Morgunblaðið - 22.07.1987, Síða 1
56 SÍÐUR
163. tbl. 75. árg.__________________________________MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ráða Israels-
menn yfir meðal-
drægri eldflaug?
Genf, Reuter.
ÍSRAELAR hafa gert árang-
ursríkar tilraunir með meðal-
dræga eldflaug, sem getur borið
kjarnaodd og náð til höfuðborga
margra Arabaríkjanna. Her-
fræðitímaritið International
Defense Review skýrði frá þessu
í gær.
Tímaritið bar fyrir sig bandaríska
embættismenn, sem ekki voru nafn-
greindir, og sagði, að í maí sl. hefði
Jeríkóflauginni verið skotið 820 km
langan veg út á Miðjarðarhaf, helm-
ingi lengra en í fyrri tilraun.
„Bandarísku embættismennimir
telja þessi tíðindi mjög mikilvæg
því að þau sýna, að ísraelar eru eða
verða brátt færir um að skjóta eld-
flaugum búnum kjarnorkusprengj-
um á höfuðborgir óvinveittra ríkja,“
sagði í tímaritinu.
ísraelar hafa margítrekað, að
þeir hafi ekki yfír kjamorkuvopnum
að ráða en ýmsir kjamorkusérfræð-
ingar telja, að þeir hafi allt, sem
til smíðinnar þarf, og geti sett þau
saman með stuttum fyrirvara. Bob
Purlong, ritstjóri IDR, segist einnig
hafa upplýsingar um, að Jeríkó-
flaugin sé sérstaklega gerð til að
flytja kjamorkusprengju. Borgimar
Beirut, Damaskus, Bagdad, Amm-
an og Kairó eru innan skotvíddar
eldflaugarinnar. í IDR sagði, að til
stæði að reyna að skjóta Jeríkó-
flauginni 1.450 km leið.
Reuter
Olíuskipið Al-Rikkah, sem nú hefur verið umskírt og fengið nafhið
Bridgeton, sést hér rétt áður en það lagði af stað undir bandariskum
fána í för sína inn á Persaflóa undir bandarískri flotavernd. Á kort-
inu má sjá þá leið, sem skipið þarf að sigla um Hormuz-sund.
Spennan vex enn á Persaflóa:
Persaflói
Ómanflói
Mikið tap hjá
bandarískum
stórbönkum
New York, Reuter.
SUMIR stærstu bankar
Bandaríkjanna kunngerðu í
gær mikið rekstrartap á öðr-
um ársfjórðungi 1987. Þannig
tapaði Citicorp 2.590 milljón-
um dollara á þessu tímabili,
sem er mesta tap, er banda-
riskur banki hefur nokkru
sinni orðið fyrir.
Vanskilum á endurgreiðslum
til bankanna frá löndum þriðja
heimsins er aðallega kennt um.
Bankers Tmst, sem er á meðal
10 stærstu viðskiptabanka
Bandaríkjanna, tapaði 554 millj.
dollara á þessum þremur mán-
uðum. Bankar á vesturströnd-
inni höfðu svipaða sögu að
segja.
Mimum hiklaust svara
sérhverri árás Irana
— segir Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna
Washington, París og Nikósíu, Reuter.
BANDARÍSK herskip hófu í gær
að fylgja eftir tveimur skipum
frá Kuwait, sem sigla undir
bandarískum fána inn á Persa-
flóa. Verða skipin komin í
skotfæri frá eldflaugastöðvum
írana við Hormuz-sund innan
skamms. Caspar Weinberger,
varnarmálaráðherra, sagði að
Bandaríkjamenn myndu „ekki
hika við að svara sérhverri árás
írana. Við teljum okkur hafa ráð
til þess — bæði á sjó og i lofti —
og við munum vissulega gripa til
þessara ráða til verndar sigling-
um um Persaflóa."
Weinberger lét þessi ummælí
falla eftir að íranir höfðu vísað á
bug ályktun Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna, þar sem skorað var
á írani og íraka að semja tafar-
laust um vopnahlé í styrjöldinni
milli þessara þjóða. í tilkynningu
írönsku fréttastofunnar IRNA, sem
hafði þó ekki að geyma formlegt
Fórnarlamb Chernobylslyssins leysir frá skjóðuimi:
Sakar flokksbroddana
um ótrúlegt aðgerðaleysi
Moskvu, lleuter.
SOVÉZKUR slökkviðliðsstjóri,
Leonid Telyatnikov, setn hlaut
heiðursmerki fýrir fratnmi-
stöðu sina i kjarnorkusiysinu Í
Chernobyl, kveðst skammast
sln fyrir aðgerðaleysi sumra
flokksbrodda kommúnista-
flokksins í Úkraínu, sem auk
þess hafí misnotað vald sitt,
eftir slysið. Kemur þetta fram
í viðtali við hann i tímaritinu
Yunost fyrir skömmu.
