Morgunblaðið - 15.07.1987, Side 36

Morgunblaðið - 15.07.1987, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987 Setur allsheijarhúss réttvisinnar á Karmel-fjalli. Friður er inn- an seilingar eftir Sigurð Inga Asgeirsson Nú er nýliðið alþjóðlegt ár friðar- ins, sem Sameinuðu þjóðimar stóðu að. Allsherjarhús réttvísinnar, æðsta stjómstofnun Bahá’í-trúar- innar, sem hefur aðsetur sitt á Karmel-fjalli í Haifa, ísrael, samdi og gaf út ávarp til þjóða heimsins í tilefni af friðarárinu, er ber titilinn „Fyrirheit um heimsfrið". Þetta ávarp var fyrst afhent aðalritara Sameinuðu þjóðanna Javier Perez de Cuellar í október 1985 og síðan hafa meira en 70 þjóðhöfðingjar fengið það afhent, annaðhvort beint eða í gegnum fulltrúa þeirra. Hér á landi hefur ávarpið verið afhent forsetanum, frú Vigdísi Finnboga- dóttur, biskupi íslands, herra Pétri Sigurgeirssyni, ríkisstjóm, alþingis- mönnum, bæjarstjómm og ýmsum öðmm embættismönnum. Nú í sum- ar verður gert sérstakt átak til að kynna ávarpið allri íslensku þjóð- inni, því landskennslunefnd Bahá’ía gengst fyrir kynningarvikum um allt land í samvinnu _ við andleg svæðisráð Bahá’ía á íslandi, sem em nú orðin 12 talsins. Megininntakið í ávarpinu „Fyrir- heit um heimsfrið" er það að þjóðhöfðingjar heimsins em hvattir til að koma saman á heimsfund til að leggja gmnninn að varanlegum friði. Það er vonast til að Samein- uðu þjóðimar hrindi þessu í framkvæmd, en allt fólk jarðarinn- ar, menn, konur, unglingar og böm, er beðið um að Ijá þessu máli lið. í ávarpinu er bent á, að það er ekki nægjanlegt að banna notkun kjamavopna eða annarra vígvéla. Mennimir geta ávallt fundið upp nýja tegund vopna til að seilast eftir völdum. Það sem vantar er ósvikinn alþjóðlegur rammi. Hugar- farsbreyting þarf að eiga sér stað meðal þorra manna til að friðurinn verði tryggður. Kynþáttafordómar, þjóðemishroki, trúarofstæki, mis- rétti kynjanna, gífurleg misskipting jarðargæða og menntunarskortur em allt atriði sem standa í vegi fyrir friði. Heimsborgaraþegnrétt ætti að kenna í öllum skólum, sem útilokar á engan hátt heilbrigða ættjarðarást og nauðsyn ber til að taka upp alþjóðlegt hjálpartungu- mál, auk móðurmálsins. Þegar Bahá’íar ræða um einingu mannkynsins eiga þeir ekki við að steypa skuli alla í sama mót, eða að útrýma eigi menningu og sérein- kennum þjóðanna. Þvert á móti. Bent er á að forðast verði hættur öfgafullrar miðstýringar og virða verður sjálfsforræði þjóðanna, sögu þeirra, tungu og þjóðareinkenni. Kjörorðið verður að vera: Eining í fjölbreytileika. Bahá’u’lláh, höfundur Bahá’í- trúarinnar, benti á það i ritum sínum fyrir rúmri öld að nauðsyn beri til að koma á fót alheimsstjóm til að tryggja sameiginlegt öryggi allra jarðarbúa. Hann hvatti kon- unga og ráðamenn jarðarinnar á þeim tíma til að koma saman til fundar til að leysa deilumál sín og koma á friði. Þeir létu orð hans sem vind um eyru þjóta, en í dag sjá menn orðið brýna nauðsyn þess að koma á slíkum fundi, þó enn virðist vanta nægilegan pólitískan vilja til að ná bindandi samkomulagi. Við, sem höfum tekið þátt í því að afhenda ráðamönnum friðar- ávarpið, höfum orðið þess vör að margir efast um að friður sé mögu- legur, því „það hafa alltaf verið stríð og það munu alltaf verða stríð", eins og einn viðmælanda okkar sagði. Þetta viðhorf hefur mjög lamandi áhrif á alla friðarvið- leitni og felur í sér þversögn, því annars vegar þrá allir frið, en hins vegar er því haldið fram að friður sé óhugsandi, því maðurinn sé í eðli áinu árásargjam. í ávarpi alls- heijarhússins er því hins vegar haldið fram að þetta sé aðeins skrumskæling á sönnu eðli manns- ins. Þar með er ekki verið að afneita fortíð mannkynsins, sem hefur oft- ast nær verið blóði drifin allt fram á okkar daga, heldur er leitast við að skilja þá þróun sem átt hefur sér stað í gegnum aldimar. Lífi mannkynsins á jörðunni er líkt við stigbundna þróun í lífi hvers ein- staklings: „Stig bemskunnar er að baki og við erum nú stödd í miðjum þeim umbyltingum og umróti, sem einkenna unglingsárin. Framundan er aftur á móti manndóms- og þroskatími mannkynsins." Bahá’íar eru því bjartsýnir, þrátt fyrir að dökkt sé framundan, á endanlegan sigur hins góða og göf- uga í manninum og að heimsfriði verði komið á. Allherjarhús réttvís- „ Allherjarhús réttvís- innar bendir á marga heillavænlega forboða friðar og einingar með- al manna, eins og t.d. aukna alþjóðlega sam- vinnu á ýmsum svið- um.