Morgunblaðið - 21.08.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
4
Morgunblaðið/BAR
Jófríðarstaðavegnr 13 var einn þeirra garða, sem viðurkenn-
ingu fékk. Eigendur eru Sigurður Jónsson og Sigríður Jóhannes-
dóttir.
Morgunblaðið/Þorkell
Viðurkenningum fyrir fallega garða, snyrtimennsku og fegrun Hafn-
arfjarðarbæjar var úthlutað á Gaflinum í gær og var meðfylgjandi
mynd tekin við það tækifæri.
Viðurkenningum úthlut-
að fyrir fallega garða
Breiðvang 41, 43, og 45, Smyrla-
hraun 22, Nönnustíg 1, Suðurvang
8 til 14, Fjaran við Strandgötu,
Suðurgata 14 og spennubreytar
við Trönuhraun. Þá fengu foreldra-
og kennarafélög Víðistaðaskóla og
Engidalsskóla viðurkenningur fyr-
ir gott framtak við fegrun skóla-
lóðar og bænum þakkað sérstak-
lega fyrir hans hlut að fegrun
bæjarins.
ÁRLEG úthlutun viðurkenninga
fyrir fallega garða, snyrti-
mennsku og fegrun Hafnar-
fjarðarbæjar fór fram í gærdag.
Fjórtán staðir og aðilar hiutu
viðurkenningu að þessu sinni.
Þeir garðar,lóðir og hús sem
viðurkenningu hlutu voru við
Jófríðarstaðaveg 13, Lindarberg
við Hlébergsveg, Móabarð 27,
Austurgötu 40, Hverfisgötu 8,
Sigurður Hallmarsson settur fræðslusljórí á Norðurland Eystra:
Er fyrsta skrefið til að
draga úr deilum nyrðra
- segir Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra
Reykjavík:
Umferðar-
ljós fyrir
20 milljómr
Á FIMM gatnamótum í
Reykjavík hafa verið sett upp
umferðarljós í sumar og er ver-
ið að breyta ljósum á tveimur
að auki en gert er ráð fyrir
tólf nýjum ljósum á þessu ári
auk gangbrautarljósa. I fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar
fyrir árið 1987, er gert ráð fyr-
ir 20 milljónum króna til kaupa
á umferðarljósum.
Að sögn Olafs Guðmundssonar
aðstoðar gatnamálastjóra hafa
þegar verið sett upp ljós á gatna-
mótum Hafnarstrætis og Lækjar-
götu, Listabrautar og Kringlumýr-
arbrautar, Listabrautar og
Kringlunnar, Síðumúla og Ármúla.
Þegar hafa verið sett upp ljós við
Bústaðarveg og Suðurhlíð en þau
ljós hafa enn ekki verið tengd.
Olafur sagði að kostnaður við hver
gatnamót væri áætlaður um 1,2
milljónir króna.
Ljós hafa verið sett upp við
gangbrautir yfír Elliðavog, neðan
við Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna og yfír Lönguhlíð við
Háteigsveg. Yfir Hringbraut við
Bræðraborgarstíg er unnið að upp-
setningu ljósa en fyrirhugað er að
setja upp ljós yfír Snorrabraut við
Flókagötu og yfir Hverfísgötu við
Hlemmtorg.
Guðrún Zoega
aðstoðarmaður
iðnaðarráðherra
GUÐRÚN Zoega
verkf ræðingur
hefur verið ráðin
aðstoðarmaður
Friðriks Sophus-
sonar iðnaðar-
ráðherra.
Guðrún Zoega
erfædd 1948. Hún
lauk fyrrihluta-
prófi í byggingar-
verkfræði frá
Háskóla íslands en lokaprófí frá
Danmarks Tekniske Hojskole. Hún
hefur undanfarið starfað á verk-
fræðistofunni Fjarhitun hf. Guðrún
er varaborgarftilltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn í Reykjavík.
Eiginmaður Guðrúnar er Emst
Hemmingsen hagfræðingur og eiga
þau tvö böm.
Þetta kom m. a. fram í ávarpi,
sem Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra flutti við upphaf
fundar, sem Félag ísl. stórkaup-
manna og Samstarfsráð verzlunar-
innar efndu til í Háskólabíó í
gærdag. Var fundur þessi haldinn
til kynningar nýjungum í tollamál-
um, en 1. september nk. ganga í
gildi ný tollalög og er markmiðið
með þeim m. a. að gera samskipti
og samstarf tollyfirvalda og fyrir-
tækja sem greiðast og einfaldast.
í tengslum við gildistöku laganna
BIRGIR ÍSLEIFUR Gunnarsson,
menntamálaráðherra, hefur sett
Sigurð Hallmarsson, skólastjóra á
verður jafnframt hrundið í fram-
kvæmd ýmsum skipulagsbreyting-
um í tollafgreiðslu auk tölvuvæð-
ingar. Um næstu áramót á
ennfremur ný tollskrá að ganga í
gildi hér á landi. Sagði fjármálaráð-
herra, að þetta yrði gert í samræmi
við þá alþjóðasamninga, sem íslend-
ingar hefðu gert innan Tollasam-
vinnuráðsins.
