Morgunblaðið - 22.07.1987, Page 1

Morgunblaðið - 22.07.1987, Page 1
56 SÍÐUR 163. tbl. 75. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ráða Israels- menn yfir meðal- drægri eldflaug? Genf, Reuter. ÍSRAELAR hafa gert árang- ursríkar tilraunir með meðal- dræga eldflaug, sem getur borið kjarnaodd og náð til höfuðborga margra Arabaríkjanna. Her- fræðitímaritið International Defense Review skýrði frá þessu í gær. Tímaritið bar fyrir sig bandaríska embættismenn, sem ekki voru nafn- greindir, og sagði, að í maí sl. hefði Jeríkóflauginni verið skotið 820 km langan veg út á Miðjarðarhaf, helm- ingi lengra en í fyrri tilraun. „Bandarísku embættismennimir telja þessi tíðindi mjög mikilvæg því að þau sýna, að ísraelar eru eða verða brátt færir um að skjóta eld- flaugum búnum kjarnorkusprengj- um á höfuðborgir óvinveittra ríkja,“ sagði í tímaritinu. ísraelar hafa margítrekað, að þeir hafi ekki yfír kjamorkuvopnum að ráða en ýmsir kjamorkusérfræð- ingar telja, að þeir hafi allt, sem til smíðinnar þarf, og geti sett þau saman með stuttum fyrirvara. Bob Purlong, ritstjóri IDR, segist einnig hafa upplýsingar um, að Jeríkó- flaugin sé sérstaklega gerð til að flytja kjamorkusprengju. Borgimar Beirut, Damaskus, Bagdad, Amm- an og Kairó eru innan skotvíddar eldflaugarinnar. í IDR sagði, að til stæði að reyna að skjóta Jeríkó- flauginni 1.450 km leið. Reuter Olíuskipið Al-Rikkah, sem nú hefur verið umskírt og fengið nafhið Bridgeton, sést hér rétt áður en það lagði af stað undir bandariskum fána í för sína inn á Persaflóa undir bandarískri flotavernd. Á kort- inu má sjá þá leið, sem skipið þarf að sigla um Hormuz-sund. Spennan vex enn á Persaflóa: Persaflói Ómanflói Mikið tap hjá bandarískum stórbönkum New York, Reuter. SUMIR stærstu bankar Bandaríkjanna kunngerðu í gær mikið rekstrartap á öðr- um ársfjórðungi 1987. Þannig tapaði Citicorp 2.590 milljón- um dollara á þessu tímabili, sem er mesta tap, er banda- riskur banki hefur nokkru sinni orðið fyrir. Vanskilum á endurgreiðslum til bankanna frá löndum þriðja heimsins er aðallega kennt um. Bankers Tmst, sem er á meðal 10 stærstu viðskiptabanka Bandaríkjanna, tapaði 554 millj. dollara á þessum þremur mán- uðum. Bankar á vesturströnd- inni höfðu svipaða sögu að segja. Mimum hiklaust svara sérhverri árás Irana — segir Caspar Weinberger, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna Washington, París og Nikósíu, Reuter. BANDARÍSK herskip hófu í gær að fylgja eftir tveimur skipum frá Kuwait, sem sigla undir bandarískum fána inn á Persa- flóa. Verða skipin komin í skotfæri frá eldflaugastöðvum írana við Hormuz-sund innan skamms. Caspar Weinberger, varnarmálaráðherra, sagði að Bandaríkjamenn myndu „ekki hika við að svara sérhverri árás írana. Við teljum okkur hafa ráð til þess — bæði á sjó og i lofti — og við munum vissulega gripa til þessara ráða til verndar sigling- um um Persaflóa." Weinberger lét þessi ummælí falla eftir að íranir höfðu vísað á bug ályktun Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna, þar sem skorað var á írani og íraka að semja tafar- laust um vopnahlé í styrjöldinni milli þessara þjóða. í tilkynningu írönsku fréttastofunnar IRNA, sem hafði þó ekki að geyma formlegt Fórnarlamb Chernobylslyssins leysir frá skjóðuimi: Sakar flokksbroddana um ótrúlegt aðgerðaleysi Moskvu, lleuter. SOVÉZKUR slökkviðliðsstjóri, Leonid Telyatnikov, setn hlaut heiðursmerki fýrir fratnmi- stöðu sina i kjarnorkusiysinu Í Chernobyl, kveðst skammast sln fyrir aðgerðaleysi sumra flokksbrodda kommúnista- flokksins í Úkraínu, sem auk þess hafí misnotað vald sitt, eftir slysið. Kemur þetta fram í viðtali við hann i tímaritinu Yunost fyrir skömmu. Þar segir Telyatnikov, að þess- ir flokksbroddar hafi sýnt „ótrú- legt" aðgerðaleysi og haldið áfram að senda böm sín á orlofsheimili ríkisins á Krímskaga eftir slysið, en