Morgunblaðið - 15.07.1987, Síða 52

Morgunblaðið - 15.07.1987, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1987 Stefin Þorvarðarson, sigurvagarl { móti Sigga frmnda. KEILA Stefán vann mót Sigga f rænda UM helgina var haldið monrad- mót á vegum Keilufélags Sigga frænda. Þetta er frekar sjaldgæft snið á móti í keilu, en monrad- kerfið er mikið notað í skákinni. Spilaðar voru 6 umferðir og sigraði Stefán Þorvarðar- _ son, hafði 5 og hálfan vinning. U4æstur á eftir honum kom Bjami Sveinbjömsson í 2.-4. sæti með 5 vinninga, en hann spilaði á hæsta meðaltalinu, 176. Efst af konunum varð Björg Hafsteinsdóttir með 5 vinninga. Hún spilar með íslands- meisturunum, Keilubönum. Keilu- salurinn í Öskjuhlíð gefur verðlaun í hvert skipti sem spilað er i mót- inu, en Morgunblaðið gefur síðan dyggilega verðlaun í lok mótsins. Eftir 12. umferð í Sumarmóti Sigga frænda er íslandsmeistarinn Alois Raschhofer efstur á öllum list- um mótsins. Hann er með 184 í meðaltal eftir 21 leik og hefur náð 622 í seríu og (236) er hæsti leikur- inn. í fyrra var svipaða sögu að segja er Höskuldur Höskuldsson setti íslandsmet þegar hann náði 704 í seríu og einokaði efsta sætið á öllum listum mótsins. Höskuldur fór illa af stað í sumar og hefur ekki náð sér á strik. KNATTSPYRNA / LANDSLIÐ KVENNA Æfingar að hefjast KVENNALANDSLIÐIÐ í knatt- spyrnu hefur æfingar nú í júlí undir stjórn Aðalsteins Örn- ólfssonar, fyrrum þjálfara kvennaliðs Breiðabliks. Nú verður í fyrsta skipti valið landslið 16 ára og yngri og hefur það einnig æfingar fljót- lega. Tveir leikir eru fyrirhugaðir hjá A-landsliði kvenna í sumar; báðir gegn Vestur-Þjóðveijum ytra 4. og 6. september. Unglingaiandsliðið er nýjung, sem fyrr segir, en fyrsta verkefni þess liðs verður Norðurlandamót í Nor- egi á næsta ári. Til að undirbúnin- KNATTSPYRNA bgar verði sem bestur verður hafist handa strax. Von er á færeysku liði seinna í sumar hingað til lands í æfíngagerð — og verður þá vænt- anlega haldið fjögurra liða mót með þátttöku unglingalandsliðsins, fær- eyinganna og tveggja félagsliða. Aðalsteinn Ömólfsson þjálfar einnig yngra liðið. Hann fær aðstoð frá mönnum á landsbyggðinni við val liðsins og em það Albert Ey- mundsson, þjálfari Sindra, sem mun sjá um Austurland, Þorvaldur Þor- valdsson þjálfári KA sér um Norðurland. Þá mun Karolína Jóns- dóttir, leikmaður með meistara- flokki KR, aðstoða Aðalstein við val á unglingaliðinu. Níundu umferð lýkur í kvöld Stórleikur í 1. deild kvenna EINN leikur verður í 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld, ÍBK og Fram leika í Keflavík kl. 20. 12. deild verða þrír leikir í kvöld. Þær viðureignir em: Breiðablik- Einhetji, Leiftur-Þróttur og Sel- foss-Víkingur. Stórleikur verður í 1. deild kvenna í kvöld á Akranesi. Efsta lið deildar- innar, ÍA, fær íslandsmeistara Vals í heimsókn. Allir þessir leikir hefj- ast ki. 20.00. íþróttagetraun Morgunblaðsins, Morgunblaðið, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík. ----------------------------------------^-------------------------------------------- 1. Hvað heitir íþróttafélagið á Grenivík? Svar: D............................................................................. 2. Hver á Norðurlandamet í spjótkasti karla? Svar: D............................................................................ 3. Alnafnar leika með 1. deildarliðum Vals og ÍBK í knattspyrnu. Hvað heita þeir? Svar: D............................................................................ 4. Hverjir sigruðu á Júgóslavíumótinu í handknattleik á dögunum þar sem Islendingar urðu í þriðja sæti? Svar: D............................................................................ 5. Frá hvaða landi er hlaupakonan Jarmila Kratovchvilova? Svar: D............................................................................ 6. Hver sigraði í 110 m grindahlaupi karla á landsmóti UMFÍ á Húsavík? Svar: