Morgunblaðið - 06.08.1987, Page 56

Morgunblaðið - 06.08.1987, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987 VETRAROLYMPIULEIKARNIR I CALGARY 1988 Tákn Vetrarólympíuleikanna Bangsarnir Hidy og Howdy verða tákn Ólympíuleikanna í Calgaiy á næsta ári. Þetta mun verða í fyrsta skipti sem vemdardýr Ólympíuleika eru bæði karl- og kvenkyns. f baksýn sést Saddledome en þar verður keppt í listdansi á skautum og íshoggí. Calgary Þarfara vetrarólympíuleikarnir á næsta ári fram A „Olympic Park“ svæðinu verður keppt í skíðastökki, bobsleðakeppni og skíða- fimi. Á XI. ólympfuþinginu, sem haldið var í Baden Baden í Vestur-Þýskalandi í september 1981, ákvaA AlþjóAaóly mpíu- nefndin aA XV. Vetrarólympíu- leikarnir 1988 skyldu haldnir í Calgary í Kanada. í apríl 1982 skipaAi AlþjóAaólympíunefndin nefnd, OCO '88, sem átti aA sjá um skipulagningu og fram- kvœmd leikanna. í febrúar 1983 staAfesti síAan borgar- stjórn Calgary óbyrgð sína á Vetrarólympfuleikunum 1988 ásamt kanadíska ólympíusam- bandinu meA þvf aA fela OCO '88 fullt umboA tll framkvæmda fyrir þeirra hönd. Calgary er næstfjölmennasta borg Alberta-fylkis, með rúm- lega 640.000 íbúa. Hún er í niður- hluta fylkisins rúmlega 200 km frá landamærum Bandaríkjanna og er um 100 km frá rót- um Klettafjallanna, sem blasa við í vestri. Staðsetning borgarinnar í 1100 metra hæð inni í landi gefur mörgum þá hugmynd að þar séu mjög kaldir vetur vegna „ríkjandi" meginlandsloftslags. Svo er þó ekki. Mjög algengt er að hlýir og þurrir Karl Guðlaugsson skrifar frá Calgary vindar blási niður austurhlíðar Klettafjallanna sem geta breytt hit- anum um og yfír 33°C. Þessir hlýju vindar sem við þekkjum undir nafn- inu hnúkaþeyr valda því að meðal- hiti vetrarmánaðanna er tæplega -9°C. Sumrin eru mjög hlý og ekki er óalgengt að hitinn fari yfír 30 °C. Um 1970 voru íbúar Calgary aðeins rúmlega 385.000 en á áratugnum 1970—1980 voru miklir uppgangs- tímar þar. Aukin olíuvinnsla samfara hækkandi olíuverði bætti efnahagslífíð, framboð á atvinnu jókst og fólki fjölgaði. Byggingar spruttu upp og á þeim tíma byggð- ust skýjakljúfarnir, sem eru æðsta einkenni miðborgarinnar og háskól- inn í Calgary, frá 1960—1975, en þar stunda um 20.000 nemendur nám. íslendingaklúbbur íCalgary Flest fólk hefur atvinnu við olíuiðn- aðinn og atvinnugreinar tengdar honum. Einnig starfa mjög margir við flutningsþjónustu. Bæði þjóð- vegurinn og jámbrautin milli austurs og vesturs liggja í gegn um. borgina og flughöfnin í Calgary er ein sú stærsta í Kanada með yfír 800 innanlandsflug og 150 milli- landaflug í hverri viku. Calgary er í dag miðstöð olíu- og gasvinnslu í Vestur-Kanada og eru m.a. aðal- stöðvar Kanadíska ríkisólíufélags- ins þar. í Calgary er starfræktur íslend- ingaklúbbur. Meðlimir í klúbbnum eru um 80 talsins en talið er að yfír 1500 manns í Calgary eigi ættir sínar að rekja til íslands. „Canada Olymplc Park“ Undirbúningur fyrir Vetra- rólympíuleikana hefur staðið í nokkur ár, og eru allar framkvæmd- ir vegna þeirra á undan áætlun. Núna er lokið byggingu stökkpalla og bobsleðabrautar, sem eru á svæði, sem hefur hlotið nafnið „Canada Olympic Park“. Þar verður keppt í skíðastökki, bobsleðakeppni og skíðafimi. Þetta íþróttasvæði er nánast í hjarta borgarinnar en það tekur aðeins um 15 mínútur að keyra þangað frá miðborginni. Skíðastökkvarar, sem hafa stokkið fram af þessum nýju glæsilegu stökkpöllum, hafa átt í nokkrum vandræðum, því einhverra hluta vegna var ekki tekið tillit til vind- átta þegar stökkpallamir voru byggðir. Algengustu vindáttir við stökkpallana eru þvert á stökk- stefnuna þannig að svifíð gæti orðið vandasamt og hættulegt fyrir kepp- endur í ákveðnum vindáttum. Enginn snjór var á þess skíðasvæði frá því í desember en til staðar eru snjógerðarvélar af fullkomnustu gerð, þannig að ekki ættu að verða vandræði þótt snjóleysi verði í fe- brúar á næsta ári. ÓlympíuþorplA Byggingu glæsilegrar skauta- hlaupahallar á svæði háskólans í Calgary lauk í apríl. Þessi skauta- höll er hin fyrsta sinnar tegundar með 400 metra keppnisbrautum fyrir skautahlaup. Þessi skautahöll, sem tekur 4000 manns í sæti, mun eingöngu verða notuð fyrir skauta- hlaup á Vetrarólympíuleikunum, en í framtíðinni er ætlunin að nota hana einnig fyrir íshokkí og listdans á skautum. Það verður stutt fyrir skautahlaup- arana að fara til keppni, því aðal ólympíuþorpið verður á svæði há-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.