Morgunblaðið - 22.07.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Siglufjörður
Vantar blaðburðarfólk í afleysingar.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 71489
fÉtaOgtniHfifrtfe
Hellissandur
Umboðsmaður óskast.
Upplýsingar hjá umboðsmanni, sími 93-6764
eða afgreiðslu Morgunblaðsins, sími 83033.
Keflavík
Blaðburðarfólk óskast.
Upplýsingar í síma 13463.
Aðstoð
óskast á tannlæknastofu í miðborginni.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. merktar:
„Framtíðarstarf — 4063“.
Starfsfólk vantar
í Nýjabæ
Okkur vantar röska starfskrafta til ýmiss
konar starfa í allar deildir Nýjabæjar. Bæði
er um að ræða heils- og hálfsdags stöður.
Einnig vantar matreiðslumeistara í eldhús
Nýjabæjar.
Upplýsingar veitir verslunarstjóri.
Morgunblaðið
óskar eftir blaðburðarfólki í sumarafleysing-
ar í stuttan tíma víðs vegar í Reykjavík og
sérstaklega f eldri hverfum Kópavogs.
Sjáið nánar auglýsingu annars staðar i
blaðinu.
Tilvalin morgunganga fyrir eldra fólk !
Upplýsingar í símum 35408 og 83033.
Vélamaður/bílstjóri
Vanur vélamaður og meiraprófsbílstjóri ósk-
ast. Mikil vinna.
Loftorka hf.,
sími50877.
Tannlæknar
Tannlæknir óskast til starfa í Ólafsfirði sem
fyrst. Þar er laus til leigu góð aðstaða og
verkefnin eru næg.
Umsóknir skal senda til bæjarskrifstofunnar
Ólafsvegi 4, Ólafsfirði fyrir 15. ágúst 1987.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
62151.
Óiafsfirði, 14.júí 1987.
Húsasmiðir
Óskum eftir að ráða húsa- og húsgagna-
smiði. Um framtíðarstörf er að ræða. Getum
einnig bætt við okkur nemum í húsasmíði.
L/AVJ
AÐALGEIR FINNSSON HF
BYGGINGAVERKTAKI & TRÉSMIÐJA
FURUVÖLLUM 5 • P.O. BOX 209 ■ 602 AKUREYRI • ICELAND
SlMAR. 21332 & 21552 • NAFNNÚMER: 0029-0718
REYKJMJÍKURBORG
Acuitevi Sfádun
Starfsmaður óskast til eldhússtarfa á Drop-
laugarstöðum, vistheimili aldraðra. Um er
að ræða 50% starf.
Upplýsingar gefur forstöðumaður mötuneyt-
is í síma 25811.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
i RIKISSPITALAR
LAUSAR STÖÐUR
Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, með-
ferðafulltrúar svo og starfsfólk í eldhús og
ræstingu óskast til starfa nú þegar á barna-
og unglingageðdeildina við Dalbraut.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, sími 84611.
Ritari óskast til starfa í birgðastöð ríkisspítala.
Upplýsingar gefur forstöðumaður birgða-
stöðvar, sími 671362.
Kópavogshæli
Deildaþroskaþjálfar óskast til starfa á vinnu-
stofum Kópavogshælis og á deildum.
Sjúkraliðar óskast til starfa við Kópavogs-
hæli bæði í afleysingar og til frambúðar.
Starfsfólk óskast nú þegar til sumarafleys-
inga og til frambúðar til starfa á deildum
Kópavogshælis.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir fram-
kvæmdastjóri eða yfirþroskaþjálfi í síma
41500.
LANDSPÍTALINN
Eftirtalið starfsfólk óskast til starfa á bráða-
móttökudeild á Landspítalanum, sem fyrir-
hugað er að opna í september nk.
Hjúkrunardeildarstjóra,
hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða.
Deildin verður opin allan sólarhringinn alla
daga vikunnar. Undirbúningsnámskeið verð-
ur haldið fyrir starfsfólk áður en deildin
opnar.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, sími 29000-485 eða 484.
Reykjavík, 22. júlí 1987.
Viljum ráða fólk til starfa í veitingasal okkar.
Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er
á vöktum. Við leitum að hressu og duglegu
fólki til starfa í samstilltum hópi þjónustuliðs
á stað með framtíðina fyrir sér.
Áhugasamir hafi samband við veitingastjóra
á staðnum milli kl. 17.00 og 19.00 í dag.
Reykjavík, 22.júlí 1987.
Hótel Borg.
Gestamóttaka
Hótel Lind óskar að ráða starfsfólk í gesta-
móttöku. Vaktavinna.
Upplýsingar veittar á staðnum milli kl. 13.00-
16.00 næstu daga.
Hótel Lind,
Rauðarárstíg 18.
Félags-
ráðgjafi
Staða félagsráðgjafa hjá félaginu er laus til
umsóknar frá 1. október nk.
Upplýsingar veitir Lára Björnsdóttir félags-
ráðgjafi í síma félagsins 15941 og á kvöldin
í síma 40647.
Styrktarfélag vangefinna.
Hótel Skarð
— framreiðslunám
Nemar óskast á námssamning í framreiðslu.
Skilyrði: Háttprýði, stundvísi og reglusemi.
Nánari upplýsingará staðnum næstu daga.
»hótel 0
OÐINSVE
BRAUÐBÆR
Oöinstorgi
GILDIHF
Smurbrauð
Óskum eftir að ráða vanar smurbrauðs-
dömur til starfa sem fyrst. Um er að ræða
vaktavinnu bæði hluta- og heilsdagsstörf.
Nánari upplýsingar um launakjör og vinnu-
tíma gefur starfsmannastjóri frá kl. 9.00-
13.00 á staðnum og í síma 29900-309.
Giidihf.
Sölumaður —
sjávarútvegur
Fyrirtæki, sem flytur inn og selur vörur til
sjávarútvegs og fiskvinnslu, óskar að ráða
sölumann.
Starfið er:
- Fjölbreytt en krefjandi.
- Vel launað ef árangur er góður.
Við leitum að manni sem:
- Þekkir til í sjávarútvegi.
- Er áhugasamur og á gott með að um-
gangast fólk.
- Getur unnið sjálfstætt.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. eigi síðar en
27. júlí merktar: „Sölumaður — 4720".
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál
og öllum svarað.
t ****■%.■*■*&
RMMMmMIMH
rumii
MUMMtaMftMOMnK