Morgunblaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.07.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987 41 fé saman til sundurdráttar úr uppl- öndum flögurra hreppa. En þegar ég kem heim í au.,turherbergi mitt undir morgun bregður svo við að handrit mín eru horfín ásamt ýmsu öðru ónýtu drasli sem ég hafði sánk- að að mér / hér hafði semsé verið tekið til. Móðir mín sagðist hafa haft raun af útpáruðum pappír og öðrum óþrifnaði inni hjá mér, og hefði hún brent þessu. Ég grét þángatil ég sofnaði / líka daginn eftir. Leingi á eftir var ég ekki mönn- um sinnandi, þángatil ég uppgötvaði að kanski var móðir mín enn sorg- mæddari en ég sjálfur af því að sjá hve illa ég barst af. Hún var líka rauð um hvarmana og varaðist að segja nema einsatkvæðisorð svo ekki lynni útí fyrir henni. „Ég átti kistil sem Sæmundur holdsveiki æskuvinur föður míns hafði smíðað mér / að honum gekk lykill. Uppúr því skrifaði ég ein- vörðúngu oní þennan kistil um sinn, en það hefði verið óþarfí að læsa honum nokkumtíma enda hætti ég því fljótt. Konan (svo) snerti aldrei síðan útpáruð blöð þessa dreing- staula síns meðan hann var heima... Ef ég ætti að lýsa einkennum bókanna án þess að vefjast { smáat- riðum, hygg ég samsetníngurinn sem þessi dreingstauli gaf útaf sér í föð- urgarði frá 7 ára aldri til 12 ára hafi verið pródúkt ofvaxinnar til- hneigíngar til að tjá sig, og er ýmsum innborin þó þeir affermi sig ekki í bókum." (Bls. 206.) Það hendir ýmsan að mæla vanhugsuð orð um foreldra sína, en allir eiga leið- réttíngu orða sinna. Umhugsunarefni er, að Halldór skyldi sjá ástæðu til að rifja upp áratuga gömul orð sín, að hann þekkti ekki móður sína. Eftir lýsingu Halldórs og Jónasar á Sigríði í Laxnesi leyfí ég mér að túlka, hver móðir hún hefur verið bami, sem var einbimi til sjö ára aldurs. Dulur maður er ekki einlæg- ur. Ekkert hlutskipti er voðalegra bami en að móðir þess dyljist því. Það er svo sárt, að bam, sem ekki nýtur einlægni, bælir sárindin með sér og sér móður sína í ljóma þeirrar þrár, sem ekki varð fullnægt, þegar tími var til. Dulur maður dylst ekki aðeins öðmm, hann dylst sjálfum sér. Skyldi ekki vera svo með bam- ið, sem þarf að tjá sig svona mikið í rituðu máli, að það hafi ekki feng- ið að tjá sínum nánustu tilfinningar sínar, og allt eins án orða, eins og bami er eiginlegt? Erfitt er að hugsa urspeglar stjóm Verzlunarráðsins því flesta þætti íslensks atvinnulífs. Enda er það í samræmi við eðli versl- unarrráða i fijálsum ríkjum heims og stofnsamþykkt Verzlunarráðsins. Starfsemi Samtök sem hafa jafn víðtækt starfssvið og Verzlunarráðið hafa afar flölbreytta starfsemi. Engin tök em á því að gera starfseminni við- hlítandi skil í stuttri blaðagrein en hér verður aðeins drepið á nokkra helstu þætti. Starfsemi Verzlunarráðsins má í grófum dráttum skipta í tvennt: Til- lögugerð í efnahags- og atvinnumál- um, og þjónusta við félagsmenn og viðskiptalífið. Tillögugerð í efnahags- og at- vinnumálum er sá þáttur í starfí Verzlunarráðsins sem hefur verið einna fyrirferðarmestur út á við, og er þar jafnan leitast við að standa utan við dægurþras stjómmálaflokka og sérhagsmuna. Verzlunarráðið leggur áherslu á heildarstefnumótun í efnahags- og atvinnumálum. Kjaminn í stefnu Verzlunarráðsins varðandi þessi mál- efni er frelsi í viðskiptum, og afnám hafta og sérréttinda. Eitt aðalmark- mið Verzlunarráðsins er að beita sér fyrir aðgerðum er stuðla að öflugra atvinnulífi á íslandi. Öflugt atvinnu- líf er til hagsbótar fyrir alla. Það bætir lífskjör og heldur ógn atvinnu- leysisins frá þjóðfélagi okkar. Sú þjónusta sem félagsmenn sækja til ráðsins er m.a. upplýsingar um stöðu efnahagsmála og horfur. Menn fá upplýsingar og leiðbeiningar um