“ innar bendir á marga heillavænlega forboða friðar og einingar meðal manna, eins og t.d. aukna alþjóð- lega samvinnu á ýmsum sviðum, stofnun Sameinuðu þjóðanna, al- þjóðlegar mannúðar- og friðar- hreyfingar og geysilegar vísinda- legar framfarir sem gera einingu mannkynsins mögulega. Ef grannt er skoðað má sjá að meginþráður mannkynssögunnar stefnir í átt til sameiningar allrar jarðarkringlunnar. Fyrir óralöngu urðu fyrstu fjölskylduraar til, síðar sameinuðust þær í ættblka, borgríki og loks þjóðir. Heimseining og frið- ur hlýtur því að vera næsta skrefið í þróunarferlinu. Reyndar á mann- kynið ekki nema um tvo kosti að velja, eins og bent er á í ávarpinu: „Að þessi friður verði fyrst að veru- leika eftir óumræðilegar skelfingar, sem þrákelknisleg fastheldni mann- kynsins við gamalt hegðunarmynst- ur hrindir af stað, eða honum verði komið á núna á grundvelli vilja til samráðs.“ Eins og titill ávarpsins „Fyrirheit um heimsfrið" gefur til kynna trúa Bahá’íar því statt og stöðugt að „friður sé ekki aðeins mögulegur, heldur óhjákvæmilegur" og ekki nóg með það heldur lýsir allsheijar- hús réttvísinnar því yfir að friðurinn mikli sé nú innan seilingar þjóð- anna. Unga fólkið í dag, og ef til vill einhver okkar hinna sem eldri erum, er sú kynslóð sem mun verða vitni að því er pólitískur friður kemst á og styijaldarátökum linnir á þessari hijáðu jörð. Vafalítið munu risaveldin ekki geta komið sér saman um gagnkvæma friðar- samninga að svo stöddu. Það verður ekki fyrr er óttinn við gerðeyðingu er orðinn svo yfirþyrmandi, að þjóð- arleiðtogamir sjá sig tilneydda að bijóta odd af oflæti sínu og koma á pólitískum friði. Kjamorkuslysið í Tjemobil í Sovétríkjunum opnaði augu margra háttsettra ráðamanna fyrir nauðsyn alþjóðlegrar sam- vinnu og sátta, en það þarf eflaust meira til, því miður. í síðasta kafla ávarpsins víkur allsheijarhúsið nokkrum orðum að Bahá’í-alheimssamfélaginu og þeim þjáningum, sem trúsystkini okkar líða enn í Iran, en þar hafa Bahá’í- ar verið sviptir öllum réttindum, verið fangelsaðir án dóms og laga, pyntaðir og líflátnir. Eins og komið hefur fram í fréttum beitir Amnesty Intemational sér nú fyrir því, að vekja athygli umheimsins á þeim hörmungum, sem eiga sér stað í íran, og í því sambandi hafa Bahá’í- ar sérstaklega verið nefndir á nafn. í friðarávarpinu er Bahá’i í sam- félaginu lýst sem samfélagi „3-4 milljóna manna frá mörgum þjóð- um, menningarsvæðum, stéttum og trúarbrögðum, sem tekur þátt í efn- islegum þörfum fólks í mörgum löndum. Það er ein, félagsleg lífræn heild, fulltrúi fyrir fjölbreytileika hinnar mannlegu íjölskyldu og stjómar málefnum sínum með kerfi meginreglna er lúta að samráði og em viðteknar af öllum og það nýtur í jöfnum mæli allra hinna miklu úthellinga guðlegrar leiðsagnar í sögu mannsins. Tilvera þess er enn einn vitnisburðurinn um það, hve raunhæf sýn stofnanda þess var í sameinuðum heimi; enn ein sönnun þess, að mannkynið getur lifað sam- an, sem eitt hnattrænt samfélag, er geti staðist allar þær þolraunir sem ferill þess á þroskabraut kann að færa því.“ Það sakar ekki að geta þess að hér á landi er einnig starfandi þróttmikið Bahá’í-sam- félag, sem samanstendur af fóki af ýmsu þjóðemi, þó íslendingar séu þar að sjálfsögðu í miklum meiri- hluta. Ég vil ljúka þessari umfjöllun minni um ávarp allsheijarhúss réttvísinnar með því ótvíræða fyrir- heiti sem Bahá’u’lláh gaf og vitnað er til í niðurlagi þess: „Þessar til- gangslausu deilur, þessi eyðileggj- andi stríð, munu líða undir lok og friðurinn mesti komast á.