Morgunblaðið - 06.08.1987, Blaðsíða 7
T86I T8U0Á .3 HUOAaUTMMIU .OiaAJSVtUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987
r)
7
22:10
ELDURí
ÆÐUM
(Burning bed). Myndin fjallar
um konu sem varð fyrirþeirri
ógæfu að giftast manni sem
barði hana. Henni virtust allar
bjargir bannaðar börnin henn-
arþrjú bundu hana heimilinu
og hvorki foreldrar hennar né
yfirvöld vildu skipta séraferj-
um milli hjóna.
Föatudagur
CHANCE !N
A MILLION
(Einn á móti milljón). Breskur
gamanþáttur með Simon Callow
og Brendu Blethyn íaðalhlut-
verkum
mimiinn
Laugardagur
_ TAKKFYRIR,
.22:40l UNQFRÚ JONE8
(Thank you Miss Jones). Susan
Jones er ritari hjá stóru trygg-
inga-
fyrirtæki. Þegarhún kemstá
snoðir um að verið erað hafa
fé út úr fyrirtækinu, neita allir
að trúa henni.
STÖÐ-2
u
p°
Auglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lyklllnn faard
þúhjá
Helmlllstaskjunn
<8>
Heimilistæki hf
S:62 12 15
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Endurbætur og auk-
ín veitingaaðstaða
Skrifstofuaðstaða fyrir stofn-
anir og fyrirtæki verður tekin í
notkun í flugstöð Leifs Eiríks-
sonar nú eftir helgina. Ennfrem-
ur verður veitingaaðstaða aukin
og opnaður gangur milli komu-
álmu og brottfararálmu.
Skrifstofuálma á annarri hæð
flugstöðvarinnar verður afhent nú
um helgina, en gert er ráð fýrir að
starfsemi hefjist þar í næstu viku.
Ásgeir Einarsson skrifstofustjóri
Flugmálastjómar sagði í samtali við
Morgunblaðið að í þessari álmu
yrðu meðal annars skrifstofur flug-
vallarstjómar, Flugleiða, frihafnar-
innar og grænlenska flugfélagsins
Grönlandsfly. „Ennfremur verður
þar skrifstofa fyrir íslenskan mark-
að, tollgæsluna, lögregluna og
pósthúsið," sagði Ásgeir. Þá verður
í sömu álmu fjölnota herbergi fyrir
fyrirtæki í byggingunni, sem nota
má fyrir fundi, kennslu og fleira.
Álman fyrir farþega sem fara
úr landi hefur hingað til verið að-
skilin álmunni fyrir komufarþega,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
en um helgina verður opnaður
gangur þama á milli. Ásgeir Ein-
arsson sagði að þar yrði veitingaað-
staða í gróðurskála sem til að byija
með yrði opinn frá kl. 11 til kl. 23.
Á sama gangi verður pósthús og
banki og ennfremur geymsluað-
staða tollgæslunnar og aðstaða
Flugleiða fyrir „tapað/fundið". Ás-
geir sagðist gera ráð fyrir að
starfsemin á þessum stöðum hæfíst
í næstu viku.
Barinn á annarri hæð í biðsalnum
verður óbreyttur um sinn eða þar
til lokið verður við að ganga að
fullu frá þeirri veitingaaðstöðu sem
verður til frambúðar í salnunj. Aðal-
eldhúsi byggingarinnar er enn
ólokið, en það verður væntanlega
tilbúið í lok september. Þá er unnið
að því að fullgera biðsal fyrir gesti,
þar sem verður útsýni yfír flugvöll-
inn og veitingabúð. Fríhafnarversl-
unin fyrir komufarþega verður færð
á jarðhæð í tengslum við tollaf-
greiðslusalinn, en hún er nú til
bráðabirgða á annarri hæð, í bið-
salnum.
Auk þess sem hér hefur verið
getið er unnið að því að ljúka við
hvíldaraðstöðu fyrir tollverði og
starfsfólk fríhafnarinnar, sem verð-
ur á þakhæð hússins. Einnig verður
þar aðstaða fyrir sérsveit lögregl-
unnar. í kjallara flugstöðvarbygg-
ingarinnar verður æfíngaaðstaða
fyrir sérsveit lögreglunnar, hrein-
lætisaðstaða, tölvuherbergi, spenni-
stöð, símaherbergi og viðgerðarað-
staða. Ásgeir Einarsson sagði að
erfítt væri að segja fyrir um hvenær
flugstöðin yrði endanlega tilbúin en
vonir stæðu til að það yrði í haust.
steinsnar með Flugleiðum
Vissirðu að Flugleiðir fljúga allt að þrisvar í viku til Færeyja?
Þessar sérstæðu eyjar er einkar forvitnilegt að sækja heim, til að kynnast grönnum okkar,
menningu þeirra og gestrisni, svo og náttúru landsins.
S Þér býðst flugið: ,
REYKJAVIK-FÆREYJAR-REYKJAVIK
PEX kr. 11.530
Þú átt einnig möguleika á hringflugi, með viðkomu á nokkrum stöðum:
REYKJAVÍK-FÆREYJAR-GLASGOW-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 18240.
REYKJAVÍK-FÆREYJAR-BERGEN-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 19.360.
REYKJAVÍK-GLASGOW-FÆREYJAR-BERGEN-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 25.730.
*
3
FLUOLEIDIR
___fyrir þig_
FLUGLEIÐIR
Taktu þig til, Færeyjar eru skammt undan.
Miðað er við háannatíma, júní júlí, ágúst.
Allar nánari upplýsingcir færðu á söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25100