Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 34

Morgunblaðið - 15.07.1987, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987 3P 34 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Siglufjörður Vantar blaðburðarfólk í afleysingar. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 71489 JW$rgMiriííW»t§> Hellissandur Umboðsmaður óskast. Upplýsingar hjá umboðsmanni, sími 93-6764 eða afgreiðslu Morgunblaðsins, sími 83033. Morgunblaðið óskar eftir blaðburðarfólki í sumarafleysing- ar í stuttan tíma, víðs vegar í Reykjavík og Kópavogi. Tilvalin morgunganga fyrir eldra fólk ! Upplýsingar í símum 35408 og 83033. ftovgtmfliifeife Hafnarfjörður — blaðberar Garðabær Blaðbera vantartil afleysinga í Flatir og Lundir. Upplýsingar í síma 656146. fttttrgtsnWnfrife Blaðbera vantar víðsvegar um bæinn til sumarafleysinga. Upplýsingar í síma 51880. fltargttiifrfafrife Tölvuháskóli VÍ Skólanefnd Verzlunarskóla íslands óskar að ráða: 1. Kennslustjóra til að skipuleggja og hafa umsjón með uppbyggingu náms í Tölvu- háskólanum. 2. Tölvufræðing sem skal skipuleggja tækni- lega uppbyggingu skólans og annast tækjakost hans og hugbúnaðargerð. 3. Kennara til að kenna eftirtaldar náms- greinar: Grunnnámskeið. Forritun (3 mál). Kerfishönnun. Fjarvinnslu. Stýrikerfi. Gagnasafnsfræði. Öryggismál. Skjölun. Vinnuvistfræði. Stjórnun. Kennsla skal skipulögð í samvinnu við vænt- anlegan kennslustjóra. Öllum stöðum við skólann fylgir kennslu- skylda. Æskilegt er að kennarar hafi starfs- reynslu frá tölvudeildum stórra fyrirtækja. Laun og kjör verða skv. nánara samkomu-. lagi við skólanefnd Verzlunarskóla íslands. Umsóknir skulu sendar Þorvarði Elíassyni, skólastjóra, eigi síðar en 15. ágúst nk. Verzlunarskóli íslands. Tölvuháskóli VÍ Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands mun taka til starfa 1. janúar nk. Innritun nemenda hefst í haust og er fyrirhugað að taka þá inn 56 nemendur. Síðar verður þeim fjölgað upp í 160 a.m.k. Kennt verður í húsakynnum Verzlunarskóla íslands, Ofanleiti 1, kl. 14.00-20.00. Námið skiptist í 3 annir sem ná yfir 1 V2 vetur. Stefnt er að viðbótarnámi síðar, sem leiði til B.S. prófs í tölvufræðum. Markmið skólans er: Að nemendur geti að loknu námi skipulagt og annasttölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og séð um kennslu og þjálfun starfsfólks sem notar tölvur. Kenndar verða eftirtaldar námsgreinar: Grunnnámskeið: Með þessu námskeiði fá nemendur ítarlega þekkingu á undirstöðuatriðum tölvufræðinnar, eins og til dæmis talnakerfinu, rökrásum og aðferðum sem beitt er við lausn vandamála. Forritun: Kennd verða þrjú forritunarmál. Markmiðið er að gera nemendur hæfa til að leysa verk- efni með hjálp tölvu, en góð kunnátta í forritun er undirstaða þess. Kerfishönnun: Markmiðið er að gera nemendur hæfa til að leysa á skipulegan hátt hin ýmsu verkefni með aðstoð margvíslegra hjálpartækja, s.s. flæðirita o.fl. Lögð verður áhersla á að kenna þessi fræði alveg frá grunni, þ.e. frá því að greina núverandi kerfi til þess að hanna nýtt. Fjarvinnsla: Tölvusamskipti milli fjarlægra staða færast sífellt í vöxt. Kennt verður hvernig gögn eru flutt gegnum símakerfi og helstu hugtök í því sambandi. Einnig verður fjallað- um nær- net og notkun þeirra og tengingu tölvutækja almennt. Stýrikerfi: Markmiðið er að kenna nemendum notkun og hönnun stýrikerfa, sem sjá t.d. um að raða notendum á fjölnotendavélar, stýra samskiptum og fleira. Góð þekking á stýri- kerfum er forsenda þess að geta nýtt vélbúnað á