“ Höfundur er Bahá’í-trúar og er kennari í grunnskóla. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar m Símar: 14606 og 23732 Helgarferðir 17.-19. júlí. 1. Þórsmörk — Goðaland. Gist í skálum Útivistar i Básum, ein- um friðsælasta stað Þórsmerk- ur. Gistiaðstaða eins og best gerist i óbyggðum. Skipuiagðar gönguferðir. 2. Landmannalaugar — Eldgjá, nýtt. Skemmtileg og fjölbreytt hringferð um Fjallabaksleið nyrðri. Gengiö um Eldgjá, (Ófærufoss), og Landmanna- laugasvæðið. Fararstjóri: Ingi- björg S. Ásgeirsdóttir. Brottför föstud. kl. 20.00. 3. Skógar — Fimmvörðuháls — Básar. Brottför laugard. kl. 8.00. Uppl. og farm. á skrifst., Gróf- inni 1, símar: 14606 og 23732. Sjáumst. Útivist. UTIVISTARFERÐIR UTIVISTARFERÐIR Sumarleyfisferð á Hornstrandir 17.-24. júlí, 8 dagar Ekið á föstud. um Strandir i Norðurfjörð og siglt I Reykjafjörð á Hornströndum. Dvalið þar til fimmtudags og siglt fyrir Horn til Isafjarðar. Frábærar göngu- leiðir til allra átta frá tjaldstað. Tilvalin fjölskylduferð. Góð farar- stjórn. Sundlaug. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, simar: 14606 og 23732. Sjáumst. Útivist, ferðafélag. i.i). UTIVISTARFERÐIR Miðvikudagur 15. júlí Kl. 20.00 Engey. Brottför frá kornhlöðunni Sundahöfn. Verð kr. 400.- fritt fyrir börn m. full- orðnum. Ef veður aftrar landtöku veður farið í Viðey. Gengið verð- ur um eyjuna. Upplýsingar og farm., skrifst., Grófinni 1. Sjáumst. Útivist. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferð 17.-19. júlí: 1) Kjölur — gönguferð f Kerllng- arfjöllum Ekið til Hveravalla og gist þar í sæluhúsi Ferðafólagsins. Á laugardegi er farið i Kerlingar- fjöll og gengið þar. 2) Landmannalaugar — Eldgjá Ekið til Landmannalauga og gist þar í sæluhúsi Ferðafélagsins. Farið í Eldgjá ef fært verður, annars farnar gönguferðir á Laugasvæðinu. 3) Þórsmörk — gist f Skag- fjörðsskála/Langadal Gönguferðir um Mörkina. Missið ekki af sumrinu I Þórsmörk. Notfærið ykkur frábæra aðstöðu Ferðafélagsins í Langadal og dveljið lengri tíma. Brottför i allar ferðirnar er frá Umferðamiðstöðinni, austan- megin, kl. 20.00 föstudag. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu Ferðafélagsins, öldu- götu 3. Ferðafélag fslands. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Miðvikudagur 15. júlí — kvöldferð. kl. 20. Bláqöll - farlð upp með stólalyftunni. Farið með stólalyftunni frá þjón- ustumiðstööinni upp á Bláfjalla- hrygginn og gengið siöan niöur að sama stað. Verð kr. 500.00. Brottför frá Umferöamiöstöö- inni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frr'tt fyrir börn I fylgd fullorð- inna. Ferðafélag islands. 1927 60 ára 1987 FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 17-24. júlf (8 dagur): Lónsöræfl. Flug eða rúta til Hafnar í Horna- firði. Jeppar flytja farþega inn á lllakamb. Gist I tjöldum. Farar- stjóri: Egill Benediktsson. 17.-22. júlf (8 dagar): Land- mannalaugar — Þórsmörk. Gengið milli gönguhúsa frá Landmannalaugum til Þórs- merkur. Fararstjóri: Arnar Jónsson. 22. -26. júlf (6 dagar): Land- mannalaugar — Þórsmörk. 23. -26. júlf (4 dagar); Strandlr, Isafjarðardjúp. Gist tvær nætur á Laugarhóli I Bjarnarfirði og eina nótt á Reykjanesi. Ekiö norður ÍTrókyll- isvík, farið yfir í Djúp um Steingrfmsfjarðarheiði og suður til Reykjavikur um Þorskafjarðar- heiði. Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofu F.I., Oldugötu 3. Ferðafólag fslands. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Almennur bibliulestur kl. 20.30. Hörgshlíð 12 Samkoma í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20.00. Kallkerfi 2ja, 3ja, 4ra stöðva. RAFBORG SF. Rauðarárstíg 1, simi 11141. Dyrasímaþjónusta Gestur rafvirkjam. — S. 19637. Gistiheimilið Mjóuhlið 2. S. 24030.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.