Morgunblaðið - 15.07.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JULI 1987
39
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjörnuspekingur. Mig
langar til þess að fá upplýs-
ingar um fæðingarkort mitt,
hæfileika og framtíðarhorf-
ur. Eg er fædd 27. febrúar
1940, milli kl. 17.30-18.00
á Landspítalanum í
Reykjavík. Bestu kveðjur."
Svar
Þú hefur Sól og Merkúr í
Fiskum, Tungl í Sporðdreka,
Venus í Hrút, Mars og Mið-
himin í Nauti og Meyju
Rísandi.
Tilfinninganœm
Það að hafa Sól í Fiskum og
Tungl í Sporðdreka táknar
að þú ert tilfinningavera, ert
næm, viðkvæm og opin fyrir
sálrænum straumum í and-
rúmsloftinu. Næmleiki þinn
er meiri en gengur og gerist,
jafnvel svo mikill að þér get-
ur stundum fundist hann
óþægilegur.
Jafnmgi
Það að Sól og Tungl voru í
120 gráðu samhljóma af-
stöðu þegar þú fæddist
táknar að gott jafnvægi er á
milli vilja og tilfinninga og
meðvitundar og undirmeðvit-
undar. Þú ert því í góðu
grundvallandi jafnvægi.
Fórnarþér
Vegna næmleikans þarft þú
að velja umhverfl þitt og var-
ast fólk og kringumstæður
sem hafa slæm áhrif á þig.
Þú ert það viðkvæm að viss-
ara er fyrir þig að fara
varlega. Æskilegt er að þú
varist tvennt. í fyrsta lagi
það að láta ímyndunarafl þitt
magna upp atburði og draga
úr þér, t.d. á þann veg að
þú þorir ekki að framkvæma
ákveðið verk vegna þess að
þú ert búin að ímynda þér
að þetta eða hitt geti gerst.
í öðru lagi þarft þú að varast
að fóma þér fyrir aðra, þ.e.
vera of eftirgefanleg og fórn-
fús.
ímyndunarafl
Merkúr í Fiskum í mótstöðu
við Neptúnus táknar að þú
hefur sterkt ímyndunarafl.
Hugsun þín er myndræn og
því getur þú stundum átt
erfitt með að setja hugsanir
þínar í orð. Það getur aftur
leitt til misskilnings milli þín
og annarra. Hæfileikar liugs-
unar þinnar eru iistrænir og
andlegir.
Einlœg
Venus í Hrút (áknar að þú
ert einlæg í ást og mannleg-
um samskiptum og ieggur
áherslu á að vera hreinskiiin.
Dugleg
Mars í Nauti táknar að þú
ert dugleg í vinnu, á rólegan
og yfírvegaðan hátt, að þú
þarft visst öryggi og ert að
mörgu leyti jarðbundin þrátt
fyrir draumlyndan Fiskinn.
Þú hefur góða orku og átt
auðvelt með að beita þér.
Hógvcer
Meyja Rísandi táknar að þú
ert hógvær og varkár í fram-
komu, ert samviskusöm og
vilt leysa verk þín vel af
hendi. Þegar á heildina er
litið má segja að þú sért held-
ur dul og varkár, tilfínninga-
rík, en eigi að síður
jarðbundin.
Hrceringar
Plútó hefur verið sterkur í
korti þínu undanfarið og
verður fram á haust ’87. Það
táknar að nú eru vissar hrær-
ingar í lífí þlnu og þörf fyrir
að hreinsa til, sérstaklega
hvað varðar tilfinningar,
daglegt lif og fortíð, en einn-
ig hvað varðar vinnu og
framkvæmdir. Á næsta ári
fer Júpíter í Miðhimin og þá
er góður tími til að gera
breytingar t.d. hvað varðar
vinnu.
GARPUR
GRETTIR
OPPI EN þ ='<'i'-l U>ElN- )
„IKllo 5/4FAt-A^TI f
i :-----------------r
x HAn*J E-K i
( SvO i->V3 At> H .VN 'VUtLijr )
SFTlK HEKJKU
<y?/V\ t?AV?£> iz
DYRAGLENS
BJOSKA
HVBKNiCj tfVAB
PIRFIST þiþ1 HEF ös
2irr
FERDBNAND
SMAFOLK
EVERY VETERAN5 PAV
I G0 0VER TO BILL
MAULPIN'5 H0U5E..
UUE QUAFF A FEUJ
ROOT BEER5 ANP
TELL UUAR 5TORIE5..
Á degi uppgjafahermanna Við fáum okkur nokkrar Ég kem trúlega snemma Afsakaðu félagi, en ég er
fer ég alltaf yfir til gam- gos og segjum sögur úr heim ... hættur að geta vakað eins
als stríðsfélaga ... stríðinu ... Iengi og hér áður fyrr...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Bandaríska sveitin sem sigr-
aði á HM í Sao Paulo 1985
verður óbreytt á næsta heims-
meistaramóti, sem fram fer á
Jamaíka í október nk. Sveitina
skipa Martel/Stansby; Pender/
Ross; og Hamman/Wolff. I
landsliðakeppni í vor þrædddi
Hamman heim erfitt geimi í eft-
irfarandi spili, sem fór tvo niður
á hinu borðingu:
Vestur gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 8752
¥Á8
♦ 852
♦ ÁG74
Vestur
♦ ÁDG964
y 7
♦ 1076
♦ K102
Austur
♦ K103
yG10543
♦ Á3
♦ 653
Suður
♦ -
y KD962
♦ KDG94
♦ D98
Vestur Nordur Austur Suður
1 spaði Pass 2 spaðar 3 hjörtu
3 spaðar 4 hjörtu Dobl Pass
Pass Pass
Vestur spilaði út spaðaás, sem
Hamman trompaði og sótti tígul-
ásinn. Austur drap strax og
spilaði aftur spaða. Hamman
trompaði og spilaði laufdrottn-
ingu, kóngur og ás. Spilaði svo
tvisvar tígli. Austur trompaði við
fyrsta tækifæri og hélt enn.
áfram með styttinginn, spilaði
spaða.
Staðan var nú þessi:
Norður ♦ 8
Vestur y k& ♦ - ♦ G74 Austur
♦ DG9 ♦ -
yi 111 y G1054
♦ - ♦ -
♦ 102 ♦ 65
Suður ♦ - y kd ♦ G9 ♦ 98
Hamman spilaði nú laufi í
þeim tilgangi að svína fyrir
tíuna. Þess þurfti okki, því vest-
ur lagði á. £>á kom lauf heim á
áttu og tígull trompaður með
ás. Hjartahjónin stóðu fyrir sínu
og 10 slagir 5 húsi.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á svæðamóti Stóra Bretlands
í vor kom þessi staða upp í skák
hins nýbakaða stórmeistara
Glenn Flear, Englandi, sem
hafði hvítt og átti leik, og Skot-
ans Condie.
17. Rg5! - De7, 18. Dd3 -
g6, 19. Bxe6! — Be8 (Eftir 19.
— fxe6, 20. Dxg6 er stutt í
mátið) 20. Dh3 - Kg7, 21.
Rxe8+ — Dxe8, 22. Rxf7 og
svartur gafst upp nokkrum leikj-
um síðar. Speelman sigraði með
miklum yfirburðum á mótinu,
hann hlaut 10 v. af 11 möguleg-
um. Hann er á mikilli uppleið,
er kominn með 2615 stig og
allar líkur á að hann komist
áfram af inillisvæðamótinu í
Júgóslavíu.