skattamál, verðlagsmál, tollamál og vaxtamál. Verzlunarráðið veitir félagsmönnum stuðning við lausn ágreiningsmála við opinberar stofn- anir eða ráðuneyti. f gegnum Verzl- unarráðið geta menn komist { ný viðskiptasambönd og ráðið getur sér meira voðaverk gegn slíku bami en að brenna öllu því, sem því lá á hjarta. Dulur maður þekkir sig ekki né viðbrögð sín, þótt hann kunni að skilja eftir á, hvað gerðist og harma það og reyni að bæta fyrir. Margur er dulur, en kann þó að njóta álits og viðurkenningar. Þar sem bamið sjö ára sér útilegu- manninn með bamið, sé ég Guðjón bónda, sem lagðist út á sumrin. Bam- inu fundust flarvistimar miklu meiri en þær voru í reynd, af því að svo mikið vantaði, þegar hann var far- inn. Dauða konan er „konan", sem tortímdi fyrir bami sínu því, sem það þráði að mega tjá og hafði ekki önn- ur ráð en setja það á blað, af því að hún var hulin baminu, þótt þau væm samvistum. Það er síendurtekin harmsaga mannsins, að jafnvel mikilhæft fólk getur brugðizt í því, sem mestu varð- ar. Valmennið Guðjón Helgason sá þann útveg tl framfæris heimili sínu að ráða sig í starf, sem bar hann að heiman, og skildi einkabam sitt eftir eitt hjá konu, sem vandalausum sýndist mætti vera salt jarðar, en kunni þó ekki að opna hug sinn þeim, sem þarfnaðist einlægra tilfinninga umfram allt annað. Það er óviðkomandi þessari sögu, hvemig Halldór vinnur úr bamslegri skynjun sinni á útilegumanni Einars Jónssonar, eins og hann gerir nokkra grein fyrir í minningum sínum. Ekki þarf heldur að taka afstöðu til skoð- unar Leníns á „bændaspursmálinu". Sams konar raunir bemskunnar geta leitt til ólíkrar afstöðu á fullorðins- árum. Hér er einungis verið að draga það fram úr játningum Halldórs, sem kynni að vera kveikjan að því „frumglæði heilbrota" hans um stæltan mann, sem vildi ráða sér sjálfur, leitaði úr margmenninu til að stofna eigið bú og skildi eiginkon- una stundum eftir eina heima vegna nauðsynjaerinda. Ekki kemur heldur þessu máli við hinn mikli áhugi Halldórs á skipulagi landbúnaðar á þessum árum. Aðrir hefðu getað lagt öðru vísi út af skynj- un sinni á bóndanum og tjaldbúanum Guðjóni Helgasyni og konu hans, Sigríði Halldórsdóttur, sem fylgdi honum með hálfum hug af Lauga- vegi í Reykjavík upp í Mosfellssveit, og þótti þunglynd (dauðaleg). Höfundur vinnur við sjálfatæðar rannsóknir í sambandi viðiand- búnað. Viðskiptamál, fréttabréf Verzl- unarráðs íslands. greitt götu manna í viðskiptaferðum erlendis, svo eitthvað sé nefnt. Af einstökum framfaramálum sem Verzlunarráðið hefur verið að beita sér fyrir má nefna að verið er að koma á fót upplagseftirliti og alhliða lesendakönnunum fyrir dagblöð og tímarit. Þá hefur Verzlunarráðið beitt sér fyrir því i samvinnu við ýmis önnur samtök verslunar og við- skipta að ísland gerist aðili að alþjóðlegu kerfi vörumerkinga. Þá er verið að fara af stað með kannan- ir á tölvumarkaðnum á fslandi. Einnig er Verzlunarráðið að koma sér upp safni myndbanda með úrvals- efni um stjómun, og fræðsluþáttum um atvinnulífíð. Höfundur sér um útbreiðslu og kynningarmál fyrir Verzlunarráð Islands. SVUNTUR — VINNUFÖT Svuntur verð: Teg. nr. 7006 kr. 1550.00 Teg. nr. 8855 kr. 2100.00 Teg. nr. 8860 kr. 1550.00 Fjölbreytt litaúrval Efni: Bomull/Polyester Þijár stæröir: Lítiö, milli og stórt. <z^iella Hvítar buxur — kr. 2100.00 Póstsendum Bankastræti 3, s. 13635 HUSEIGENDUR OG TRÖPPUR Á GÓDU VERDI! Nú er ekki eftir neinu að bíða. Álsfigar og tröppur í hundraða- tali bíða eftir að þú föir þér eintak. Það vœri margt vitiausara, þó ekki vœri nema til að fyrirbyggja slys sem oft verða þegar fólk prílar í heimatilbúnum... Verift vellcomin. Sambandið BYGGINGAV0RUR*KAUPFEL0GIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.