ekki þá, sem illa urðu úti í slys- inu, íbúum svæðisins umhverfis Chemobyi hefðí bara veríð sagt að haida áfram störfum BÍnum eitts.og ekkert hefði í skorízt. „Ég komst að þessu á sjúkra- húsinu," er haft eftir Telyatnikov, sem var áður slökkviliðsstjóri í Chemobyl. Hann veiktist illa og missti hárið eftir slysið vegna þeirrar geislunar, sem hann varð fyrir, en náði sér og var sæmdur heitinu „hetja Sovétríkjanna" fyr- ir frammistöðu sína. Hann var og heiðursgestur Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, í mót- tökuboði, sem hún hélt fyrir fórnarlömb ChemobyÍBÍysBins, er hún kom ( oþinbera heimsókn til Sovétríkjanna fyrir hokkru. „Á ejúkrahúsinu fékk ég vít- neskju um ótrúlega hlutí, sem gerðuet eftir kjamorkuBÍyBÍð, bvo að ég hef misst alla virðingu fyr- ir mörgum fyrrverandi virðingar- mönnum," er haft eftir Tely- atnikov. Þessir menn fyrirskipuðu m.a., að skólakennslu yrði haldið áfram, búðir hafðar opnar og jafn- vel brúðkaup látin fara fram, eins og ekkert hefði gerzt, þrátt fyrir slysið. „Ef ég hitti þessa menn nú á götum Kiev, þá heilsa ég þeim ekki.“ svar íransstjómar til Öryggisráðs- ins, sagði að það myndi engu breyta um viðbrögð írana í styijöldinni við íraka, þó að skip frá Kuwait eða öðrum ríkjum sigldu um Persaflóa undir bandarískum fána. „Við erum reiðubúnir til þess enn einu sinni að sýna stjórn Reagans forseta, að það mun ekki hafa ann- að en ósigur og niðurlægingu í för með sér fyrir hvern þann árásarað- ila, sem reynir að ögra byltingar- þjóð eins og okkar,“ sagði í tilkynningunni. „Ef írakar halda áfram loftárásum sínum á Persa- flóa, þá munu fánar einstakra landa engin áhrif hafa á gerðir okkar þar.“ írakar tóku aftur á móti vel í ályktun Öryggisráðsins um vopna- hlé. Sagði talsmaður íraksstjórnar í gær, að ályktuninni yrði væntan- lega svarað í dag eftir sérstakan fund i þjóðþingi landsins. Almennt er gert ráð fyrir, að írakar fallizt á ályktun Öryggisráðsins og séu reiðubúnir til að hætta hernaðar- aðgerðum en aðeins með því skil- yrði, að íranir geri það líka. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, sagði i uttiræðum i Neðrí mélstofu brezka þingsins i gær, að Bretar, sem þegar veíta elgin skiþum flotavernd á Persa- flða, myndu taka til athugunar eínstakar beiðnir hveija fyrír sig frá skipum annarra þjóða um að fá að sigla undir brezkum fána. Forsætis- ráðherrann gerði það hins vegar ljóst, að brezka stjórnin hygðist ekki hvetja útlend skip til þess að leggja fram slíkar beiðnir. Ambroise Guellee, siglingamála- ráðherra Frakklands, sagði í gær, að tveimur frönskum olíuskipum yrði veitt flotavemd er þau sigla inn á Persaflóa síðar í þessari viku. Bandaríkjastjóm hafnaði f gær tilmælum Sovétstjórnarinnar um sérstakar viðræður milli risaveld- anna um ástandið á Persaflóa. Sagði Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins, á fundi með frétta- mönnum, að Bandaríkjastjóm áliti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vera hinn rétta vettvang til slíkra viðræðna. Bretland: Búlgara vísað úr landi Lundúnum, Reuter. BRETAR skýrðu frá því i gær að þeir hefðu vfsað búigörskum sendiráðsstarfsmanni úr landi vegna „athæfis, sem ekki sam- rýmdist stöðu hans“. Þetta orðalag er oftast notað þegar um njósnir er að ræða. í Btuttri tiikynningu frá breska utanríkisréðuneytíhu sagði að tvan Pavlov Djambov, höfuðsmaður og sendiráðsritari hetmála f búlgarska sehdíréðihu, hefðí fengið íjórtán daga frest til þeBB að hafa SÍg úr landi. Utanríkisráðuneytið sagði einnig að Búlgarar gætu ekki rétt- lætt með neinum hætti að grípa til gagnaðgerða gegn breskum sendi- mönnum í Sófíu, höfuðborg Búlg- aríu. í búlgarska sendiráðinu í London vildu menn ekkert um brottvísun Djambovs segja og svöruðu þvi einu til að enginn af sautján manna starfsliði sendiráðsins væri við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.