Morgunblaðið - 08.08.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.08.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987 39 Allt er hégómi ★ ★ ★ ★ Margir þeirra sem áður töldust hippar vilja nú eflaust lítið kannast við þær yfirlýsingar sem þeir gáfu á þeim árum og þann lífsstíl sem þeir tileinkuðu sér þá. Þó eru þeir alltaf til sem sjá í hugsjónum hippanna eitt- hvað sem þeir telja væri betur meiri hluti í lifi nútímamannsins. Einn þeirra er bandaríski tónlistarmaðurinn Kevin Hunter, sem lifir sínu lífi í samræmi við það sem hann telur hippana hafa gert. Kevin hóf tónlistarferil sinn sem pönkari en söðlaði um. Hann á sér engan fastan samastað og gefur lítið fyrir veraldleg gæði. Hermir sagan að hann gefi sig þá fyrst fram við út- gefendur þegar hann langar að taka up plötu. Þá er hóað saman hljómsveit undir nafn- inu Wire Train. Wire Train á sér langan aðdraganda og tón- list sveitarinnar er blendingur úr mörgum áttum. Alltaf hún melódísk og áhugaverð og á nýjustu plötu sveitarinnar, Ten Women, eru mörg lög sem grípa hlustanda við fyrstu hlustun. Líklegt verður að telja að Ten Women verði platan sem tryggi Kevin Hunter fé og frama, sem hann segist þó ekki hirða um. Árni Matt. Costello ántára ★ ★ ★ ★ Elvis Costello lætur ekki deigan síga og enn er komin ný plata frá honum, þótt reyndar sé það smáskifa. Aðallagið á þeirri skífu er Blue Chair, en á b-hliðinni er bergmál frá King of America, American Without Tears 2. Blue Chair er með rokkuðum grunni en samt mjög f ætt við annað sem Elvis hefur sent frá sér, melódískt og aðgengilegt, en mest gaman finnst mér samt að heyra American With- out Tears 2. Minnir þægilega á King of America, eina bestu plötu Elvis Costello í gegn um tíðina. Árni Matt. ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ Sammy Hagar er búinn að vera að í mörg, mörg ár. Upphaflega hóf hann feril sinn með Montrose og þá sem söngvari, en áður en varði var hann kominn með rauðan gítar í lúkumar og malaði gull. Það kom því mörgum á óvart að hann, sem var með allt sitt á hreinu, skyldi ganga til liðs við Van Halen þegar David Lee Roth gekk sinn veg og efuðust margir um að Hagar væri nógu góður söngvari til þess ama. Enn stóreygari urðu menn þó þegar ljóst var að hann myndi einbeita sér að söngnum, en eftir að platan „5150“ kom út voru menn almennt á því að Van Halen væri (að Dave ólöstuðum) betri en nokkru sinni fyrr. Það var því með nokkrum efa- semdum, sem ég setti þess nýjustu sólóplötu Hagars á fóninn, og ekki laust við að mann gmnaði að hér væri enn ein platan komin, sem hefði það hlutverk eitt að uppfylla gerða samninga. Sá ótti reyndist hreint öldungis ástæðulaus. Þrátt fyrir að Sammy Hagar sé einhverstaðar um fertugt er það ekki að heyra á þessari plötu. Reyndar er svo að mér fannst hún vera með því ferskara, sem ég hef heyrt upp á síðkastið — hresst, óheft rokk — greinilega engin form- úluplata á ferðinni. Besti vinur Sammys, Eddie Van Halen, er held- A framabraut Þegar Echo and the Bunny- men kom til íslands 1983 og lék í hálftómri Laugardalshöll var hljómsveitin ein sú áhugaverð- asta sem starfandi var á Bret- landseyjum. Þeim Ian McCullough og félögum fataðist þó flugið og á meðan sveit- ir sem voru á svipuðu róli, Simple Minds og U2, höndluðu heims- frægð, lentu þeir í tilvistarkreppu; hættu að vera áhugaverðir og urðu leiðinlegir. Eftir stóðu þó þijár framúrskarandi hljómplötur, fyrstu þtjár plötur sveitarinnar, Crocodiles Heaven Up There og Porcupine. Fjórða platan náði ekki eins hátt og þær sem á undan höfðu farið og spenna innan hljómsveitarinnar varð til þess að trommari hennar, Peter de Freitas, sem verið hafði í sveitinni síðan 1979, hvarf á braut í byijun árs 1986. Hann sneri þó aftur síðla það ár og upptökur