Morgunblaðið - 30.07.1987, Page 1

Morgunblaðið - 30.07.1987, Page 1
88 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 169. tbl. 75. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðains Frönsk flotadeild til Persaflóa í dag París, Washington, Gíbraltar, Reuter. FLOTI fjögnrra franskra her- skipa lætur úr höfn í dag um klukkan tíu að íslenskum tíma og er honum ætlað að vera til reiðu á Persaflóa ef í odda skerst. Flotadeildin samanstendur af flugmóðurskipinu Clemenceau og þremur fylgdarskipum þess, tveim- ur tundurspillum og birgðaskipi. A skipunum eru 3.000 menn. Talið er að það muni taka skipin um hálfan mánuð að sigla til Persaflóa. Á Indlandshafi hafa Frakkar þrjú herskip fyrir. Jaques Chirac, forsætisráðherra Frakka, sagði í gær: „Leiðangur til Indlandshafs til þess að vemda franska hagsmuni er nauðsynlegur . . . við höfum ekki árás í huga, en við krefjumst virðingar." Með þessum orðum ítrekaði Chirac þá skoðun margra Frakka, að írönum skuli ekki leyfast yfirgangur, þrátt fyrir stjómmálasambandsslit ríkjanna. Bandaríkjamenn ákváðu í gær að styrkja flota sinn á flóanum með átta stórum þyrlum til tundurdufla- leitar. Þyrlumar verða fluttar til Perú: Allir bankar þjóðnýttir Lima, Reuter. ALAN Garcia, forseti Perú, hóf í gær þriðja ár sitt á valdastóli með því að leggja til að allir bankar og lánastofnanir i landinu verði þjóðnýtt. Garcia, sem þykir vinstri sinnaður, sagði að til þessara aðgerða væri gripið gegn bönkunum vegna þess að þeir hefðu mismunað fólki í útlánum og væm þar að auki valdir að fjár- magnsflótta út úr landinu. Hann sagði að þegar bankar opnuðu aftur á morgun yrðu þeir undir „hand- leiðslu" ríkisins og þannig yrði málum háttað þar til þingið hefði samþykkt tillögur hans. Ekki var tekið fram hvort útibú sex erlendra banka yrðu einnig sett undir miðstýringu ríkisins, og í gærkvöldi efuðu menn að svo yrði. Bandarískir bankamenn segja að slíkt myndi einungis einangra landið enn frekar frá heimsmark- aðnum en þegar er orðið. Á þeim vettvangi er nú þegar litið á landið sem svarta sauðinn, enda hafa Perúmenn neitað að greiða skuldir sínar við erlenda banka, sem nema um 560 milljörð- um króna. Fyrir tveimur árum tók Carcia forseti upp þá stefnu að láta aðeins 10% innflutningstekna renna til greiðslu skulda. Perústjóm hefur einnig snúið baki við Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum, safnað ógreiddum skuldum og mun ekki fá ný lán. Sjá einnig „Deilur um einstök mál...“ á síðu 28. flóans á þyrluskipinu Guadalcanal, sem er statt á Indlandshafi, og búist er við að þær verði komnar í gagnið við tundurduflaleit í byijun næstu viku. í gær tilkynnti skipaskráningin á Gíbraltar að vöruflutningaskipið Modhi frá Kuwait myndi væntan- lega fá leyfi á morgun til þess að sigla undir fána Gíbraltar. Þar sem Gíbraltar er bresk nýlenda mun skipið njóta vemdar breska flotans á Persaflóa. Bresk skip fá þó ekki samfylgd herskipa allan tímann sem þau em á flóanum eins og skip Kuwait, sem sigla undir fána Bandaríkjanna. Sjá einnig „Ráðumst á stöðvar Bandarikjamanna . . .“ á síðu 28. Reuter Sri Lanka: Gandhi gengur á undan Jayewardene á leið til forsetahallarinnar i Colombo, þar sem samkomulagið var undirritað. Fyrir miðju er kona Gandliis, Gonya, en frú Elina Jayawardene stendur að baki manns sins. Sáttargiörð undirrituð Fimmtán falla í óeirðum Colombo, Reuter. RAJIV Gandhi, forsætisráð- herra Indlands, kom í gær til Srí Lanka og undirrítaði ásamt Juniusi Jayewardene, forseta eyríkisins, friðarsamning sem binda á enda á ófríðinn milli tamíla og sinhala á eyjunni. Óánægju gætti með samkomu- lagið meðal fólks af báðum þjóðflokkum, og féllu fimmtán manns í óeirðum víðs vegar um eyjuna í