Þar segir Telyatnikov, að þess-
ir flokksbroddar hafi sýnt „ótrú-
legt" aðgerðaleysi og haldið áfram
að senda böm sín á orlofsheimili
ríkisins á Krímskaga eftir slysið,
en ekki þá, sem illa urðu úti í slys-
inu, íbúum svæðisins umhverfis
Chemobyi hefðí bara veríð sagt
að haida áfram störfum BÍnum
eitts.og ekkert hefði í skorízt.
„Ég komst að þessu á sjúkra-
húsinu," er haft eftir Telyatnikov,
sem var áður slökkviliðsstjóri í
Chemobyl. Hann veiktist illa og
missti hárið eftir slysið vegna
þeirrar geislunar, sem hann varð
fyrir, en náði sér og var sæmdur
heitinu „hetja Sovétríkjanna" fyr-
ir frammistöðu sína. Hann var og
heiðursgestur Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, í mót-
tökuboði, sem hún hélt fyrir
fórnarlömb ChemobyÍBÍysBins, er
hún kom ( oþinbera heimsókn til
Sovétríkjanna fyrir hokkru.
„Á ejúkrahúsinu fékk ég vít-
neskju um ótrúlega hlutí, sem
gerðuet eftir kjamorkuBÍyBÍð, bvo
að ég hef misst alla virðingu fyr-
ir mörgum fyrrverandi virðingar-
mönnum," er haft eftir Tely-
atnikov. Þessir menn fyrirskipuðu
m.a., að skólakennslu yrði haldið
áfram, búðir hafðar opnar og jafn-
vel brúðkaup látin fara fram, eins
og ekkert hefði gerzt, þrátt fyrir
slysið. „Ef ég hitti þessa menn
nú á götum Kiev, þá heilsa ég
þeim ekki.“
svar íransstjómar til Öryggisráðs-
ins, sagði að það myndi engu breyta
um viðbrögð írana í styijöldinni við
íraka, þó að skip frá Kuwait eða
öðrum ríkjum sigldu um Persaflóa
undir bandarískum fána.
„Við erum reiðubúnir til þess enn
einu sinni að sýna stjórn Reagans
forseta, að það mun ekki hafa ann-
að en ósigur og niðurlægingu í för
með sér fyrir hvern þann árásarað-
ila, sem reynir að ögra byltingar-
þjóð eins og okkar,“ sagði í
tilkynningunni. „Ef írakar halda
áfram loftárásum sínum á Persa-
flóa, þá munu fánar einstakra landa
engin áhrif hafa á gerðir okkar
þar.“
írakar tóku aftur á móti vel í
ályktun Öryggisráðsins um vopna-
hlé. Sagði talsmaður íraksstjórnar
í gær, að ályktuninni yrði væntan-
lega svarað í dag eftir sérstakan
fund i þjóðþingi landsins. Almennt
er gert ráð fyrir, að írakar fallizt
á ályktun Öryggisráðsins og séu
reiðubúnir til að hætta hernaðar-
aðgerðum en aðeins með því skil-
yrði, að íranir geri það líka.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði i uttiræðum
i Neðrí mélstofu brezka þingsins i
gær, að Bretar, sem þegar veíta
elgin skiþum flotavernd á Persa-
flða, myndu taka til athugunar
eínstakar beiðnir hveija fyrír sig frá
skipum annarra þjóða um að fá að
sigla undir brezkum fána. Forsætis-
ráðherrann gerði það hins vegar
ljóst, að brezka stjórnin hygðist
ekki hvetja útlend skip til þess að
leggja fram slíkar beiðnir.
Ambroise Guellee, siglingamála-
ráðherra Frakklands, sagði í gær,
að tveimur frönskum olíuskipum
yrði veitt flotavemd er þau sigla inn
á Persaflóa síðar í þessari viku.
Bandaríkjastjóm hafnaði f gær
tilmælum Sovétstjórnarinnar um
sérstakar viðræður milli risaveld-
anna um ástandið á Persaflóa.
Sagði Marlin Fitzwater, talsmaður
Hvíta hússins, á fundi með frétta-
mönnum, að Bandaríkjastjóm áliti
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
vera hinn rétta vettvang til slíkra
viðræðna.
Bretland:
Búlgara
vísað
úr landi
Lundúnum, Reuter.
BRETAR skýrðu frá því i gær
að þeir hefðu vfsað búigörskum
sendiráðsstarfsmanni úr landi
vegna „athæfis, sem ekki sam-
rýmdist stöðu hans“. Þetta
orðalag er oftast notað þegar um
njósnir er að ræða.
í Btuttri tiikynningu frá breska
utanríkisréðuneytíhu sagði að tvan
Pavlov Djambov, höfuðsmaður og
sendiráðsritari hetmála f búlgarska
sehdíréðihu, hefðí fengið íjórtán
daga frest til þeBB að hafa SÍg úr
landi. Utanríkisráðuneytið sagði
einnig að Búlgarar gætu ekki rétt-
lætt með neinum hætti að grípa til
gagnaðgerða gegn breskum sendi-
mönnum í Sófíu, höfuðborg Búlg-
aríu.
í búlgarska sendiráðinu í London
vildu menn ekkert um brottvísun
Djambovs segja og svöruðu þvi einu
til að enginn af sautján manna
starfsliði sendiráðsins væri við.