hóf- ust á nýrri plötu, plötu sem kom út í júlí sl., plötunni The Game. Það setur sitt mark á The Game að sveitin hefur ákveðið að ná til fjöldans, tónlistin hefur ekki verið aðgengilegri í aðra tíð og reyndar er formúlublær yfir allri plötunni. Greinilega stefnt á Bandaríkja- markað. Heildarsvipurinn er helst til mikill, en samt verður ekki á móti því mælt að margt gott er til staðar sem minnir á þá Echo and the Bunnymen sem var. Erfitt er að fara að tína út lag eða lög öðrum fremur, því eins og áður sagði, þá eru lögin flest keimlík. Því man áheyrandi helst eftir þeim lögum sem skera sig úr. The Game er þó þægilegt lag og ekki furða ef það ætti eftir að ná hátt á vinsældalistum, enda fellur það vel í U2/Simple Minds formúl- una. Bombers Bay, Lost and Found og AU My Life eru líka prýðileg lög. Vonandi verður tónlistarlegur metnaður þó meira áberandi á næstu Echo and the Bunnymen plötu. Meira áberandi en peninga- legur metnaður a.m.k. Arni Matthíasson í kjölfar hinna gífurlegu vinsælda leysigeisladisksins hafa menn í auknum mæli rætt um stafrænt segulbandstæki og nú þegar hafa þau fyrstu litið dagsins ljós. Enn sem komið er eru þau feykidýr, en ef að líkum lætur lækka þau mjög í verði á næstunni. Sjálfar kasettumar líta út eins litlar videókasettur og eru enn minni en venjulegar kasettur. Sú staðreynd að upptakan er jafnfull- komin leysidiskum hefur skotið hljómplötuútgefendum skelk í bringu og óttast þeir að höfundar- rétturinn verði þverbrotinn í skjóli tækninýjunga. Áf þeim sökum hef- ur verið mikil umræða um að í tækjunum verði sérstakur tölvu- kubbur sem komj í veg fyrir upptöku sé sérstök merking á leysi- diskunum. Þessari ráðstöfun hafa aðrir mótmælt ákaflega og segja hana muni koma niður á hljómgæðunum. Fara nú fram miklar prófanir til þess að athuga hvort þessar fullyrð- ingar eigi við rök a styðjast. CBS hefur þegar tekið þá ákvörð- un að merkja alla diska sína og búist er við að önnur fyrirtæki sigli í kjölfarið. Fari svo sem nú horfir er ljóst að menn muni hugsa sig um tvisvar áður en þeir fjárfesta í fokdýru tæki, sem síðan er þeim annmörkum bundið sem áður er Iýst. Sammy Hagar stendur fyrir sínu ur ekki langt undan, því hann útsetti plötuna í félagi við Sammy og lék auk þess á bassa. (Snerti ekki gítar!) Greinilegt er að piltam- ir hafa skemmt sér við upptökumar, þær em svolítið hráar sumar, en persónulegri fyrir vikið. Það verður þó vart um plötuna sagt að hún sé mjög heilsteypt og ég er ekki frá því að sum lögin séu gömul. Það er þó ekki til baga, því undantekningarlaust er um topp- efni að ræða. Við nána hlustun á plötunni verð- ur maður mjög var við hvílíkur fagmaður Hagar er í lagasamning- um. Allt em þetta úrvalsrokkarar, hvergi óþægilegur eða óeðlilegur hljómur, en samt sem áður kemur gamli maðurinn sífellt á óvart. Ungum og upprennandi gítarleikur- um skal einnig bent á að hlusta á sóló Hagars. Hann er fyllilega fær um mikinn hraða og töfrabrögð ýmiskonar, en sparar slíkt. Hans spilar ekki bara einhver sóló þegar þar á við, heldur semur hann þau, þannig að þau eiga sér upphaf og endi. Rokkunnendur em þó ekki hinir einu, sem hlýtt geta á þessa plötu Sammys, því þar kennir margra grasa. Mér kæmi t.a.m. ekki neitt á óvart þó svo að Iagið „Give To Live" öðlaðist útvarpsvinsældir. Fyrsta lagið á plötunni „When The Hammer Falls" er magnaður rokk- ari og minnir talsvert á Montrose. Næsta lag „Hands And Knees" er einnig stórgott; í „Privacy" kemur gamli fijálshyggjumaðurinn upp í honum við sniðugt lag og „Eagles Fly“ er hástemmdur epískur rokk- ari. Hagar kann að vera kominn til ára sinna, en hann er ekki gamall. rokksíðan ANDRES MAGNUSSOIM •fHlf y f $ £ “ Vandkvæði vegna stafrænnar tækni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.