hagkvæman hátt. Gagnasafnskerfi: Kennd verða helstu hugtök í gagnasafns- fræði, hönnun og notkun þeirra ásamt uppbyggingu. Öryggismál: Markmiðið er að kynna nemendum mikil- vægi öryggis í tölvuvinnslu. Gögn eru dýrmæt, og mikilvægt að þeirra sé vel gætt.' Bæði er um að ræða öryggi vélbúnaðar, s.s. eldvarnir og þjófavarnir, og eins hugbúnaðar með öryggisafritun, aðgangstakmörkun, skipulagi í kerfishönnun og forritun. Skjölun: Með þessari grein er ætlunin að gera nem- endur hæfa til að skrifa leiðbeiningar og handbækur um notkun tölvukerfa. Einnig verður þeim kennt að leiðbeina notendum, sem oft hafa litla sem enga þekkingu á tölv- um og þurfa því að fá hjálp á máli sem þeir skilja. Vinnuvistfræði: Markmiðið er að kenna nemendum að hanna kerfi með það fyrir augum að ná fram há- marks afköstum notenda og vinnugæðum ásamt þægindum í notkun. Verkefni 1: Raunhæft verkefni sem nemendur leysa með hjálp þeirra verkfæra sem þeir hafa lært að beita. Verkefni 2: Sama og verkefni 1, nema hvað það verður. jafnframt lokaverkefni og mun stærra í snið- um en verkefni 1. Stjórnun: Kennd verður uppbygging fyrirtækja, hugtök stjórnunar, vinnudreifing, skipulagning og fleira. I/erslunarskóli Islands. Ritari — móttaka Fyrirtækið er stórt hótel í Reykjavík. Starfið felst í móttöku, símsvörun og vélritun fyrir framkvæmdastjóra söludeildar og almennum störfum fyrir söludeild hótelsins. Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi gott vald á vélritun, séu huggulegir í framkomu og á aldrinum 25-40 ára. Viðkomandi þyrftu að geta byrjað strax. Vinnutími er frá kl. 8.00/9.00-16.00/17.00. Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00. Afleysmga- og ráðnmgaþjónusta /■ Lidsauki hf. W Skólavordustig la - Wi Reykjavik - Simi 621355 Viðskiptafræðingar Fræðslustörf, stjórnun og umsjón starfs- þjálfunar, skipulagsstörf o.þ.h. við Sam- vinnuskólann á Bifrösteru laustil umsóknar. Viðskiptafræðimenntun eða önnur sambæri- leg menntun og reynsla áskilin. Mjög góð launakjör, mikil tengsl við atvinnu- lífið, atvinnumöguleikar fyrir maka og fjöl- skylduíbúð á Bifröst fylgja starfi. Umsókn sendist skólastjóra Samvinnuskól- ans á Bifröst og hann veitir upplýsingar í síma 93-50001. Samvinnuskólinn. Frá menntamála- ráðuneytinu Staða konrektors við Menntaskólann við Sund er laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá 1. ágúst nk. og verður um að ræða setningu í eitt ár. Umsækjendur þurfa að hafa full kennslurétt- indi á framhaldsskólastigi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda til menntamálaráðu- neytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 1. ágúst nk. Menntamálaráðuneytið. Frá menntamála- ráðuneytinu: Lausar stöður við framhaldsskóla: Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar kennarastöður í stærðfræði og þýsku. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt- inu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 20. júlí. Menntamálaráðuneytið. Kerfisfræðingur Nýútskrifaður kerfisfræðingur frá háskólan- um í Gautaborg óskar eftir góðu framtíðar- starfi. Svar sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Áreiðanlegur — 856“ fyrir 27. júlí. Tæknifræðingur — Noregur Fyrirtæki í Norður-Noregi, sem framleiðir vélar og tæki fyrir sjávarútveg, óskar eftir að ráða tæknifræðing til starfa. Reynsla frá störfum tengdum sjávarútvegi æskileg og enskukunnátta. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 22. júlí merktar: „N — 922“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.