Morgunblaðið - 22.07.1987, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.07.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987 19 Vala Ásgeirsdóttir Thoroddsen: Stjórnmál hafa verið ríkari þáttur í lífi Völu Ásgeirsdóttur Thorodd- sen en flestra annarra en þeirra, sem beinan þátt hafa tekið í stjórnmálum. í athyglisverðu viðtali fjallar hún meðal annars um hlutverk eiginkonu stjórnamálamanns og þau áhrif, sem störf stjórn- málamanna hafa á fjölskyldur þeirra. Vala kemur víðar við í viðtalinu. Fjallar um æsku sína og uppvöxt í foreldrahúsum, skólagöngu, fyrstu kynni þeirra Gunnars, forsetakosningarnar 1952 og 1968 og ýmis- legt sem þeim fylgdi. Þegar rætt er um framboð Gunnars Thoroddsen til embættis forseta 1968, segir hún meðal annars: „Þetta var mjög erfið barátta og mikil illska sem kom fram. Ótrúlegar sögusagnir gengu. Milli Gunnars og Kristjáns kom þó aldrei upp neinn ágreining- ur og samskipti þeirra voru alla tíð með miklum ágætum. Illskan og heiftin kom frá fólkinu í kring.“ Bg er líka að selja norðurljós: Steinunn Sigurðardóttir hitti að máli Ágúst Guðmundsson leik- stjóra á heimili hans í Lundúnum. í viðtalinu ræða þau um störf Ágústs í heimsborginni, þar sem hann hefur búið og starfað undan- farin ár. Nú í sumar er Ágúst að hefjast handa við stórt verkefni, sem byggt er á Nonnabókunum, en tökur eru um það bil að hefjast í Flatey á Breiðafirði. Ágúst segir meðal annars í viðtalinu: „Mér finnst ég stundum i svipuðum sporum og Einar Benediktsson. Ég er líka á minn hátt að selja norðurljós.“ Lifandi blað Nýtt Líf Alltaf ferskt og lifandi .....~ Móðir um fertugt: fullt af athyglisverðu efni Hvaða gjöf hefur forsjónin gefið manninum sem honum er jafn kær og börnin?" Það var mælskusnillingurinn Cicero sem mælti þessi orð. Þó að um það bil tvö þúsund ár séu liðin síðan er ljóst, að orð hans eru enn í fullu gildi. Nýtt Líf hitti að máli fjórar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa átt börn um fertugt, þær Kristínu Jóhannsdóttur leikstjóra, dr. Ragnheiði Briem, Sigríði Haga- lín leikkonu og Stefaníu Borg. Þær ræða reynslu sína af því að eignast börn svona seint, þrýsting þjóðfélagsins á konur sem ekki eiga börn, muninn á að eignast börn um tvítugt og svo um fertugt og ýmislegt fleira. Jafnframt leitaði Nýtt Líf álits Þóru Fischer, sem er sérfræðing- ur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp á hinu svonefnda seinna barneignaskeiði kvenna. í blaðinu er meðal annars þetta efni: Tiska: Nýjar fyrirsætur hasla sér völl. Nýtt Líf sýnir sumartísk- una frá Akureyri. Matur: Nýtt Líf setti upp grillveislu í tilefni sumarsins. Greinar: Læknirinn í sjálfum þér — Getum við læknað okkur sjálf? Cellulites — Fitan sem minnir á appelsíubörk. Hvað er til ráða? Hugarreik — Pétur Gunnarsson rithöfundur lætur hugann reika. Bókaþjóð í sumarskapi — Hvaða bækur ættum við að lesa í sumar? Isabella Rosselini og Ingrid Bergman — Er dóttirin að feta í fótspor móðurinnar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.