Morgunblaðið - 18.08.1987, Blaðsíða 13
M.ORGUNBLAÐIP, JÞRIÐJUDAGUB 18. ÁGÚST 1987
í< ! 13
Sé hann beðinn um að bóka þessi
ummæli sín til varðveislu í skjölum
embættisins verður hann reiður og
ávítir sakboming, vítir lögmann
sakbornings opinberlega vilji sá
halda þessu til streitu, enda fátítt,
ef barasta ekki hreint einsdæmi,
að lögmenn séu að krefjast aðskiln-
aðar ákæruvalds, ransóknarvalds
og dómsvalds í sölunum við Borg-
artún. Þetta hefur þó gerst.
Nú fæ ég ekki séð að nokkur bót
sé í því að taka framkvæmdavaldið
af dómurum en fá þeim ákæruvald-
ið í staðinn. Víðasthvar í nágrenni
okkar hefur krafa nútímans verið
sú að dómari fari með dómsvald,
saksóknari með ákæruvald, lög-
regla með • framkvæmdavald. Og
þetta er í þágu allra þegnanna því
öðruvísi verður aldrei nein trygging
fyrir óhlutdrægri meðferð opinberra
mála.
Nú sér það hver maður sem hef-
ur grunnskólamentun í félagsfræði
og lágmarksgetu tilað horfa hlut-
laust á þessi mál, að sakadómari
með ákæruvaldið í annari hendinni
og dómsvaldið í hinni er hreinasta
vitfirring. Vinsamlegasta orð sem
mér kemur í hug um þvílíkan mann
er: atvinnukleifhugi.
Réttarkerfi með atvinnukleif-
huga að máttarstólpum mætti vel
líkja við geðveikrahæli þarsem
læknar eru Qarska illa þokkaðir og
sjúklingarnir á ráðherralaunum.
Vegna 108. greinar hegningarlaga
verð ég hér að taka skýrt fram að
þetta er líking en ekki bein fullyrð-
ing.
Og sú líking á við draumalandið
sem sýslumenskan vill nú hafa til
fýrirmyndar að nýskipan dómsmála
í landinu, úrþví hitna fer undir
sætum yfirvaldanna síðan Jón
Kristinson hjólaði inní kastljós fjöl-
miðlanna með Strassborgarkæruna
á bakinu. Og gerði öllum sýslu-
mönnum skrekk.
Góðu heilli.
Og vitaskuld er það kænn mála-
rekstur hjá yfirvaldinu og sýslu-
menskunni yfirleitt að benda
suðurtil Reykjavíkur (jafnvel þeir í
Keflavík fara „suðurtil" Reykjavík-
ur) og halda því fram að þar sé
fyrirmynd allra góðra hluta.
Alt er best í Reykjavík.
Þar er mesta vöruúrvalið, flestir
bankamir, Þjóðleikhúsið, Kleppur,
bestu veitingastaðimir og rakara-
stofur á hveiju homi.
Menn em svo fljótir að gleyma
því að réttlætið þurfti fyrir skemstu
að koma hjólandi frá Akureyri inní
þessa umræðu.
Þannig hefur það verið mjög
fróðlegt að sjá málflutning þeirra
kerfismanna yfirhöfuð, hvernig þeir
nú undirbúa flutninga sýslumensk-
unnar úr hmndum virkjum sýslu-
mannaembættanna í höfuðstöðvar
sýslumenskunnar — réttarfarskerfi
Reykjavíkur.
Og fróðlegast af öllu er þó að
sjá dómsmálaráðherrann tjúkandi
nýbakaðan úr ofninum, bæði sem
krataforingja og leiðtoga þjóðarinn-
ar í dómsmálum, sitja með sælubros
í sjónvarpinu og rekja lið fyrir lið
„skoðanir" sínar á þessum málum
— og tala yfirleitt einsog hann hefði
legið áratugum saman í sterkasta
framsóknarlút sem völ hefði verið á.
Það bláttáfram lak af honum
sýslumenskan. Utúr honum mnnu
allar þær „hugmyndir" sem Kerfis-
menn framast gátu óskað sér.
Þannig innbyrðir arfurinn hina
mætustu drengi um leið og þeir fá
minstu völd í hendur. Og þannig
fer hið dulda einsflokkskerfi lands-
ins að því að gera alla valdamenn
að flokksbræðrum undir merkjum
hinnar eilífu sýslumensku.
Svona eiga sýslumenn að vera.
Höfundur er rithöfundur.
Ný spariskír-
teini ríkissjóðs
Á MÁNUDAG hófst sala í nýjum
spariskírteinum ríkissjóðs. Eru
þetta þrír nýir flokkar spariskír-
teina og þeir fyrstu sem gefnir
eru út eftir vaxtahækkun.
Hin nýju spariskírteini bera vexti
á bilinu 7,2% til 8,5% umfram verð-
tryggingu, eftir lengd lánstíma. Um
er að ræða annars vegar svonefnd
söfnunarskírteini til tveggja og
fjögurra ára og hins vegar hefð-
bundin spariskírteini með 6 ára
binditíma.
Útgáfa nýrra spariskírteina er í
samræmi við þá stefnu ríkisstjóm-
arinnar að auka spamað innanlands
og draga úr erlendum lántökum.
Sölustaðir spariskírteina ríkis-
sjóðs em hjá löggiltum verðbréfa-
sölum, svo sem bönkum, sparisjóð-
um og pósthúsum um land allt.
Fundað um loðnuverð
BOÐAÐ hefur verið til fundar
um loðnuverð hjá Verðlagsráði
sjávarútvegsins i dag klukkan
15.00. Loðnuskip hafa að undanf-
örnu verið að búast til veiða og
er vitað um eitt skip sem heldur
á miðin í dag, Huginn VE.
Gullberg VE hyggst halda á mið-
in á morgun og Skarðsvík SH og
Öm KE seinna í vikunni. Sam-
kvæmt tilskipun sjávarútvegsráðu-
neytisins eru loðnuveiðar heimilar
norðan við 68. breiddargráðu til 30.
september næstkomandi, en eftir
það verður heimilt að veiða sunnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Skúli Alexandersson á blaðamannafundinum sem hann hélt í gær.