gær. Útgöngubann var á Sri Lanka í allan gærdag, en þrátt fyrir það fóru tugir þúsunda í mótmæla- göngur í bæjum og þorpum. Víða var kveikt í lögreglustöðvum og opinberum byggingum, og í höf- uðborginni Colombo loguðu miklir eldar, að sögn sjónarvotta. Lög- reglan fékk skipanir um að hika ekki við að hleypa af skotum og Reuter Andi brautryðjendanna MARGRÉT Thatcher, forsætisráðherra Breta og Francois Mitt- errand Frakklandsforseti sjást hér í Elysée-höll í París, þar sem þau undirrituðu í gær staðfestingu á samningi ríkjanna um gerð jarðgangna undir Ermarsund. Ef jarðgangnagerðin stenst áætlun, verða járnbrautargöngin tilbúin í maí 1993, en gerð þeirra hefur verið til umræðu í nærri tvær aldir. Thatcher sagði i ræðu sinni í gær: „Of oft hefur andi brautryðjenda verið kæfður í skriffinnsku, þröngsýni eða einfaidlega ótta við hið óþekkta. Ég vona að í þetta sinn getum við hafið okkur yfir hik fortíðarinnar.“ táragas var notað til að dreifa mannijöldanum. Samkvæmt samkomulaginu, sem Gandhi og Jayewardene und- irrituðu, gengur vopnahlé milli skæruliða tamíla og stjómarhers- ins í gildi á morgun. Skæruliðar eiga að gefast upp og afvopnast innan þriggja sólarhringa undir eftirliti innlendra og indverskra starfsmanna Rauða krossins. í staðinn munu stjómarhermenn hörfa til stöðva sinna, og tamflar í norður- og austurhéruðum lands- ins munu fá takmarkaða sjálf- stjóm. í austurhéruðunum verða síðar greidd atkvæði um framtíð svæðisins, þar sem múslimar og sinhalir em þar einnig fjölmennir, þótt tamflar telji landið sitt. Helstu skæruliðasamtök tamfla, „Tígrarnir“, hafa enn ekki samþykkt samkomulagið, en á fréttamannafundi í gær sagðist Gandhi hafa rætt við leiðtoga þeirra, Velupillai Prabhakaran, í Delhi í fyrradag og væri vongóður um samþykki hans. Skæruliðafor- inginn hefur áhyggjur af öryggi manna sinna, leggi þeir niður vopn. Hann mun eiga annan fund með Gandhi í dag. Fjölmargir sinhalir era óán- ægðir með samkomulagið og telja að eftirgjöfin við tamfla sé alltof mikil. Stjóm Jayewardenes klofn- aði vegna málsins og forsætisráð- herrann, Ranasinghe Premadasa, og landbúnaðarráðherrann virtu heimsókn Gandhis að vettugi. Indveijar lofa að hjálpa til við tryggingu friðar á Sri Lanka með því að senda stjóminni friðar- gæsluhersveitir ef hún óskar þess. Afvopnunarviðræðurnar í Genf: Lítil hrifning yf- ir nýjum tillögum Genf, Washingfton, Reuter. SOVÉTMENN lögðu í gær fram uppkast að algjöru banni við geimvopnum á fundi samninga- nefnda risaveldanna í Genf. Þeir boðuðu einnig nýjar tillögur um fækkun langdrægra kjarnorku- eldflauga eftir fáeina daga, en tóku fram að geimvopnabann væri afdráttarlaust skilyrði fyrir samkomulagi um slíkt. Reagan og Gorbachev vora nærri samkomulagi um fækkun lang- drægra flauga á Reykjavíkurfund- inum en það strandaði á fastheldni Reagans við geimvamaáætlun sína. í gær sagði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, Charles Redman, að ekkert væri nýtt í til- lögum Sovétmanna og að ekki kæmi til greina að hætta við geim- vamaáætlunina. Sovétmenn létu heldur ekki í ljós mikla hrifningu yfír tillögum, sem Bandaríkjamenn lögðu fram í Genf í gær um fækkun meðaldrægra eld- flauga. Obukhov, varaformaður sovésku samninganefndarinnar í Genf, sagði á fréttamannafundi: „Ég les í blöðunum um „nýjar tillög- ur Bandaríkjanna". Hvaða nýju tillögur? í þeim er orðalagið svo óljóst, að jafnvel með smásjá væri engar breytingar hægt að fínna." Reagan forseti lét svo ummælt í fyrrakvöld að í tillögunum væri komið til móts við kröfur Sovét- manna, til dæmis um að eldflaugum af Pershing 2-gerð yrði ekki breytt í annars konar vopn, heldur eytt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.