1942-1946. Vigfús Jónsson tekur við 1946 og er oddviti í 24 ár til ársins 1970, þegar Óskar Magnússon tekur við, 1970-1978, þar á eftir Kjartan Guðjónsson, 1978-1982, og núver- andi oddviti, Magnús Karel Hannesson, hefur sinnt því starfí frá 1982. — Sig. Jóns. Áhöfn vélarinnar í þessan ferð yfir Atlantshafið. Hjartans þakkir til ykkar allra, sem munduÖ eftir mér á sextugsafmæli mínu 15. júní síöast- liÖinn. Drottinn blessi ykkur. Sigríður Skarphéðinsdóttir fráEyri. Hugheilar hjartans þakkir til allra þeirra, er glöddu mig á nírœöisafmœli mínu meÖ heim- sóknum, gjöfum, kveöjum og símskeytum og geröu mér daginn ógleymanlegan. GuÖ blessi ykkur öll og varÖveiti. Guðlaug Ólafsdóttir, , Hjarðarholti 8, Akranesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.