Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987
3
Aida aft-
ur á svið í
Operunni
SÝNINGAR á AIDU hefjast aftur
S haust í íslensku óperunni, en
engin ný verk verða sett upp á
þessu ári. Framkvæmdastjóri
verður ráðinn að óperunni á
næstu dögum.
Aida var sýnd við mikla aðsókn
á síðasta vetri og verða ekki aðrar
sýningar í gangi í íslensku ópe-
runni fyrri hluta vetrar. Fjárhags-
örðugleikar leyfa ekki uppsetningu
á nýju verki, að sögn talsmanns
íslensku óperunnar. Hins vegar
stendur til að frumsýna óperuna
Pagliacci eftir Leon Cavallo síðla
janúarmánaðar. Pagliacci er
klukkustundarlöng ópera í flutningi
og er fyrirhugað að sýna aðra
styttri óperu með. Hver hún verður
hefur ekki verið ákveðið enn.
Auglýst hefur verið eftir fram-
kvæmdastjóra við íslensku óperuna
og hafa allnokkrar umsóknir borist.
Höfundar-
réttar
fræðing-
ar funda í
Hótel Örk
NORRÆN ráðstefna höfundar-
réttarlögfræðinga verður haldin
í Hótel Ork í Hveragerði í næstu
viku og hefst 26. ágúst. Þetta er
5. norræna ráðstefnan um höf-
undarréttarmál sem haldin hefur
verið og sú fyrsta sem haldin er
hér á landi.
Að sögn Þórunnar Hafstein
deildarlögfræðings í menntamála-
táðuneytinu munu fremstu höfund-
arréttarlögfræðingar Norðurland-
anna sækja þetta þing og verður
þar rætt um þau mál sem efst eru
á baugi í höfundarréttarmálum.
Aðalefnið verður, að sögn Þórunn-
ar, umræður um útvarpssendingar
um gervihnetti og kapla, en einnig
verður rætt um höfundarrétt mynd-
listarmanna, framvindu höfundar-
réttar á Norðurlöndum, upplýsinga-
tækni og höfundarrétt,
höfundargjald vegna bókasafna og
Rómarsáttmálann svokallaða sem
nær til hljómlistarflytjenda.
Þórunn sagði að Norðurlöndin
væru mjög framarlega í höfundar-
réttarmálum og fyrirmynd annara
þjóða í þessu efni. Einnig hefði sam-
vinna verið mjög góð milli Norður-
landanna og stöðugir samráðs-
fundir væru milli ráðuneyta og
félaga höfunda á Norðurlöndum.
„Þetta er ef til vill það réttarsvið
þar sem norræn samvinna hefur
skilað bestum árangri," sagði Þó-
runn Hafstein að lokum.
Lánskjaravísitalan:
Verðbólg-
an 26,9%
Lánskjaravísitalan hefur hækk-
að um 2,01% frá síðasta mánuði
samkvæmt útreikningum Seðla-
bankans fyrir september 1987 en
umreiknuð til árshækkunar hefur
breytingin síðasta mánuð verið
26,9%.
Umreiknuð til árshækkunar hefur
breytingin á lánskjaravísitölunni ver-
ið 26,9% ef miðað er við síðasta
mánuð, 23,4% miðað við síðustu 3
mánuði, 21,4% miðað við síðustu 6
mánuði og 19,7% miðað við síðustu
12 mánuði.