D............................................................................ 7. íslenskt dómarapar dæmdi á Júgóslavíumótinu í handknattleik fyrir skömmu. Annar dómarinn heit- ir Gunnar Kjartansson. Hvað heitir hinn? Svar: DDI.......................................................................... 8. Hvað heitir ungmennafélagið í Mosfellssveit? Svar: D............................................................................ 9. Hverjir sigruðu í körfuknattleik á landsmóti UMFÍ á Húsavík? Svar: CD........................................................................... 10. Egill Eiðsson, hlaupari úr UÍA, á bróður sem leikur með 1. deildarliði Vals í knattspyrnu. Hvað heitir hann? Svar: Eins og áður hefur komið fram er getraunin ætluð unglingum og öðmm lesendum blaðsins 16 ára og yngri, og verða þrír verðlaunaðir. Sá sem á fyrsta umslagið sem dregið verður út hlýtur ferð til Lundúna í verðlaun — fer þangað ásamt Sigurði Samúelssyni frá Isafirði og Hauk Harðarsyni úr Biskupstungum, sem vom svo heppnir í maí- og júnígetrauninni að eiga fyrsta umslagið sem dregið var. En þrenn verðlaun verða veitt; auk utanlandsferðarinnar em í boði íþróttagallar og íþróttatöskur, Morgunblaðsklukka og bolur merktur Morgunblaðinu. Það er því ástæða til að hvetja alla til að taka þátt í þessari getraun því feistandi verðlaun bíða hins heppna! IÞau leiðinlegu mistök urðu í blaðinu í gær að villa slæddist inn í síðasta hluta íþróttagetraunar okkar. í 6. spumingunni var spurt hver hefði sigrað í 400 metra hlaupi á landsmóti UMFÍ á Húsavík — en þar átti að spyija um nafn sigurvegarans í 110 m grindahlaupi karla á landsmótinu. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum, en birtum hér síðasta hluta júlígetraunarinnar aftur, réttan! Þá er bara að drífa sig í að svara spum- ingunum, skrifa niður lausnarorðið, og senda okkur allar þijár lausnimar. Og utanáskriftin er: Lausnarorð: ............................................ Nafn: .................................................. Heimili: ............................................... Sími: ............................................ Aldur: FRJÁLSAR / SPJÓTKAST Einar er áttundi í stigakeppninni EINAR Vilhjálmsson er í átt- unda sæti í stigakeppni spjót- kastara en hann hefur keppt á þremur stigamótum (Grand Prix) Alþjóðaf rjálsíþróttasam- bandsins. Einar þarf að halda þessu sæti að minnsta kosti tii þess að komast á úrslitakeppni stigamó- tanna, sem verður haldin í Brússel í september. Átta stigahæstu menn í hveiji grein öðlast sjálfkrafa keppnisrétt þar. Þeir hljóta pen- ingaverðlaun, 10 þúsund dollara eða 400.000 ísl. krónur, sá fyrsti, 8 þúsund sá næsti og þriðji maður hlýtur 6 þúsund dollara. Fjórði maður hlýtur 5 þúsund dollara og þannig koll af kolli niður í áttunda sæti, en fyrir það fást eittþúsund dollarar. Einar hefur keppt á aðeins þrem- ur stigamótum og er með 11 stig. Hægt er að keppa um stig á 10 mótum en meðaltal fimm beztu mótanna ræður. Sjö mótum er lokið og því aðeins þijú eftir. Einar kepp- ir á a.m.k. tveimur þeirra, í Rómaborg 22. júlí og Köln 16. ágúst. Verið er að athuga með þátt- töku fyrir á móti í London 14. ágúst. Sigurður Einarsson hefur keppt á tveimur mótum og er með 8 stig, sem dugar til 13. sætis. Sigurður hélt í gær til Banda- ríkjanna til æfinga næstu tvær vikurnar og keppir því ekki í Róm 22. júlí. Listinn yfir stigahæstu menn lítur út sem hér segir: Tom Petranoff, Bandaríkjunum...........36 Jan Zelezny, Tékkóslóvakíu.............26 Viktor Yevsyukov, Sovétríkjunum........25 Mike Hill, Bretlandi ..................18 Peter Borglund, Svíþjóð................16 Roald Bradstoek, Bretlandi.............14 Detlef Michel, A-Þýzkalandi............14 EINAR VILHJLMSSON......................11 Kazuhiro Mizoguchi, Japan...............9 Brian Crouser, Bandaríkjunum............9 Sergey Shatilo, Sovétríkjunum ..........9 Klaus Tafelmeier, V-Þýzkalandi..........9

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.