En þótt tollskrá væri breytt og
ný flokkun á vöru tekin upp, myndi
enn um sinn ekki verða breyting á
gjaldtöku. Samhliða þvi að tekin
Húsavík, fræðslustjóra á Norður-
landi-eystra. Miklar deilur hafa
staðið um þessa stöðu siðan Sturlu
yrði upp tollskrá með nýjum töxt-
um, þyrfti að gera breytingar á
vörugjaldi, sem tengdist mjög toll-
innheimtu og hefði veruleg áhrif á
tekjuöflun ríkisins. Þessi endur-
skoðun væri einn liður í þeirri
heildarendurskoðun á tekjuöflunar-
kerfí ríkisins, sem hafin hefði verið
með undirbúningi að staðgreiðslu-
kerfí skatta og fækkun undanþága
í söluskatti sem undanfara virðis-
aukaskatts.
Á fundinum í gær, sem var mjög
fjölmennur, voru flutt fyögur fram-
söguerindi. Sigurgeir Á. Jónsson
ræddi um nýju tollalögin, Guðrún
Ásta Sigurðardóttir um nýja skil-
greiningu tollverðs, Sveinbjöm
Guðmundsson um nýtt tollnúmera-
kerfí og Karl Garðarsson um
tölvuvæðingu og ný eyðublöð. Auk
þeirra tóku til máls þeir Bjöm Her-
mannsson tollstjóri og Hallgrímur
Snorrason hagstofustjóri.
Kristjánssyni, fyrrverandi
fræðslustjóra, var vikið úr emb-
ætti fyrr á þessu ári. Menntamála-
ráðherra segir þessa ráðningu
Sigurðar vera fyrsta skrefið í þá
átt að draga úr þessum deilum.
Skólamenn nyrðra telja ráðning-
una skref í rétta átt, en deilumálin
eigi enn eftir að útkljá.
Ólafur Guðmundsson, settur
fræðslustjóri í umdæminu, hefur ver-
ið ráðinn til starfa að sérstökum
verkefnum í menntamálaráðuneytinu
frá og með næstu mánaðamótum.
Jafnframt hefur honum verið veitt
lausn frá starfi fræðslustjóra.
Skólamenn í umdæminu segja að
ráðning Sigurðar sé spor í rétta átt
og samstaða sé um hann sem
fræðslustjóra. Hins vegar eigi enn
eftir að leysa deilur um fyrirkomulag
stuðningskennslu og fjármál og enn-
fremur verði að leysa mál Sturlu
með þeim hætti, að hann beri ekki
skaða af.
Sverrir Pálsson, skólastjóri Gagn-
fræðaskólans á Akureyri, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hann
fagni því að Sigurður Hallvarðsson
skuli hafa verið fáanlegur til að taka
þetta starf að sér. Hann treysti hon-
um til allra góðra hluta. „Ég vona
að á eftir fylgi farsæl lausn allra
þeirra deilumála, sem uppi hafa ver-
ið í fræðsluumdæminu svo allir geti
vel við unað,“ sagði Sverrir.
„Þegar ég kom hingað í mennta-
málaráðuneytið fyrir einum og
hálfum mánuði fann ég að mikill
ófriður og órói var fyrir norðan vegna
þessa máls. Mér fannst því nauðsyn-
legt að taka á því sem fyrst," sagði
Birgir ísleifur Gunnarsson, mennta-
málaráðherra, i samtali við Morgun-
blaðið. „Ég hef rætt við helstu
fulltrúa deiluaðila og fékk mér einn-
ig sérstakan mann til aðstoðar sem
hafði hvergi komið nálægt málinu
áður, Þorstein Júlíusson, hæstarétt-
arlögmann. Niðurstaðan var sú að
ákveðið var að stíga þetta skref að
setja Sigurð ótímabundið í fræðslu-
stjórastöðuna og jafnframt að Ólafur
kæmi til menntamálaráðuneytisins
og ynni að sérstökum verkefnum.
Þetta er gert í samráði við for-
mann fræðsluráðsins og er fyrsta
skrefíð í þá átt að draga úr deilum
nyrðra. Mál Sturlu Kristjánssonar
eru í sérstakri athugun og mun ég
jafnframt setja í gang sérstaka at-
hugun á sérkennslu í Norðurlandi-
Eystra. Ég á von á því að
sérkennslumálin verði tekin til endur-
skoðunar á landsvísu."
Gott veður
um helgina
ÚTLIT eí* fyrir gott veður
um land allt yfir helgina
samkvæmt spám veðurstof-
unnar.
Búist er við hægri norð-
austlægri átt um allt land og
léttskýjuðu veðri. Þó má bú-
ast við að skýjað verði við
norður- og austurströndina.
Hiti verður 8 til 15 stig.
Guðrún Zoega
Fjármálaráðherra á fundi Samstarfsráðs verzlunarinnar:
Hæstí tollur veiði
50% í stað 90%
í frumvörpum að nýjum tolltaxtalögum er gert ráð fyrir verulegn
lækkun tolla, þannig að hæsti tollur verði 50% í stað 90% nú. í ann-
an stað er stefnt að samræmingu á tollum á skyldum vörum. M. a.
verður þá ekki lengur hagkvæmt að flytja inn tæki í hlutum, eins
og núverandi kerfi býður upp á. Þá er að því stefnt að fella niður
tolla með öllu á hráefni og vélum til iðnaðar með sama hætti og nú
á við um samkeppnisiðnað. En til þess að mæta fyrirsjáanlegu tekju-
tapi vegna lægri tolla verður að taka upp vörugjald, sem hugsanlega
yrði almennara en það er í dag.